28.09.2007 10:03

Síðsumarsferð á Sigló.

404. Síðust viku ágústmánaðar var haldið norður á Sigló. Tilgangur ferðarinnar var m.a. sá að klífa hið virðulega fjall Hólshyrnu, en það hafði verið eitt af markmiðum sumarsins á sviði fjallapríls. Ég var kominn tímanlega í heimahagana eða á miðvikudagskvöldið 21. ág.



Morguninn eftir leit Steingrímur inn í kaffi og ég sagði honum frá fyrirætluninni. Hann spurði hvort ég væri með almennilega myndavél. Ég sagði honum þá að myndavélin mín væri biluð og ég væri með lánsvél sem yrði að duga. Hann leit á hana og sagðist hafa betri lausn á þeim málaflokki. Og það varð úr að hann lánaði mér myndavél sem ég notaði þá daga sem ég staldraði við, en síðan notuðum við báðir afurðirnar sem úr henni kæmu eftir því sem okkur hentaði. Ég leit inn hjá þeim heiðurshjónum Steingrími og Guðnýu síðar hinn sama dag, sótti myndavélina, fékk svolitla tilsögn um notkun hennar og sníkti mér auðvitað kaffi í leiðinni.



Fimmtudagurinn var hálfgerður slökunardagur og hann notaður til að gera sem allra minnst. Svolítið rölt um bæinn og rúntur fram á fjörð. Á gamla flugvellinum sá ég regnbogann skýrast úti á firðinum og smellti af á hann. Ég flýtti mér síðan upp í Skarðsdal og hugðist ná betri mynd af honum, en þá var skúrin yfirstaðin og sólarglætan horfin og hann á bak og burt. Sum augnablik má fanga með góðum árangri ef maður er á réttum stað á réttum tíma, en þau bíða ekki eftir neinum og líða hjá áður en varir.



Mér datt í hug að skola ferðarykið af bílnum, en það er líklega eitthvað til í því að þegar ein beljan þarf o.s.frv. Þvottaplanið var fullt og allar græjur í fullri notkun. Ég fór nokkra hringi upp Gránugötu og niður Aðalgötu, en var nægilega seinheppinn til að komast ekki að því ef eitthvart pláss losnaði var einhver annar kominn á undan mér.



Á föstudaginn 23. ág. komu afkomendur, fyrrverandi nágrannar, vinir og samstarfsfólk Guðbrandar Magnússonar saman í Siglufjarðarkirkju og minntust 100 ára ártíðar hans.
Guðbrandur sem var kennari við Gagnfræðaskóla Siglufjarðar í margra áratugi var einnig meðhjálpari í Siglufjarðarkirkju, auk þess sem hann var sumarafleysingamaður í lögreglunni, tollvörður, afgreiðslumaður í ÁTVR, bókbindari, skrautritari, spilasafnari, plöntusafnari, fuglaskoðari og svo mætti lengi telja.
Og auðvitað flaggaði Pétur fyrir Guðbrandi.



Dætur hans lásu m.a. upp úr ?Gróðurgrúski? sem er handskrifuð bók upp á u.þ.b. 400 síður þar sem er að finna skemmtilegar gróður, steina og mannlífslýsingar af ferðum hans um landið.



Þegar ég var í Gagganum á Siglufirði var ég nemandi þessa ágæta kennara sem segja má að hafi kannski ekki alltaf verið jafn heppinn með nemendur sína eins og nemendurnir með kennarann. En það skal tekið fram að þó að við hefðum á þessum tíma ekki öll verið búin að ná þeim félagslega þroska sem síðar varð, held ég að það hafi engu að síður ræst þokkalega úr okkur. Einu sinni þegar Guðbrandur stóð á bak við kennaraborðið og reyndi með litlum árangri að ná sambandi við hávaðaseggina og ólátabelgina í stofunni, sá ég að hann hristi höfuðið mæðulega og skrifaði stórum stöfum á töfluna: SILENCE PLEASE. Enginn veitti þessu athygli og óróinn í bekknum fór síst minnkandi, all flestir voru uppteknir af allt öðru en því sem kennarinn hafði að segja. Hann hristi höfuðið aftur og tuldraði fyrir munni sér, "þetta þýðir ekkert, þetta þýðir ekki neitt". Þetta var í fyrsta bekk og einhverra hluta vegna hafði honum verið skipt í tvennt þannig að strákarnir voru í einni deild og stelpurnar í annarri. Ég reikna fastlega með að stelpubekkurinn hafi verið mun meðfærilegri og nemendur þar upp til hópa þægari.



Og það var líka sagt frá því þegar kennarinn flutti til Siglufjarðar frá Hólmavík, þaðan til Akraness og svo aftur norður. Hvernig fjölskyldan stækkaði og frá uppvaxtarárum systkinanna.



Páll Helgason fyrrum samkennari hans rifjaði upp nokkrar spaugilegar sögur frá samstarfi þeirra Guðbrands til margra ára og fórst það vel eins og við var að búast. En þeir voru báðir kennarar í gagganum, Páll var kirkjuorganisti á sama tíma og Guðbrandur var meðhjálpari. Einnig töldu þeir m.a. fugla saman.



Einnig lék Ívar Símonarson á gítar en hann hefur verið við nám í klassískum gítarleik.



Þá færði Anna kirkjunni eina milljón króna að gjöf sem skyldi varið til endurbóta á kirkjunni og Guðný Pálsdóttir formaður sóknarnefndar veitti hinni höfðinlegu gjöf viðtöku.



Nokkrar söngsystur Önnu Magnúsdóttir eftirlifandi konu Guðbrandar færðu henni blómvönd sem börn hennar veittu viðtöku.



Systkinahópurinn, börn Guðbrandar og Önnu.



"Hér hvílir Guðbrandur Magnússon..."



Á eftir var gengið upp að leiði Guðbrandar í gamla kirkjugarðinum.



Fyrir nokkrum mánuðum í góðra vina hópi var verið að ræða um á hvaða fjöll skyldi gengið í sumar, og hvaða gönguleiðir gætu verið skemmtilegri en aðrar. Ég lýsti því þá yfir að í sumar myndi ég ganga á hina tignarlegu Hólshyrnu á Siglufirði sem er 687 metra há.
Ekki vissu allir hvaða fjall það var, en Magnús Guðbrandsson var að sjálfsögðu með það á hreinu og sagðist vilja vera samferða í þann leiðangur.
Það leið fram á sumarið og stefnan var sett á síðustu vikuna í ágúst, eða nánar tiltekið laugardaginn 25. En í stað þess að renna upp bjartur og fagur eins og ætlast var til, fór að rigna snemma um morguninn og þokubakkarnir svifu mjúklega inn fjörðinn úr norðrinu. Þegar líða tók að hádegi sást varla upp í miðjar hlíðar fjallanna, og veðurguðirnir voru greinilega ekki á því að greiða götu okkar þann daginn. En spáin var hins vegar ágæt, og það var ákveðið að gera aðra tilraun á mánudeginum.
Sá dagur rann upp með glampandi sól og heiðbláum himni, og varla sást skýhnoðri nokkurs staðar á ferð.



Og sólin gyllti tinda.



Hólshyrnan speglaði sig fagurlega í pollinum. Heimildir eru til um að fjallið hafi einnig verið nefnd Álfhyrna, sbr. Álfhól sem er við ósa Fjarðarárinnar sem flestir kalla Hólsá.



Eina mynd á mann með viðfangsefni dagsins.



Síðan var haldið inn í Skútudal. En til eru heimildir sem segja að dalurinn heiti Skútudalur austan Skútuárinnar en Saurbæjardalur vestan hennar.



Óli Agnars kom til að aðgæta með grunsamlegar mannaferðir og einhverja skuggalegra náunga þarna upp frá hjá borholunum.



Skammt fyrir ofan holurnar er þessi fallegi foss sem fáir vita af.



Það fór vel á að taka mynd af Magga með þotunni sem átt leið þarna yfir, en hann er mikill áhugamaður um allt sem getur flogið.



Eftir því sem innar og ofar dró fór bærinn smátt og smátt í hvarf. Við vorum nú komnir inn í skuggann af fjalli sem við vissum á þessari stundu ekki hvað hét.



Það var mun kaldara þarna í skugganum svo að við færðum okkur aðeins og settumst niður.



Og auðvitað varð að taka fleiri myndir.



Góður staður fyrir "kyrrðarstund" ef ekki væri lækjarniðurinn sem sumir myndu engu að síður telja til kosta.



Svo hringdi síminn nokkrum sinnum í röð. Þrátt fyrir að bærinn bæri kominn í hvarf, var þarna fullkomið gsm samband .



Það var farið að styttast í brúnina fyrir ofan okkur, en þegar þangað var komið reyndist önnur brún vera mun ofar. Þarna er lítið eftir af snjóskaflinum sem einhvern tíma um veturinn hefur verið stærðarinnar fannbreiða.



Og þarna var fjallið sem varpaði skugga sínum yfir okkur svolitlu neðar og við vissum ekki þá hvað hét.
Ég spurði Magga hvort hann væri til í að gera svolitla breytingu á ferðaáætluninni og benti á fjallið. Hann hélt að það væri nú ekki spurning að nota tækifærið því litlar líkur væru á að við ættum leið um þetta svæði á alveg næstu dögum.

Það var svo ekki fyrr en seinna um daginn að Steingrímur sagðist hafa fengið þær upplýsingar hjá Örlygi að það héti Móskógarhnjúkur.



Aftur var beygt inn í skuggann og ný stefna tekin.



Uppi á brúninni fyrir ofan voru skemmtilegar klettamyndanir. Líklega voru þarna tröllkarlar og kerlingar sem á öldum áður hafði dagað uppi og orðið að steini.



Þessi snjóskafl varð á vegi okkar ef snjóskafl skyldi kalla því hann var alveg glerharður og nánast ógerlegt að ganga yfir hann nema þar sem lítill sem enginn halli var.



Það var farið að styttast á toppinn.



Og eftir því sem ofar dró hafði bærinn komið smátt og smátt í ljós aftur.



"Svona á alltaf að gera" sagði Maggi og bætti nokkrum steinum í vörðuna.



Og svona á líka alltaf að gera þegar myndavél er með í slíkri för. Að merkja sig inn á kísilflöguna til stafrænnar geymslu.



Útsýnið var ekki af lakara tagi ofan af hnjúknum. Hér sést fjallseggin sem liggur til austurs yfir að Dísinni en svo heitir næsti hnjúkur. Einnig sést svolítið  ofan í Héðinsfjörðinn.



Einnig niður allan Skútudalinn, eða ætti ég að segja Skútu og Saurbæjardalinn.



Hólsfjallið er vestan megin dals, en það skilur að Skútudal og Hólsdal eins og flestum er líklega kunnugt. Og það er aðeins fremsti hluti þess sem heitir Hólshyrna.

Þegar við Maggi Guðbrands vorum staddir uppi á Móskógarhnjúk á dögunum á leið upp á Hólshyrnuna, hringdi gemsinn minn og svolítið syfjuleg karlmannsrödd spurði hvort nokkuð væri verið að vekja mig.
Ég kvað svo alls ekki vera og horfði í leiðinni yfir hinn Siglfirska fjallasal sem umlukti okkur félagana, fjörðinn langt, langt fyrir neðan og bæinn sem kúrði niður á Þormóðseyrinni og hlíðunum fyrir ofan hana.
Þetta reyndist vera Pétur Bjarna sem var í símanum, og hann sagði mér að hann hygðist fara á Ásdísi Ólöfu inn í Héðinsfjörð morguninn eftir og spurði hvort ég hefði áhuga á að koma með.
Og auðvitað vildi ég fá að koma með, því hvort tveggja var að spáin var alveg glimrandi góð og svo hafði ég aldrei á ævinni komið í Héðinsfjörð þrátt fyrir að hafa búið í heil 30 ár í námunda við hann.
Það var því ákveðið að hittast niður við smábátahöfnina kl. 8 morguninn eftir.



En áfram var haldið og nú eftir fjallsegginni sem var sumsstaðar nægilega skörp til að hægt að setjast klofvega á hana þannig að annar fóturinn væri þá í Héðinsfirði en hinn í Siglufirði.



Og þegar við litum til baka sáum við Móskógarhnjókinn "aftan frá" ef svo mætti segja. Það kom á óvart hvað rauði liturinn var ráðandi í jarðveginum.



Það þurfti ekki langt að fara til þess að sjá ofan í Héðinsfjörðinn, en hann var ég þarna að líta augum í fyrsta sinn á æfinni.



Þarna sást vel til verka Stebba á Reyðará og gengis hans. En verið er að hreinsa frá væntanlegum gangnamunna Héðinsfjarðarganga þeim megin sem snýr að Ólafsfirði.



Og þaðan sem við stóðum mátti líka sjá svolítinn hluta Siglufjarðarkaupstaðar (Fjallabyggðar) yfir eggina sem við höfðum gengið eftir niður af hnjúknum.



Og þarna var gott gsm samband og ég sendi nokkur sms.



Maggi sýslaði við myndavélina. Við tókum auðvitað myndir í allar áttir, útsýnið var einstakt og það var óvíst hvenær við yrðum staddir næst á þessum slóðum.



Hérna hallar fjallið (til hægri) ofan í svonefnda Beinaskál sem kemur inn úr vestanverðum Ámárdal framarlega. Ámárhyrna er á myndinni beint fyrir ofan höfuðið á Magnúsi.



Við héldum af stað til vesturs eftir fjöllunum og fyrir Skútudalsbotn. Þarna urðu á vegi okkar nokkrar verulega stórar fannir sem líklega aldrei ná að hverfa alveg , sama hvað sumarið er hlýtt.



Fjallið fyrir aftan mig er líklega Presthnjúkur sem er beint inn af Hólsfjalli og fyrir norðan Hólsskarð. Hann er 769 metra hár eða nokkru hærri en Hólshyrnan. 



Eftir því sem við gengum sáum við minna af Héðinsfirði en aftur meira af Siglufirði. Við vorum því eiginlega á bakaleið og Skútudalurinn opnaðist á ný. 



Og þarna höfðu greinilega fleiri á leið um, en í allt öðrum tilgangi.



Og líkla hérna því Maggi fann þessa reim sem er vísast úr snjósleða. Þarna sem við vorum nú komnir er styst leið milli Skútudals og Hólsdals og þar með liggur þarna leiðin í kring um Hólsfjallið sem oft er gengin eða farin á sleða.



Horft til suðurs yfir Hólsskarðið en þarna um er gömul reiðleið yfir í Héðinsfjörðinn.



Horft til norðurs fram eftir öllu Hólsfjalli. Strákafjall ber við himin fjærst og hinum megin fjarðar.



Magnús ber við himin en á bak við hann er Hestskarð sem er sennilega algengasta gönguleiðin til Héðinsfjarðar. Norðan við (t.v. við Magga) skarðið rís Hestskarðshnjúkur en að sunnan Dvalahnjúkur.



Og hægra megin við mig er svo Hestskarðshnjúkur nær og Staðarhólshnjúkur fjær. Á milli þeirra og nokkru fyrir ofan miðja hlíðina er svo Skollaskál sem sést ekki á myndinni.



En gangan fram eftir Hólsfjalli er hafin en hún reyndist heldur lengri en menn höfðu gert ráð fyrir í fyrstu. Einu sinni sagði einhver við mig að uppi á fjallinu væri tilvalið að koma fyrir flugvelli. Það var fyrir löngu síðan og ég var staddur niður í bæ. Ég horfði þaðan upp á hyrnuna og hristi höfuðið vantrúaður.



En leið okkar lá ekki bara eftir "hásléttunni" þarna uppi. Svolitlir útúrdúrar m.a. um grýtta urð töfðu lítilsháttar fyrir, en sumt þurfti bara að skoða betur.



Maggi sá einhverja torkennilega fjallajurt sem hann skar upp með rót og kom fyrir í mold og vatni í bakbokanum. Eitthvað til að færa konunni þegar heim kemur, en hún Gulla er alveg vís til að hlúa að plöntunni og fá hana til að vaxa og dafna.



Við áttum nú skammt eftir ófarið að vörðunni fremst á sléttunni miklu og hæsta hluta hyrnunnar.



Fjallið varð nú mjórra eftir því sem framar dró og brattinn til hliðanna varð sífellt sýnilegri.



Hér sést niður í Skútudalinn að gangnamunna Héðinsfjarðarganga.



Hér er horft niður á flugvallarendann, Saurbæjarásinn, frístundabústaðina sem þar eru og Ráeyri.



Og út á Siglunes.



Þegar fram á fjallið var komið blasti Siglufjarðarkaupstaður við. Húsin virtust vera eins og dúkkuhús og bærinn eins og stór leikvöllur með litlum Matchboxbílum og teiknuðum götum á harðspjald með fagurlega blámáluðum sjónum.



Ég tyllti mér upp á vörðuna og hringdi í Steingrím, (Lífið á Sigló) en hann hafði beðið mig að láta sig vita þegar toppnum væri náð. Hann ætlaði að freista þess að ná mynd af okkur af svölunum hjá sér. En þar sem hann býr í einu af allra nyrstu húsunum í bænum er fjarlægðin mikil og eins gott að hann er vel græjaður.



Svo var komið að Magga að gerast "fyrirsæta" á þessum fyrirheitna stað.



Og svo aftur ég, því við vildum geta valið úr nokkrum myndum í albúmið að ferð lokinni.



Og eins og áður sagði, þá er brattinn verulegur.



Og reyndar verður að teljast ókleyft þarna.



Gilið nær frá jafnsléttu og alveg upp á fallsbrúnina.



Ég mundi ekki vilja reyna að komast þarna niður, - eða upp.



Það er ekki eins hrikalegt að vestanverðu.



En það er næstum því eins og horft sé beint niður á Skógræktina.



Fossinn í læknum Skútudalsmegin fyrir ofan skuggabrúnina.



Það var á þessum kletti sem við stilltum okkur upp fyrir Steingrím, en hann er rétt fyrir neðan vörðuna.



Ég er ekki svo lítið grobbinn af þessu sjónarhorni og ekki frá því að ég eigi einhvern tíma eftir að stækka myndina og koma henni fyrir á áberandi stað í gylltum ramma sjálfum mér til dýrðar.



Þarna gengur gilið upp úr fjallsbrúninni og myndar skarð í hana sem glöggt má sjá m.a. úr bænum.



Og fleiri myndir af bænum, enda kjöraðstæður til myndatöku.



Það er ansi hátt þarna niður.



Og eins gott að menn séu ekki mjög lofthræddir.



Ég gat að sjálfsögðu ekki sleppt því að taka mynd af hluta nestisins, en LEO súkkulaði hefur víst verið bannað einhvers staðar út af nafninu einu saman.



Það var farið að líða á daginn og við ákváðum að fara niður Hólsdalsmegin og gengum suður og niður hlíðina þeim megin.



Þetta er óneitanlega svolítið "landakortalegt."



Og sjónarhornið út fjörðinn og yfir bæinn breyttist eftir því sem neðar dró.



Og breyttist enn meira. Það er orðið svolítið um endurtekningar í myndefninu en það er bara ekki alltaf svo gott að velja og hafna þegar Sigló er annars vegar.



Það reyndi allt öðruvísi á fætur og fótleggi að fara niður brattann en þegar leiðin lá upp í móti, og það þurfti ekkert síður að staldra við og hvíla sig annað slagið.



Leifar af skíðalyftunni sem fór í snjóflóði fyrir allmörgum árum urðu á vegi okkar.



Að lokum vorum við komnir niður á jafnsléttu, ferðinni að ljúka og íþróttamiðstöðin að Hóli framundan.



Grasið var ótrúlega hávaxið og það þurfti að gæta sín á skurðum og þýfðu landinu, en allar ójöfunur voru því sem næst ósýnilegar vegna þess hve gróðurinn var mikill og þéttur.



Gulla (hans Magga) tók á móti okkur á Hóli og ferjaði yfir í Skútudalinn þar sem við höfðum lagt upp og bíllinn minn beið.



Myndin sem Steingrímur tók af okkur uppi á Móskógarhyrnu. Hann taldi að fjarlægðin á milli okkar hafi verið u.þ.b. 7 km., svo aðdráttarlinsan hefur greinilega verið af stærri og betri gerðinni.



Myndin sem Steingrímur tók af okkur uppi á Hólshyrnunni. Ég myndi giska á 5 km. frá svölunum þar sem hann stóð.



Séð inn í Skútudalinn. Flestir sem hafa komið til Siglufjarðar ættu þar með að átta sig á staðháttum.
(Mynd og merkingar - Steingrímur.)



Rétt fyrir kl. 8 var ég mættur, en þá voru allir aðrir komnir um borð. Þarna var á ferðinni mikið og gott lið. Ber þar fyrstan að nefna Pétur Bjarna (skipstjóra í ferðinni), þá faðir hans Bjarna (málara) Þorgeirs, Jónas (skipstjóra og hafnarvörð) Sumarliða, Gunnar Smára (upptökumann, hljóðblandara og tölvuséní), Davíð Þór (grand-píanóleikara úr "Flís") og Svenna (sveitunga hans sem er mikil veiðikló.)



Þrátt fyrir að ég teldi mig vera tilbúinn á umtöluðum tíma bankaði Helgi Magg upp á hjá mér og keyrði mig niður á bryggju (ca, 100 metra) svo ég yrði ekki of seinn. - Gott að eiga góða að.



Lagt var af stað út rennisléttan fjörðinn og Bjarni andaði að sér morgunloftinu.



Jónas leit út og gerðist glottuleitur eins og sjá má þegar hann leit hóp "landkrabba" á dekkinu.



Gunnar Smári aðgætti búnaðinn og fullvissaði sig um að ekkert hefði gleymst.



Davíð Þór dró upp úr pússi sínu lítinn kassagítar og þandi raddböndin. Nokkrir þekktir slagarar fengu svolítið óhefðbundna meðferð af hans hálfu og hann vildi greinilega byrja partýið snemma.



Svenni fylgdist með félaga sínum og vini og mér fannst á tímabili að hann væri að reyna að finna millirödd sem félli að söng gítarleikarans.



Pétur sinnti skipstjórninni hins vegar af "alúð og natni" eins og Gvendur á eyrinni fé sínu forðum í þekktu dægurlagi frá sjöunda áratugnum.



Og ekki má gleyma litla plastaranum sem átti að ferja okkur í land og notast síðan á Héðinsfjarðarvatni.



Við nálguðumst Siglunes í blíðunni.



Og svona lítur þá fjörðurinn út af sjó. Auðvitað vissi ég það síðan ég var á færum og línu á Gullveigu SI 12 með Svenna Björns og Hafþóri Rósmundar, en það er bara svo langt síðan. Ég fór að reikna í huganum og viti menn, eftir fjögur ár til viðbótar verða liðin 40 ár frá því að ég var næstum því orðinn "sjómaður."



Farið fyrir Helluna. Nesnúpurinn til hægri og Reyðarárdalurinn er byrjaður að opnast.



Strákafjall og Sauðanes lengst til hægri. Að vísu býr enginn Trausti þar lengur sem tók vel á móti hröktum hljómsveitarstrákum um veturinn 1977-8 en við höfðum þá fest bílinn sunnan við Mánárskriður.



Nesnúpurinn rís upp úr fjörunni eins og risi sem er að skyggnast út á hafið.



Reyðarárdalurinn nær inn á móts við Kálfsdal. Nesnúpurinn er Siglufjarðarmegin við hann en Hesturinn Héðinsfjarðarmegin.



Fljótlega eftir að beygt var inn Héðinsfjörðinn sá ég að Bjarni var að benda upp í Hestinn og segja frá einhverju.



Og ég færði mig nær og lagði við hlustir, því ég er forvitinn að eðlisfari. Bjarni var að segja frá Bangsagjá.



Þessi gjá sem klýfur fjallið frá toppi og alla leið niður í sjó heitir Bangsagjá. Sú nafngift er komin til vegna þess að fyrir löngu síðan gekk hvítabjörn á land á Siglunesi. Bóndinn á Reyðará varð hans var og veitti honum eftirför því hann vildi vinna björninn. Björninn hopaði undan bónda og stefndi til fjalls og var kominn hátt upp þegar hann hrapaði niður í gjána sem síðan heitir Bangsagjá. 



Skyndilega hægði báturinn á sér því einhver hafði verið nægilega eftirtektarsamur til að sjá að línan í plastjulluna var farin að trosna, svo að skammt yrði þess að bíða að hún slitnaði aftan úr. 



Og áfram var haldið og landið skoðað í leiðinni, enda veðrið vel fallið til þess.



Austan fjarðarins er Vík sem var og er líklega enn stærsta jörðin í firðinum. Inn af bænum gengur Víkurdalur og upp af honum fjallið Víkurbyrða.



Vestan fjarðarins er svo Hesturinn sem er lágt fjall sem hækkar þegar utar dregur.



Opið er til hafsins í norðaustur. Hér er ekkert nes eins og fyrir Siglufirði sem dregur úr ágangi og ofsa úthafsins í verstu veðrum.



Við vorum fljótlega komnir inn í fjarðarbotninn enda stutt sigling inn fjörðinn. Framundan var fjaran og eiðið sem skilur vatnið frá söltum sjó.



Það kom auðvitað í hlut lærðra manna á sínu sviði að festa Ásdísi Ólöfu við legufæri.



Veiðimennirnir Svenni og Davíð sem ætluðu að fara upp eftir ánni með stengur sínar voru komnir í ham.



Þeir voru fyrstir í land og ferjumaðurinn Bjarni tók vel á árunum.



Næstir voru þeir Jónas og Gunnar Smári.



Og síðast fór ég ásamt skippernum Pétri sem stöðu sinnar vegna á auðvitað að vera síðastur frá borði. 



Gunnar hljálpar hér Bjarna að festa hinn 6 hestafla utanborðsmótor á fleyið.



Davíð virðir fyrir sér hinar ókönnuðu veiðilendur.



Svenni dregur upp flugnanetið og tjaldar því á réttum stað.



Bjarni rær upp ána því hér er of grunnt til þess að mótornum verði við komið.



Ferðalangarnir ganga yfir eiðið og fíla sig greinilega í botn í náttúruparadísinni Héðinsfirði.



Það vantar greinilega ekki lognið. Þetta er óneitanlega svolítið "póstkortaleg" mynd. Ef Bjarni væri með jólasveinahúfu og hæfilega mikill snjór í fjallatoppunum, væri hérna komið efniviðurinn í jólakortið í ár.



Það er óvenju lágt í vatninu. Mér er sagt að malartanginn sem sést á myndinni sé yfirleitt á kafi.



Davíð veður því út í vöðlunum til að kanna dýpið og er greinilega orðinn óþreyjufullur að komast í ána.



Nú liggur fyrir að ferja mannskapinn yfir vatnið til syðri enda þess, en það er góður spölur.



Ég fór með Bjarna í seinni ferðinni.



Ásamt Pétri.



Og Jónasi sem er hérna baðaður sólargeislum eins og helgur maður sem náttúruöflin hafa velþóknun á.



Þegar við vorum komnir að Vatnsenda þar sem var áð, kom maður gangandi yfir ósa Héðinsférðarárinnar þar sem húnn rennur í vatnið. Það reyndist vera Óli Henriksen sem hafði komið deginum áður til veiða. Og eitthvað fataðist mér stillingin á myndavélinni, því eins og sjá má þá er Óli full mikið "yfirlýstur" veiðimaður að þessu sinni.



Pétur og Jónas gerðu netin klár og eru ekkert síður "yfirlýstir" veiðimenn, enda eiga þeir báðir langan og giftusamlegan feril að baki á því sviði.



Því næst voru netin lögð. Feðgarnir og "Héðinsfjarðarbændurnir" Bjarni og Pétur taka sig vel út á vatninu, enda má segja að þeir séu á heimavelli.



Meðan Pétur, Bjarni og Jónas lögðu og vitjuðu síðan netanna í vatninu og heimsóttu Stebba á Reyðará, Davíð og Svenni gengu langt upp fyrir Ámá sveiflandi veiðistöngum sínum, þá gengum við Gunnar Smári upp í skálina fyrir ofan Vatnsenda.



Einhvers staðar á þessum slóðum hefur fundist 25-30 stiga sjálfrennandi heitt vatn og Bjarni sagði okkur frá að hér áður fyrr hefðu ábúendur nýtt það til þvotta.



Það er mjög lítið fuglalíf í Héðinsfirði og fram hefur verið sett sú kenning að það sé vegna ágangs refs og minks hvort sem það er rétt eða ekki. En þarna við ána var þó rjúpumamma með ungana sína á ferð, en var horfin upp fyrir brúnina áður en ég gat "skotið" mynd.



Eins og sést á myndinni eru hlíðar fjallanna hér brattar og undirlendi af skornum skammti. Það á raunar við um allan fjörðinn og er mikil snjóflóðahætta því sem næst alls staðar. Þetta gerir hann síður byggilegan og hefur byggð lagst af nokkrum sinnum á síðustu öldum og nú síðast árið 1952 að mér er sagt.



Gunnar Smári í þungum þönkum á "landareign" sinni. Það kom fram á leiðinni að hann á ættir að rekja í Héðinsfjörð og til Vatnsenda og er einn af fjölmörgum afkomendum fyrrum ábúenda. Þar með er hann einn af að vísu ótal mörgum eigendum jarðarinnar.

Þarna erum við komnir upp í skálina sem er fyrir ofan bæinn Vatnsenda sem snjóflóð fleytti út í vatnið fyrir fáeinum árum. Það mun hafa farið af stað fyrir ofan botn skálarinnar, runnið fram eftir botni hennar og síðan haldið áfram fram af brúninni. Hún er ekki ósvipuð að stærð og Hvanneyrarskálin, en hallar aðeins fram um 5 gráður. Til samanburðar hallar Hvanneyrarskálin um 7 gráður. Það virðist því með ólíkindum að flóðið hafi ekki staðnæmst þarna uppi.

Upp úr skálinni er skarð sem heitir Afglapaskarð og er því samnefnt öðru skarði sem er skammt austan við Siglufjarðarskarð.



Þegar horft er fram af brúninni sjást tvær skálar í fjöllin vestan við vatnið. Sú til hægri er neðan við Hestskarðið sem er aðal gönguleiðin til Siglufjarðar, en sú sem er vinstra megin og sunnar heitir Fýlaskál.



Ef horft er inn fjörðinn og til dala er Ámárdalur og Ámárhyrna á miðri mynd, en þar um liggur leiðin um Hólsskarð. Svolítil hvilft er inn í fjallið til norðurs upp úr dalnum sem heitir Beinaskál.



Það var ekki annað hægt en að taka eftir því hvað mikið var um stóra sveppi.



En ferðin upp í skálina og niður eftir aftur tók mun lengri tíma en eðlilegt hefði verið vegna þess að ógrynni af stórum bláberjum urðu á vegi okkar sem rötuðu í talsverðu magni "upp í munn og on´í maga" eins og segir í kvæðinu.



Þegar niður var komið skoðuðum við leifarnar sem snjóflóðið hafði skilið eftir af bænum Vatnsenda.



Þar skammt fyrir sunnan hafði svo fjárhúsið staðið.



Það hafði fjölgað um einn. Höddi Júll hafði komið gangandi yfir Hestskarðið fyrr um daginn og ætlaði að verða okkur samferða með bátnum til baka.



Jónas var kominn í land eftir vitjun netanna.



Og Gunnar skellti sér með í þá næstu.



Og eftir að menn höfðu gert nesti sínu góð skil var fylgst með þegar komið var að landi.



Ellefu fallegar bleikjur og ein legin...
Ég veit ekki hvernig dósin þarna niðri í vinstra horninu komst inn á myndina því allt eru þetta stakir reglumenn sem voru í ferðinni.



Við Gunnar héldum aftur af stað og gengum inn fyrir vatnið, en upp frá því liggja þessi hjólför sem eru líklega ekki eftir neinar "drossíur."



Nema þetta séu "áveitumannvirki."



En þau lágu að athafnsvæði Stebba á Reyðará og manna hans. En þarna er verið að hreinsa frá væntanlegum munna Héðinsfjarðarganga Ólafsfjarðarmegin.



Og er grafið og ýtt.



Og borað og sprengt.



Það þarf greinilega að skipta um verulega mikið af jarðvegi undir vegskálum.



Baula þú nú Búkolla mín, ég elti þig á fjórhjóli. . .
Þannig mætti nútímavæða og staðfæra gamla þekkta frasann úr sögunni um hana Búkollu.



Höfuðstöðvar Stebba verktaka eru ekki til húsa í einhverri glæsilegri skrifstofubyggingu, en þetta virkar svona.



Við lögðum leið okkar inn að Grundarkoti sem nú mun vera til sölu. En vegur sem mun liggja frá vestari til austari hluta Héðinsfjarðarganga mun liggja því sem næst eftir landamerkjum Vatnsenda og Grundarkots. 



Og eins og ætti að vera hægt að sjá eru bæjarrústirnar skammt sunnan hins væntanlega gangamunna.



Það litla undirlendi sem er í Héðinsfirði er að talsverðu leyti hólar og mýrar á milli.



Þessi skemmtilegi "hártoppur" prýðir einn hólinn í landi Grundarkots.



Meðan Héðinsfjörðurinn verður ekki ræstur fram mun fífan ekki verða útdauð á Íslandi, svo mikið er víst.



Að vestanverðu eða Siglufjarðarmegin er búið að hreinsa frá munnanum og ég gat ekki betur séð en að grjóti hefði verið keyrt í sárið. Ég velti fyrir mér hvort verið væri að fergja sárið eða hvort aðrar skýringar væru tiltækar.



Mér var sagt að villtan dvergvíði væri að finna í Héðinsfirði, Ég hafði augun hjá mér og get ekki betur séð en að laufin á þessum runna líkist laufum "fullorðna"  víðisins verulega.



Það er eins gott að vera vel stígvélaður á ferðalagi á þessum slóðum.



Degi var tekið að halla og allir nema stangveiðimennirnir sem ekkert sást til, voru raunar tilbúnir að leggja af stað út eftir vatninu sem var jafnframt fyrsti áfangi heimferðarinnar. Það var líka búið var að taka upp netin og gera að aflanum.



Bjarni, Höddi og Óli leggja af stað í fyrstu ferðina af þremur.



Ég var um borð í þeirri næstu ásamt Gunnari og Pétri. Við vatnið og undir Hestskarðinu er lítill sumarbústaðir sem mér var sagt að Gulli Henriksen ætti. Ekki ónýtur staður fyrir slíkt aðsetur.



Hægur andvari gárar vatnsflötinn og við nálgumst ósinn. - Hann er reisulegur Hesturinn.



Þar er veiðikofinn sem má muna sinn fífil fegri. Samt væri alveg hægt að gera húsið skemmtilegt og aðlaðandi með tiltölulega lítilli fyrirhöfn og án verulegs kostnaðar.



Gunnar og Pétur sitja á spjalli á brún verandarinnar en mér hafði dvalist aðeins við myndatökur.



Þarna rétt hjá er svo gangnamannakofinn sem er meðal annars frægur að endemum fyrir músagang



Hornstaurarnir í réttinni eru gerðir úr rekaviði sem setur skemmtilegan svip á hana.



Olíukerran hans Stebba er líka þarna skammt fyrir ofan fjöruna. Fyrir margt löngu síðan átti að flytja hana með skipi frá Siglufirði. Stebbi sem var fullur ákafa og vildi gera allt strax fyllti hana af olíu áður en hún var hífð um borð þannig að hífingin gekk ekki áfallalaust fyrir sig. "Menn höfðu bent honum á að hífa fyrst og dæla svo en hann gat alls ekki beðið" sagði einn ágætur vinur minn og hló dátt að þegar hann sá myndina að kerrunni.
"Sérðu ryðguðu beygluna þarna til vinstri á myndinni?" Hann bennti á dæld fyrir ofan aftari öxulinn.
"Hún kom við það tækifæri." Og hann hló aftur dátt. Síðan sagði hann mér söguna alla sem ekki er hægt að birta.



Og þessi fíni snjósleði á staðnum þó enginn sé snjórinn. Ætli Stebbi eigi hann líka?



Og nóg er af Síberíuviðnum í fjörunni.



Spor í sandinn. - Ég sá mín eigin spor þegar ég gekk til baka eftir að hafa gengið eftir sandfjörunni í Héðinsfirði allt að suðurrótum Hestfjalls.



Óli og Höddi voru ekkert að æsa sig yfir hinni timbruðu innrás frá Síberíu. Þeir biðu bara eftir að hafa einhverja ástæðu til að standa upp.



Ég rakst á þennan undarlega íbúa Fjallabyggðar skammt fyrir ofan fjöruna. Eða kannski var loksins spádómurinn um innrásina frá Mars að rætast. Hann (eða hún) er nú svolítið Marsbúalegur.



Þessi reisulega og hæfilega mikið veðraða bygging stendur sem klettur á sínum stað, eins og ávalt til þjónustu reiðubúin gestum og gangandi.



Nokkuð löng bið varð á að stangveiðimennirnir ógurlegu kæmu til vatns og báts, en þegar það loksins gerðist var ekki um neitt annað að ræða en koma þeim Svenna og Davíð áleiðis til manna. Eftir að vatnsgárunum hafði  verið sturtað úr bátnum var hann borinn yfir eiðið og niður á sjávarkambinn.



"Rassmótorinn" sem hafði verið tekinn af meðan á burðinum stóð, var aftur settur á því það var fráleitt að róa ef vél var fyrir hendi.



Jónas og Höddi.
Þeir eru hvorki samrýmdir né sambrýndir. Annar horfir í austur en hinn í vestur. Annar treður í nös meðan hinn flautar lítið lag. Annar gæti viljað fra að koma sér heim meðan hinn vildi gjarnan vera lengur...

Eða eru þetta kannski bara íslenskir karlmenn sem snúa bökum saman?



Næsta skref er að komast út í bátinn, og flutningur hefur þegar hafist...



Stórstangveiðimennirnir eru fundnir, komnir til manna, komnir til sjávar og komnir til sjálfs sín.



Við Davíð veifum ljósmyndaranum hugsandi um Farfisa, Hammond, Yamaha, Vox, Korg, Solton og svo margt, margt fleira í dúr og moll, drekkandi djús úr krús...



Og Ofur-Bjarni flutti okkur að lokum til báts.



Höddi horfði með söknuði til lands.



Og Gunnar "óðalsbóndi" horfði líka með söknuði til lands.



En Davíð ruglaði saman nokkrum þekktum slögurum í einn alsherjar pott og komst upp með glæpinn því það hlógu allir og skemmtu sér konunglega.



Einhver benti út á fjörðinn og sagði: "Þessi þarna er sonur hennar Sæunnar Axels útgerðarkonu."
Það má auðvitað vera frægur fyrir minna.



Og jullan, mini-plastarinn, björgunarbáturinn eða skektan elti okkur eins og hundur í bandi. Hún var auðvitað í góðu bandi við okkur mestalla leiðina og hafði reynst okkur vel í ferðinni. Mér þótti því eðlilegt að taka aðra mynd af henni í hvítleitu kjölfarinu.



Ég náði þessari flottu mynd af Óla undir Héðinsfjarðar-Hestinum. Mynd sem barna-barnabörn hans munu eflaust ramma inn í rándýran gylltan ramma og nota síðan sem fyrirmynd af styttu sem mundi sóma sér vel á hvaða torgi sem er.



Þetta verð ég að prófa sagði Davíð og fékk sér í nefið. Mikil og hávær hnerraköst fygldu í kjölfarið.



Myndavélabrosinu komið fyrir á sínum stað.



Hinn Héðinsfjarðarsjóaði Bjarni með Víkurlandið í baksýn.



Höddi sposkur á svip fyrir myndatökuna.



Og við sigldum öðru sinni fyrir Nesnúpinn í dag, en bara í hina áttina.



Þegar við sigldum inn Siglufjörð var Keilir SI 145 á miðjum firði og hreyfðist lítið.



Pétur skipstjóri hægði ferðina og var greinilega umhugað um Keili.
Rétt er að geta þess að sömu eigendur eru að Keili og Ásdísi Ólöfu sem við sigldum á og er ekki með öllu útilokað að það hafi haft einhver áhrif á skipstjórahjartalag Péturs.



En málið var ekki flókið í eðli sínu. Snurpunótin lá beint niður af skut Keilis og skipverjar óttuðust að hún hefði
flækst í skrúfunnni. Plastarinn Ásdís Ólöf dró eikarbátinn aðeins áfram og snurpunótin lagðist út í sjóinn, ljóst var að ekkert var að óttast og við héldum áfram. - Heim á Sigló.



Feðalagið í Héðinsfjörðinn tók í heild sinni u.þ.b. 14 klukkutíma og verður dagurinn að teljast til eins af þeim betri þetta sumarið. Mig langar að þakka samferðamönnum mínum fyrir ógleymanlegan dag.

Alls voru teknar u.þ.b. 800 myndir þessa daga og þar af voru rúmar 500 taldar eiga erindi inn á myndaalbúm, og eru þar í möppu sem er merkt "Ágústferð á Sigló." Í þessari bloggfærslu eru þær hins vegar aðeins um 200, sem verður þó að teljast allnokkuð.

Nafn:

Leó R. Ólason

Staðsetning:

Ýmist í Hafnarfirði eða á Siglufirði
Flettingar í dag: 91
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 317
Gestir í gær: 82
Samtals flettingar: 317715
Samtals gestir: 34804
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 03:18:12
clockhere

Tenglar

Eldra efni