19.02.2009 23:11

Opinberun Jóhannesar Georgs

540. Ég fékk sendan tölvupóst áðan og innihaldið fer hér á eftir. Ekki er hægt að segja að hann hafi verið uppbyggilegur fyrir sálina og andann, en ég kópí/peistaði boðskapinn rakleiðis hingað yfir á bloggið því ef þetta er það sem koma skal er líklega óhætt að fara að finna til ferðatöskurnar og pakka niður með hraði.



Þetta er opinberun Jóhannesar Georgs, sem réttu nafni heitir Johanes George Lee og er skoskur sjáandi sem hefur séð marga atburði fyrir, t.d. forsetakjör Obama, skógareldana í Ástralíu, og efnahagshrunið á Íslandi.

Hér á eftir er lausleg þýðing úr ensku á sýn hans á framtíð Íslands á næstu árum.

2009: Forsætisráðherra nýju ríkisstjórnarinnar, Jóhanna, er heiðarleg og dugleg, en því miður fær ríkkistjórn hennar fáu áorkað til góðs. Orsök þess er mikil ringulreið og óeining í þinginu og stjórnkerfinu. Fátt gengur í haginn. Það tekst að koma Davíð úr Seðlabankanum og skipa einn Seðlabankastjóra, en það breytir litlu um efnahagsöngþveitið. Atvinnuleysi eykst, fólk missir eignir sínar. Þúsundir fólks flytja úr landi á þessu ári, mest til Noregs og Kanada, en einnig til fleiri landa.

Seinast í Apríl verða kosningar til þings. Nokkur ný framboð taka þátt í kosningum, en ekkert þeirra fær mann á þing, heldur taka þau fylgi frá Samfylkingu og Vinstri grænum. Framsóknarflokkurinn vinnur góðan kosningasigur og Sjálfstæðisflokkurinn fær frekar slaka útkomu.  Þessir flokkar fá nauman meirihluta saman, og mynda ríkisstjórn að loknum kosningum, við lítinn fögnuð þjóðarinnar. Verðbólga minnkar á fyrri hluta ársins, en stígur í yfir 30% í árslok 2009.


2010:
Skelfilegt ár. Ríkisstjórn Sjálfstæðis/Framsóknar, umsnýr öllu sem fyrri ríkisstjórnin gerði. Allar stöður eru pólitíkst skipaðar samkv. helmingaskiptareglu flokkanna. Verðbólga nær 50% Eini atvinnuvegurinn sem blómgast sem aldrei fyrr er dópsala. Atvinnuleysi nálgast 20%. Glæpaalda gengur yfir höfuðborgarsvæðið. 20.000 manns flytja úr landi, aðallega af höfuðborgarsvæðinu. Samt er ástandið betra í sumum landshlutum, þar er þokkalegt atvinnustig, og minni glæpir og eiturlyf. Dæmi um slíka staði eru: Vestmannaeyjar, Hornafjörður, Dalabyggð. Snæfellsnes, Vopnafjörður. Fólk sækir á alla þessa staði úr eymdinni og glæpunum á Höfuðborgarsvæðinu. Hjónaskilnaðir slá öll met.


2011:
Miklar óeirðir í landinu. Byggingar og jafnvel heilu hverfin brennd í þessum óeirðum. Lögreglan ræður ekki við neitt, þótt hún sé nú öll búin skotvopnum. Útgöngubann í Reykjavík. Atvinnuleysi og þjóðargjaldþrot blasir við. Ríkisstjórnin er óstarfhæf. Daglegir götubardagar á seinni hluta ársins. Fengin óeirðalögregla búin vopnum frá Danmörku til að stilla til friðar, en það hjálpar lítið. 20.000 manns flytja úr landi.


2012:
Olíuleit norðaustan við Ísland. Miklar vonir bundnar við hana. Annars flest í ólesti. Vopnuð átök í Reykjavík. Jarðskjálfti gengur yfir Selfoss og Hveragerði og veldur miklum skemmdum. 25.000 flytja úr landi.


2013:
Niðurstöður olíuleitar valda vonbrigðum. Ekki hagkvæmt að vinna olíu, amk. miðað við nútíma tækni. Ísland er endanlega lýst gjaldþrota. Evran kostar 2000 krónur. 150% verðbólga. 20.000 flytja úr landi.


2014:
Ísland óskar eftir aðild að Evrópusambandinu EU. En þessari umsókn er hafnað í Brussel. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur við stjórn landsins, ríkisstjórn og forseti eru rekin úr störfum, og þingið leyst upp. Í lok ársins, taka Bandaríki Norður Ameríku USA. Við stjórn Íslands í umboði Alþjóðabankans. Obama forseti USA, er á þessum tíma kominn á kjörtímabil nr. 2. Það gekk vel að komast út ur kreppunni í USA. Staða Íslands undir stjórn USA, verður svipuð og staða Puerto Rico. Sem sagt öll stjórn frá Whasington, en bæjar og sveitarstjórnum verður leyft að starfa, undir ströngu eftirliti.


Á þessum tíma er íbúafjöldi Reykjavíkur um 50.000 og alls landsins um 200.000 í stað 320.000, árið 2008. Þriðjungur þjóðarinnar er fluttur úr landi.

Svo mörg voru þau orð.

Nafn:

Leó R. Ólason

Staðsetning:

Ýmist í Hafnarfirði eða á Siglufirði
Flettingar í dag: 144
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 317
Gestir í gær: 82
Samtals flettingar: 317768
Samtals gestir: 34813
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 05:53:19
clockhere

Tenglar

Eldra efni