13.11.2009 06:17

Þegar Steingrímur fór til Helvítis

593. Ég fékk eftirfarandi "stubb" sendan á dögunum í rafpósti og tek áhættuna á að skjóta honum hér inn þrátt fyrir að vita ekki hvaðan hann er "stolinn". Einhver svolítið andstyggileg hugljómun var til þess að mér datt í huga að hægt væri að myndskreyta þessa smásögu, svo ég viðaði að mér efni og skeytti því saman eftir kúnstarinnar reglum og aðlagaði hinum "rauða" þræði.
Ég vil taka það fram að mínar pólitískar skoðanir
koma þarna hvergi að málum, því ég er fyrir löngu orðið gegnumheilt (flokks)pólitískt viðriðni og algjörlega litblindur á þeim vettvangi. En svo vil ég líka bæta því við að ég hef það mikla trú á Steingrími að mér þætti líklegra ef til kæmi, að hann hefði betur líkt og Sæmundur Fróði forðum í samskiptum við þann eldrauða. - En sagan er skemmtileg...
                               
                                       

Steingrímur Sigfússon er kominn til himna þar sem hann hitti Lykla-Pétur.
Lykla-Pétur varð svolítið vandaræðalegur: "Eh, velkominn," sagði hann loks. "Þakka þér fyrir," sagði Steingrímur, "ég vissi að ég mundi enda hér".
"Nja," sagði Pétur , "þú hefur lifað sæmilega frómu lífi, eða þannig, svo við vildum gjarnan hafa þig hér en því eru ekki allir sammála. Þú ert umdeildur maður og það hafa fleiri áhuga á þér en við hér í himnaríki. Við urðum að halda fund með djöflinum þar sem þetta var rætt og það endaði með því að við gerðum samning við hann."
"Samning!" Hrópaði Steingrímur og var sýnilega brugðið.
"Það er nú ekki alslæmt," sagði Pétur, "en djöfullinn sagðist nú þegar hafa flesta vini þína svo við sömdum um að þú eyddir einum sólarhring í helvíti og öðrum hér hjá okkur í himnaríki og svo velur þú sjálfur hvar þú dvelur um aldur og eilífð.
Steingrímur maldaði svolítið í móinn en samningur er jú samningur svo Pétur vísaði honum á lyftuna, kvaddi hann og sagðist sjá hann eftir sólarhring. Steingrímur ýtti á hnapp merktan "helvíti" í lyftunni og seig svo langt, langt niður á við þar til lyftan stoppaði við kolsvarta hurð. Þegar dyrnar opnuðust stóð djöfullinn sjálfur fyrir innan. "Gamli vinur, vertu hjartanlega velkominn, gakktu í bæinn," sagði kölski.



Steingrímur fór inn og við honum blasti risastór golfvöllur. Margir af hans gömlu flokksbræðrum léku golf á vellinum eða stóðu í smáhópum og töluðu saman. Golfvöllurinn var fullkominn. Það var heitt í lofti og út um allt voru léttklæddar, snoppufríðar djöflastelpur sem færðu mönnum bjór og aðra kalda drykki. Steingrímur lék golf allan daginn og um kvöldið bauð Svavar Gestsson, honum í "gúrme"grill ásamt Indriða, Álfheiði og fleiri góðum vinum með öllu góðgæti sem hugsast gat. Fáum sögum fer af því hvernig Steingrímur eyddi nóttinni en sólarhringurinn í helvíti var fljótur að líða og morguninn eftir var honum vísað á lyftuna á ný.
Þegar Steingrímur kom aftur til himnaríkis var hann efins um ágæti þess staðar en það var samt sem áður tekið vel á móti honum. Hann var klæddur í englaföt og fengin harpa til að leika á. Hann eyddi deginum með því að ganga um milli skýjanna, hlustaði á fagran fuglasöng og borðaði ferska ávexti. Hann fékk reyndar í magann af ávöxtunum og það pirraði hann að sjá Davíð og Þorgerði sitja saman á skýi og leika á hörpur af mikilli innlifun.
Um kvöldið kom Pétur. "Nú ertu búinn að dvelja heilan sólarhring í helvíti og heilan dag hér í himnaríki. Ertu kannski búinn að ákveða þig?" Spurði Lykla-Pétur.
"Hmm," sagði Steingrímur, ég átti nú kannski ekki von á því en ég held að ég velji helvíti, þrátt fyrir allt. Það er heppilegasti staðurinn fyrir mig." Andlitið datt af Pétri og hann reyndi hvað hann gat að fá Steingrím ofan af ákvörðun sinni. En Steingrímur var harðákveðinn.



Á ný fór Steingrímur með lyftunni niður í helvíti og djöfullinn tók aftur á móti honum. Hann kippti Steingrími inn fyrir, en þar var þá allt öðru vísi umhorfs en daginn áður. Brennisteinsfnykinn lagði um allt og skerandi sársaukavein flokksbræðra hans og vina fylltu loftið. "En hvar er golfvöllurinn?" Spurði Steingrímur skelfdur á svip "og allar flottu djöflastelpurnar, bjórinn og grillið?
"Ah," sagði djöfullinn, "þú átt nú að skilja þetta manna best, í gær var kosningabaráttan í fullum gangi, en nú ertu búinn að kjósa!

Nafn:

Leó R. Ólason

Staðsetning:

Ýmist í Hafnarfirði eða á Siglufirði
Flettingar í dag: 137
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 161
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 317280
Samtals gestir: 34691
Tölur uppfærðar: 23.4.2024 19:32:50
clockhere

Tenglar

Eldra efni