15.12.2011 10:12

Fleiri fiskamerki


785. Fyrir nokkru voru hér til skoðunar hin keimlíku bæjarmerki Siglufjarðar og Aabenraa í Danmörku, og velt upp ýmsum einkennum þessara bæja sem eiga sér fleira sameiginlegt en virðist við fyrstu sýn. Því má svo bæta við að tengslin eru enn meiri en þar kom fram, því nýjasta innleggið í þá umræðu er að sá ágæti "Siglfirðingur og Dani í bland" Aage Johansen mjólkurfræðingur, er fæddur og uppalinn í nærsveitum Aabenraa.

Fyrri umfjöllun er á http://leor.123.is/blog/2011/11/09/550299/

En það eru greinilega fleiri fiskar í sjónum sem hafa einnig ratað í merki danskra þéttbýlisstaða. Baldur Árnason (bróðir Halla Árna í Sparisjóðnum) hafði samband við mig á dögunum og benti mér á bæjarmerki Nibe sem er lítið þorp við Limafjörð á Norður-Jótlandi. Það merki virðist þó ekki hafa eins fastmótað og niðurnjörvað form og yfirleitt gerist, því er til í nokkrum tilbrigðum eins og sjá má hér að neðan.












Nafn:

Leó R. Ólason

Staðsetning:

Ýmist í Hafnarfirði eða á Siglufirði
Flettingar í dag: 219
Gestir í dag: 50
Flettingar í gær: 317
Gestir í gær: 82
Samtals flettingar: 317843
Samtals gestir: 34830
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 11:20:53
clockhere

Tenglar

Eldra efni