11.10.2010 09:12
Fílapenslarnir
658. Þessi merkilega heimild rataði í hendur mínar á dögunum þegar ég átti leið um Aðalgötuna. Hún sýnir Fílapenslana eins og þeir voru skipaðir á árabilinu 91-92 sem er sennilega upphaflegi og því kannski "mest orginal" hópurinn.
Líklega eru þeir þarna að troða upp á fyrsta Síldarævintýrinu sem haldið var og er myndin því enn skemmtilegri fyrir vikið.
Þeir eru frá vinstri talið: Finni Hauks, Tommi Kára, Steini Sveins, Pétur Bjarna, Baddi Valtýs og Óli Kára.
Skrifað af LRÓ.