27.05.2011 12:56
Og svolítil viðbót um Önnu Láru
715. Svo verður að bæta við því allra nýjasta í afrekaskrá Önnu Láru. Í gær skrapp hún í sund með Gunnu Finna vinkonu sinni í Ólafsfjarðarlaug.
Það er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema að Anna Lára mun hafa látið
sig vaða í stóru rennibrautina sem er ekki af minni gerðinni eins og sjá má á
myndinni hér að ofan. Það væri heldur ekki í frásögur færandi nema að hún er "ekki
nema" 88 ára. - Geri aðrir betur.
Skrifað af LRÓ.