17.11.2014 23:48

Gaggó vest og hugurinn reikar til liðinna ára


965. Gamla skólahúsið sem stendur við Hlíðarveginn er nú orðið ákaflega dapurlegt og tómlegt að sjá. Það er eins og minnismerki í dulmögnuðum glæsileika sínum um löngu liðna daga. Um óteljandi stundir, sumar minnisstæðar, aðrar hálfgleymdar en er þó ennþá hægt að bjarga fyrir horn, draga fram í núið og rifja upp með góðum vilja og jákvæðu hugarfari. Góða daga þó okkur fyndist það alls ekki alltaf þá.

Þegar ég á leið fram hjá því skynja ég vel hina yfirþyrmandi og þrúgandi þögn sem hlýtur að umlykja allt innan dyra. Og ef ég á leið fram hjá því eftir að skyggja tekur horfi ég stundum upp í dimmuna í gluggunum, en þeir horfa þá bara á mig á móti eins og brostin augu með ísköldu tómlæti í einhverri undarlegri ofurkyrrð.

Einhvern vegin svo kaldir, tómir og holir að það er eins og það sé ekkert lengur þarna fyrir innan og svo er líka eins og þeir séu líka fullir af eftirsjá.

Einsemd hússins verður næstum því áþreifanleg.

 

Raddir kennaranna eru þagnaðar, viskan og viljinn til að búa okkur sem áttum að erfa landið undir framtíðina eru ekki lengur til staðar, ekki á þessum stað. Sömuleiðis kliðurinn í nemendunum á leið til stofu og auðvitað öll ærslin á göngunum í frímínútunum. En samt finnst mér ég ennþá heyra dauft bergmál frá æskuárunum og finna ofurlítinn tóbakskeim við útidyrnar þar sem sum okkar stóðu úti í hvaða veðri sem var og smókuðu sig. Fyrirmyndir óharðnaðra unglinga voru þá rétt eins og nú voru bæði margar og margs konar. Já sum okkar fengu jafnvel sígarettur út á krít í Lillusjoppu og borguðu þegar einhver peningur var til, fengu svo strax skrifað aftur þrátt fyrir að vera bara fimmtán ára og engum fannst neitt óeðlilegt við það. Fáeinum árum áður var ég líka stundum sendur niður í kaupfélag til að kaupa þrjár, stundum fjórar sígarettur í lausu. Þá var ég bara tólf ára og engum fannst það neitt óeðlilegt heldur.

 

Já og kennararnir, - þvílíkur hópur af heiðursmönnum. Jóhann skólastjóri, Hafliði, Guðbrandur, Palli, Hinni og fleiri og fleiri, svo komu þau Gunnar Rafn og Ína og ennþá fleiri eftir að skólagöngu okkar lauk á Hlíðarveginum og aðrir skólar tóku við hinu innra og andlega uppbyggingarstarfi, nú eða þá skóli lífsins.

Orð dagsins eru söknuður og eftirsjá.


Nafn:

Leó R. Ólason

Staðsetning:

Ýmist í Hafnarfirði eða á Siglufirði
Flettingar í dag: 353
Gestir í dag: 58
Flettingar í gær: 318
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 316320
Samtals gestir: 34490
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 18:17:13
clockhere

Tenglar

Eldra efni