Færslur: 2011 Október
30.10.2011 07:35
Össur veit auðvitað betur
765. Paul Krugman sem er
nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, var einn þeirra sem mættu á ráðstefnuna í
Hörpunni sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) og íslensk stjórnvöld stóðu fyrir
í sameiningu. Þar sagði hann að sveigjanleiki krónunnar hefði hj´alpað mikið við
að endurreisa íslenskt efnahagslíf. Hann varaði mjög við upptöku evrunnar og
sagði að Ísland myndi standa mun betur að vígi án hennar.
Svo má bæta því við að Martin
Wolf er aðalhagfræðingur breska stórblaðsins Financial Times og þykir býsna
góður í sínu fagi. Hann segir að við eigum ekki að ganga í Evrópusambandið enda
munum við ekki hafa nokkur áhrif þar.
Martin Wolf segir okkur að Evrópuþjóðirnar muni ásælast íslenskar auðlindir hér eftir sem hingað til og við gætum alveg eins gengið beint í Þýskaland.
-
Athyglisvert.
29.10.2011 14:19
Haustlitir
25.10.2011 16:33
Smáfjallið Keilir
763. Það máltæki er þekkt
sem segir að oft velti lítil þúfa þungu hlassi. Líklega á það ágætlega við um
fyrirætlanir mínar síðan um mitt ár 2007, þar sem smáfjallið Keilir stendur þá fyrir þúfuna og ég fyrir hlassið.
Það var í júnímánuði það fræga ár 2007 að Gámaþjónustugönguhópurinn lagði upp í þeim tilgangi að ganga á
Keili, og ekkert bennti til annars en sú ætlun myndi ganga eftir, bæði vel og
greiðlega.
Hún gerði það líka framan af, eða allt þar til við vorum komin upp í miðjar hlíðarnar. Þá fór skyndilega að hvessa og eftir ótrúlega stutta stund var komið hífandi rok. Ég tók samt nokkrar myndir, en þær reyndust allar vera mismunandi mikið hreyfðar þegar að var gáð og eins og sést hér.
Hífandi rok er þó sennilega
full lítið sagt, því veðrið var alveg stjörnuvitlaust og engan vegin stætt. Við komumst
eiginlega hvorki upp né niður fjallsöxlina sem er þó varla nokkur öxl, heldur miklu frekar eins og svolítið brot í skriðuna.
Húfan hans Magnúsar var löngu fokin út í veður og vind og hann barðist við að fjúka ekki sömu leið. Svo er ég ekki frá því að ég hafi heyrt í fjúkandi hraunmolum eða möl, svei mér þá.
Þegar lægði aðeins milli
hviða, létum við okkur gossa fram af "axlarbrotinu" og niður skriðuna. Þar sem
fjallið er ekki hátt, tók ekki langan tíma að komast niður að rótum þess, en þar
var hins vegar hæglætis veður. - Skrýtið.
Síðan þessi ferð var farin
hef ég margsinnis hugsað mér að ljúka við hafið verk, haska mér af stað, klára málið
og komast á toppinn. Það er nú ekki eins og sé verið að plana ferð á
Hvannadalshnjúk. En það hefur nú samt alltaf orðið eitthvað til þess að gera fyrirætlanir
mínar um að komast upp á Keili í góðu veðri og taka fullt af myndum, að engu. Nánast
í hverjum einasta mánuði síðastliðin fjögur ár, hafa hugsanir um alveg bráðaðkallandi og
löngu tímabæra Keilisferð verið að dúkka upp einhvers staðar í undirmeðvitundinni. Í gær mánudaginn
24. okt. virtist tækifærið svo hreinlega hafa fæðst með dagrenningunni. Um hádegisbilið
var ég ákveðinn í að drífa mig af stað, en stundu síðar var ég ekki alveg eins viss. Auðvitað
er margt sem þarf að
Ég staldraði aðeins við og
virti fyrir mér hraunið, mosann og fjallahringinn. Ótrúlega flott allt saman í
haustlitunum og glampandi sóskininu. Ég smellti af nokkrum myndum í átt að þéttbýlinu
og Esjunni, Akrafjallinu og Skarðheiðinni.
Ég gekk af stað milli hraunbreiðunnar
og misfellunnar í landslaginu sem er eins og langur varnargarður, hannaður til
að stöðva hraunrennsli. Hinum megin og sunnan við hana (misfelluna) eru hinir
rennisléttu og grösugu Höskuldarvellir og enn sunnar Trölladyngja. Þangað ætla ég
líka einhvern tíma að fara.
Ég gekk áfram og var nú
kominn alveg suður fyrir Keili. Mig minnti að einhvers staðar hérna ætti að sjást
hvar gengið er upp á hraunið í átt að fjallinu, en vegna þess hve sólin var orðin lágt á lofti, var erfiðara að átta sig á umhverfinu. Skuggarnir voru orðnir ótrúlega langir og mjög dökkir, og sinan svo undarlega rauðleit.
Það vakti athygli mina hve
mikið var af rjúpu á þessu svæði, og ég sem hélt að hún væri orðin með allra
sjaldgæfustu fuglum. Alla vega hefur umræðan um verulega takmörkun á veiðum frá
því sem áður var, bent til slíks. En þar sem ég var nú kominn nokkuð vestur fyrir
fjallið þótti mér sýnt að ég hefði gengið fram hjá slóðanum yfir hraunið. Það
var því um fátt annað að ræða en að demba sér yfir það þaðan sem ég var staddur
og það slóðalaust. Að öðrum kosti myndi ég líklega ekki enda göngu mina fyrr en í Grindavík.
Ekki verður sagt að ég hafi
farið stystu eða greiðfærustu leið að
settu marki, en þetta hafðist nú allt saman. Reyndar var klukkan orðin heldur
mikið og krókurinn hafði ekki farið vel með tímaáætlunina. En gat ég snúð við
þegar stóð við rætur fjallsins? Nei, það var auðvitað alveg af og frá,
þó það hefði eflaust verið það skynsamlegasta í stöðunni vegna orðinna tafa. Það var
greinilega farið að rökkva, en þetta var nú ekki svo hátt. Klifrið upp er aðeins
250 metrar á hæðina, þó toppurinn sé að vísu 379 m yfir sjávarmáli. Ég lagði af
stað upp skriðuna að sunnanverðu og dró ekkert af mér. Ég vissi að þetta var
kapphlaup við klukkuna og í leiðinni birtuna. Fyrir mér er það nefnilega til lítils
að klifra upp á fjall ef ekki er hægt að taka myndir. Ég var næstum því
sprunginn af mæði þegar ég stóð á toppnum og smellti af í áttina að Keflavík.
En stundin hafði gengið mér úr
greipum og birtan með. Það var alveg sama hvaða stillingu ég prófaði, allar
myndir urðu beinlínis vondar eins og sjá má. Ég hefði líklega getað náð
einhverju vitrænu í flöguna ef ég hefði haft þrífótinn meðferðis og tekið myndir
á tíma, en slíku var ekki að heilsa því hann var heima og meira að segja geymdur
á bak við hurð. Það dimmdi hratt og ég sem átti eftir að ganga til
baka yfir flatlendið, hraunið, eftir lægðinni milli hraunsins og misfellunar og
að stæðinu. Það var því ekki um annað að ræða en drífa sig af stað niður. Ég
renndi mér fótskriðu langleiðina niður á jafnsléttu og skokkaði síðan af stað. Leiðin
að hrauninu var vörðuð og ég sá alltaf næstu vörðu bera við himin, því þær voru
staðsettar þar sem landið var aðeins hærra en næsta umhverfi. Alveg frábær pæling
þessar vörður.
Ég var nú kominn að hrauninu
og sá í skini tungls og stjarna að slóðin var aðeins dekkri en nánasta umhverfi.
Ég gaf mér þá tíma til að staldra við og smella lokamyndinni af Keili þar sem
hann bar eins og kolsvarta og risavaxna hundaþúfu við dökkbláan himininn sem var með appelsínugulan kraga. Síðan
fetaði ég mig áfram eftir slóðinni. Ég skal viðurkenna að mér fannst ekkert sérlega
notalegt að sjá svört göt ofan í hraunið. Þar undir gat bæði verið pínulítið holrúm
upp á fáeina sentímetra, en líka eitthvað miklu stærra. Þetta gekk nú samt allt
saman bærilega til að byrja með, en á endanum týndi ég auðvitað slóðinni. Eftir það var
farið mjög hægt yfir og stafirnir mikið notaðir til að kanna hvar best væri að
drepa niður fæti. Hraunið er reyndar úfnara næst misfellunni en á móti kom að
það var stutt eftir. Ég var mjög feginn þegar ég var skrönglaðist niður af
hraunbrúninni og sá móta fyrir kindaslóðinni sem ég gat síðan fylgt alveg niður að bílastæði.
Það var komið kolniðamyrkur og ég gekk næstum því á bílinn þegar ég kom að
honum. Yfirleitt er talið hæfilegt að gefa sér 2-3 tíma til Keilisferðar, en ég
var að þessu sinni heila 5 tíma. Það er þó ekki allt, því enn er tilgangnum ekki náð.
Það á eftir að taka næstum allar myndirnar. Er ekki annars sagt að allt sé
þegar þrennt er?
22.10.2011 05:26
Fyrsti bíllinn
762. Fyrir fáeinum dögum
rakst ég á Sillu Gunnars og Huldu Kobbelt niður við mínikringluna Fjörð hér í
Hafnarfirði. Við tókum auðvitað tal saman eins og "burtfloginna" er siður, og
ræddum bæði nútímann hér syðra og fortíðina á heimaslóðum. Silla upplýsi mig um
að hún ætti einhvers staðar í fórum sínum mynd af fyrsta hljómsveitarbílnum
okkar strákanna í Frum, og ég spurði þá hvort ekki væri möguleiki að fá að
skanna heimildina. Hún sagði það sjálfsagt mál, ef hún rækist á hana. Það var
svo í vikunni að ég fékk bréf í póstkassann af gömlu gerðinni, þ.e. ekki með
glugga eins og flest bréf eru orðin nú til dags, heldur frímerki, gamaldags
stimpli og utan á það var handskrifað nafn mitt og heimilisfang. Ég varð bæði
hissa og spenntur, því svona póstur er orðinn afar fátíður svo ekki sé meira
sagt og enn er ekki kominn tími jólakorta. Upp úr umslaginu kom umrædd mynd af
gamla rúgbrauðinu sem ég keypti af Ingimar Láka forðum daga. Þetta var bæði
mikil og góð sending fyrir utan hvað heimildin var kærkomin. Bestu þakkir
Silla.
Sögu bílsins kann ég að
einhverju leyti, en hún er líklega frekar óhefðbundin a.m.k. á köflum. Seint á sjöunda áratugnum átti kaupfélagið Wolksvagen rúgbrauð sem Toni notaði til að sendast með
vörur til viðskiptavina þess, auk þess sem það var nýtt í ýmis konar snatt
eins og gengur. Með árunum fór gripurinn að lýjast og lokum var hann seldur
fyrir slikk og fjárfest í Land Rover jeppa sem tók við hlutverki hans. Kaupandinn
var stórmúsíkantinn Gerhard Schmidt og menn veltu eitthvað fyrir sér hvað sá góði maður hyggðist gera með þennan útkeyrða bíl. Aðspurður svaraði Gerhard fáu um það,
en varð yfirleitt svolítið íbygginn á svipinn og eyddi gjarnan talinu. Sumarið
eftir fór hann í frí til Þýskalans og tók bílinn með sér. Að einhverjum vikum
liðnum kom hann aftur til landsins ásamt bílnum sem nú virtist heldur betur hafa fengið
andlitslyftinu. Ýmsir urðu til þess að dást að vinnu þýsku bílasmiðanna, því
allt ryð var horfið og bíllinn virtist vera eins og nýsprautaður, en þó ekki
alveg. Einhverjir gáfu það í skyn að eitthvað væri nú undarlegt við þessar
endurbætur og veltu upp þeim möguleika að þetta væri bara alls ekki sami
bíllinn. Ég skal ekkert fullyrða neitt um það, en það kvisaðist út að
einhverjir eftirmálar hefðu orðið vegna meints "bílainnflutnings" að hálfu tollyfirvalda. Einhverju
sinni þegar ég mætti í píanótíma til meistarans, áræddi ég að spyrja hann út í
bílamálin, en fór þó mjög varlega í það. Gerhard hló svolítið vandræðalega og sagði
þetta ekki hafa verið eins góðan bisness og til hefði staðið, en spurði síðan í beinu framhaldi;
"hvað ætluðum við svo að spila í dag".
Gerhard átti bílinn ekki
mjög lengi og seldi hann Ingimar bakara. Ingimar átti hann í tvö eða þrjú ár,
en auglýsti hann til sölu þegar hann hætti að baka á Hvanneyrarbrautinni. Það
var þá sem ég keypti hann, því við ungpoppararnir vorum farnir að spila svolítið
á alvöruböllum og vantaði því hljómsveitarbíl. Það mun hafa verið um vorið eða
snemmsumars árið 1972, en þá var ég ennþá aðeins sextán ára. Við Guðni Sveins
gítarleikarinn í bandinu vorum á þessum tíma nágrannar og gríðarlega miklir mátar, sem við
erum reyndar enn þó minna fari fyrir því. Hann sem er fæddur í janúar var þá
kominn með bílpróf, en ég mátti bíða til næsta árs þar sem ég er ekki fæddur
fyrr en í nóvember, og á þessum tíma var ekki boðið upp á að taka bílpróf á
Siglufirði nema yfir hásumarið. Það var því ákveðið að ég keypti bílinn, en
Guðni yrði ökumaðurinn þar til ég gæti tekið við því embætti. Ég tók því út
fermingapeningana mína, fékk svolitla viðbótaraðstoð frá afa ög ömmu og keypti
bílinn. Kaupverðið var kr. 150.000 eða hundraðogfimmtíuþúsundkall. Sumarið og
haustið var vægast sagt skemmtilegur tími, það var víða farið og margt brallað.
Um veturinn kláraðist hins vegar vélin sem var öllu verra mál. Það virtist því
um fátt annað að ræða en fjárfesta í svokölluðum skiptimótor frá Heklu sem var
stórmál fyrir síblanka stráka sem "slepptu aldrei helgi" á þessum tíma. En í
þessum vandræðum mínum barst mér hjálp úr óvæntri átt. Reynir Gunnarsson sem þá var
nýfluttur í bæinn og vann með mér í frystihúsinu við Vetrarbrautina, bauðst til
að aðstoða mig við að
16.10.2011 14:11
Stóri slagurinn og eldsvoðinn á Hótel Höfn
761. Úrklippuna hér að ofan fann ég í Lesbók Morgunblaðsins frá 23. ágúst 1959. Ég minnist þess að í mínu ungdæmi heyrði ég oft talað um "stóra slaginn" á Höfninni, en það var ekki fyrr en löngu síðar að ég gerði mér grein fyrir því hve mikið gekk þarna á. Ég minnist þess líka að hafa á árum áður heyrt mér talsvert eldri menn hafa haft þau orð um ýmsar fréttir sem birtust af þessum atburði, að ekki væri alltaf allt sagt. Stundum væri reynt að fegra þátt lögreglunnar og því jafnvel haldið fram að gasnotkunin hefði hreint ekki verið eins nauðsynleg og ýmsir vildu vera láta. Einn lögregluþjónanna ellefu hefði einfaldlega "panikað" og það hefði ekki verið fyrr en eftir að sá annars ágæti maður hleypti af fyrsta táragasskotinu, að allt varð endanlega vitlaust. Það var jafnvel gengið svo langt að halda því blákalt fram að ef hann hefði ekki gert það, þá myndi tjónið ekki hafa orðið mikið meira en þessi eina rúða sem var ástða þess að lögregla var kölluð til. En það er nú stundum svo margt sagt og yfirleitt mest eftir á.
Á árunum upp úr 1970 vann ég í frystihúsi S.R. við Vetrarbraut, en þar var kaffistofan fyrir mér eins og risastór gluggi til fortíðar. Þar heyrði ég margar krassandi og stórskemmtilegar sögur og menn skiptust á skoðunum, stundum ekki alveg hávaðalaust. Þarna voru margir og miklir snillingar saman komnir, bræðurnir Bjössi og Jón Frímannssynir, Siggi frá Dalabæ, Hallur Garibalda, Sigurjón Sigtryggs, Jóhannes Hjálmars, Jóhannes Jóseps, Friðrik Márusson, Hafsteinn Hólm, Kári Sumarliða og Ingimar Láka svo einhverjir séu nefndir. Ég man eftir að a.m.k. einu sinni var "stóri slagurinn" tekinn fyrir á Kaffistofunni og menn skiptust í nokkuð afgerandi hópa þegar rætt var um hver hinn raunverulegi sökudólgur var.
Á síldarævintýrinu 2010 átti Gunnar Smári alveg frábært
viðtal við Ragnar Pál listmálara og gítarleikara um "stóra slaginn" á
Höfninni. Ragnar mundi þetta allt saman greinilega mjög vel og sagði bæði frá
aðdragandanum og því sem á eftir gekk. Eitt af því sem kom einkar vel fram í
frásögn hans var, hve eyðileggingin var gríðarleg og að almennt var talið að langan
tíma myndi taka að
Þessi "heimildamynd" birtist í Alþýðublaðinu þ. 28. júlí og þar fer vissulega ekkert á milli mála að þarna hefur gengið mikið á. Dansleikurinn hófst um kvöldið laugardaginn 25. júlí og ekkert bennti til annars en þetta yrði bara venjulegur en að vísu óvenju fjölsóttur dansleikur. Ölvun mun þó hafa verið í meira lagi, eða kannski fannst mönnum það bara vegna fjöldans, en lætin munu svo hafa svo hafa byrjað þegar nokkuð var komið fram yfir miðnættið og hinn skráði dagur "stóra slagsins" er því 26. júlí.
Í næst, næsta húsi og örlítið sunnar í Lækjargötunni var staðið á bak við gluggatjöldin í myrkvuðum herbergjunum og fylgst náið með atburðarrásinni. Til gamans má svo geta þess að þá sömu nótt meðan slegist var úti á götunni og nánast undir húsveggnum, fæddist Erla Gull inni í því sama húsi.
Fimmtudaginn 23. júlí 1959 fyrir birtist þessi auglýsing í Mogganum. Ég hafði aðeins heyrt talað um Palla á Höfninni sem þann mann sem rak hótelið og engan annan. Hann var í mínu minni sá sem var alltaf nefndur um leið og hótelið og hótelið alltaf í sömu setningu og hann. En hver var þá þessi Guðrún Matthíasdóttir sem var að auglýsa heitt og kalt vatn á öllum herbergjum og hið vinsæla kalda borð. Það er oft haft á orði að sjaldan falli eplið langt frá eikinni og það á ágætlega við um Palla og dóttir hans Birgittu, en Bigga Páls rekur í dag Hótel Hvanneyri eins og bæjarbúar vita. Ég spurði hana hver Guðrún Matthíasdóttir væri og hún vissi auðvitað allt um það. Guðrún var ekkja Gísla fyrrum hótelhaldara sem lést árið áður í eldsvoða ásamt syni sínum. Ég sem hélt alltaf að Palli á Höfninni hefði verið eigandi hótelsins, sennilega hve nafn hans var alltaf nátengt því og rekstri þess, var nú leiddur í allan sannleika um að svo hafði ekki verið. Eftir að Gísli lést á svo sviplegan hátt sem raunin varð árinu fyrir "stóra slaginn", rak Palli hótelið fyrir Guðrúnu í hartnær áratug, eða þar til Steinar Jónasson keypti það.
Að morgni dags miðvikudaginn 19. mars 1958, kom upp mikill eldur á miðhæð hótelsins sem magnaðist mjög fljótt. Eftirfarandi frásögn birtist í Alþýðublaðinu strax daginn eftir.
"FEÐGAR BÍÐA BANA Í ELDSVOÐA Á SIGLUFIRÐI.
Tvær efstu hæðirnar af Hótel Höfn brunnu til ösku í gærmorgun. Sex ára drengur brann inni, en faðir hans lést af brunasárum sem hann hlaut við að reyna að bjarga drengnum.
Stórbruni varð á Siglufirði í gærmorgun, þegar tvær efri hæðir á Hótel Höfn brunnu til ösku. Eigandi hótelsins, Gísli Stefánsson, og sonur hans, sex ára gamall, fórust í eldsvoðanum. Kona Gísla og tvö börn þeirra sluppu út með naumindum.
Hótel Höfn var þriggja hæða forskalað timburhús. Var nýbúið að byggja við það og standsetja neðstu hæðina. Hótelstjórinn, Gisli Stefánsson, bjó á miðhæðinni ásamt fjölskyldu sinni, konu og fjórum börnum. Einnig bjó einn maður á efstu hæð hússins. Eldsins varð vart um kl. 8 í gærmorgun og magnaðist hann mjög fljótt. Elzti sonur hjónanna, 13 ára gamall, var nýfarinn í skóla, eða um 15 mínútum fyrir átta, og þá bar ekki á öðru en að allt væri með felldu, en kl. 8 var húsið alelda. Kona Gísla komst út um aðaldyrnar við illan leik og rétt á eftir var yngsta barni hjónanna, 5 ára, bjargað út um aðaldyr. Skömmu síðar tókst öðru barni, 11 ára gamalli stúlku, að komast út um glugga á austurhlið hússins með naumindum.
FLEYGÐI SÉR ÚT UM GLUGGA
Gísli mun hafa snúið við til svefnherbergisins til að ná í son sinn Stefán, sem varð 6 ára daginn áður. Þar hefur eldurinn gosið á móti honum og mun hann aldrei hafa náð til drengsins, sem fórst í eldinum. Meðan þessu fór fram varð húsið alelda. Urðu þeir, sem unnu að slökkvistarifinu, varir við að Gísli braut glugga á annarri hæð og kastaði sér út. Var hann þá all mikið brunninn og hafði skorizt mikið af glerbrotum. Var hann þegar fluttur í sjúkrahús, lézt hann þar skömmu seinna.
ALELDA Á 5-10 MÍNÚTUM
Þrátt fyrir að slökkviliðið kom á vettvang og hóf slökkvistarf örskömmu eftir að eldsins varð vart, fékk það ekki við neitt ráðið, því húsið varð alelda á 5-10 mínútum. Tókst með naumindum að verja næstu hús, þrátt fyrir að veðurvar mjög gott þegar þetta gerðist. Sem fyrr segir var Hótel Höfn forskalað timiburhús, en á milli fyrstu og annarrar hæðar var steingólf, sem eldurinn komst ekki í gegn um. Eldsupptök eru ókunn, en rannsókn stendur yfir."
Þetta var hörmulegur atburður, mikil sorg ríkti í bænum og fánar voru hvarvetna dregnir í hálfa stöng. Gisli sem var vinsæll maður og vel látinn, fæddist að Smyrlabergi í Húnavatnssýslu, missti föður sinn mjög ungur og þurfti snemma að sjá sér farborða. Hann var enn á unglingsaldri þegar hann hóf störf hjá Ríkisskipum, en eftir að hafa starfað þar um nokkurra ára skeið lærði hann til þjóns á Hótel Borg. Árið 1943 flyst hann til Siglufjarðar ásamt konu sinni og tók þá við rekstri að Hótel Hvanneyri. Einhverjum árum síðar kaupar hann Hótel Höfn sem hafði þar til hann eignaðist það, heitið Hótel Siglunes. Seljandinn var Hinrik Thorarensen sem mun hafa byggt það. Gísli rak eftir það bæði hótelin eða allt þar til þessi hræðilegi atburður átti sér stað.
16.10.2011 13:41
frigid
14.10.2011 21:19
"Rangur misskilningur" eða bara til að pirra
759. Mér brá svolítið í brún þegar ég sá nafn mitt notað í auglýsingu sem birtist í formi fréttar á sksiglo.is í dag. Vart er hægt að skilja hið ritaða orð á annan veg en að ég hefði einhverja aðkomu að auglýstum tónleikum í Kópavogi, en svo er alls ekki. Framsetning pistilsins er mjög villandi, ástæða þess er mér illskiljanleg, innihaldið virkar allt eins og frekar vafasamur hálfsannleikur og í henni á ég hvorki heima né vil vera. Ég hafði samband við Guðmund Skarphéðinsson vefstjóra, kvartaði yfir færslunni og óskaði eftir að fá að birta athugasemd við hana, en ekkert hefur þó gerst á þeim bæ enn sem komið er. Ég átta mig ekki alveg á hvort hér er á ferðinni hugsunarleysi, eða hvort verið að stríða mér svolítið. Sé svo, þá hefur það kannski tekist ágætlega.
Slóðin á fréttina er http://siglo.is/is/news/af_litlum_neista_verdur_oft_mikid_bal/
Hið rétta er að Halli Gunni hefur nú vikið fyrir Grími Sigurðssyni og ég fyrir Gunnari Gunnarssyni þar sem ekki samdist um launamálin. Og fyrir þá sem ekki vita, þá var umræddur Gunnar um tíma tengdasonur Ingólfs í Höfn þó það sé allt annað mál.
Forsaga málsins er sú að í Bátahúsinu var gert upp samkvæmt hlutaskiptareglu þar sem Þuríður hafði einn og hálfan hlut fyrir sitt framlag og við vorum fyllilega sáttir við það. Þegar spilað var í Salnum í júní s.l., fór hún fram á hækkun og var þá með tvo hluti og við strákarnir sættum okkur líka alveg við það. En þegar það var fyrirséð að uppselt yrði á septembertónleikana í Salnum, varð ég meira en lítið hissa þegar ég fékk tölvupóst þar sem söngkonan bauð okkur strákunum að spila undir hjá sér fyrir fjörutíuþúsundkall á mann. Rökin voru m.a. eftirfarandi:
"Ég hef borið töluverðan kostnað af tónleikunum okkar og þrátt fyrir að fatnaður nýtist e-ð áfram hefði ég ekki gert þau innkaup ef ekki hefðu komið til tónleikarnir, og flest fötin eru af þeim toga að þau nýtast mér aðeins á sviði. Til að gefa ykkur einhverja mynd af beinum útlögðum kostnaði, þá er hann þessi:
Fatnaður og skór v. Græni
hatturinn: 48.000
Kjóll og tilh.v. Bátahúsið: 37.000
Slá, buxur, skór v. Salurinn 57.000
Hár; litun, blástur v. Salurinn 14.000
Förðun v. Salurinn 10.000
Texti v. skrifa f. tónleikanna 10.000
Upp í málverk, Jóhann 30.000
Alls 206.000
Að auki var töluverð vinna við tölvuna s.s e-mail sendingar á vini og ýmsa póstlista, Events o.fl. á Facebook, Viðtöl í útvarpi og blöðum, textaleit, höfundaleit og heimildaöflun vegna kynninga haf tekið sinn tíma fyrir utan það sem við höfum unnið sameiginlega fyrir og við æfingar. Nú á að taka upp lagið MINNINGAR til að nota í auglýsingaskyni og eitthvað mun það kosta. 150.000 hefur verið nefnt."
Mér þótti undarlegt að við
strákarnir ættum nú að fara að klæða prinsessuna, og auk þess að fjármagna upptöku
sem síðan yrði alfarið hennar eign. Mér þótti líka fullmikil launalækkun að
fara úr 90 og ofan í 40 þúsund fyrir giggið. Ég afþakkaði því boðið og sagði
mig frá viðfangsefninu. Félagar mínir létu þetta þó yfir sig ganga mér til
mikillar furðu, þrátt fyrir að þeir hafi náð að semja um smávægilega slökun á
kröfum söngkonunnar. En ég taldi málinu lokið hvað mig varðaði, vonaði að þau
lok yrðu hávaðalaus og hafði á þeim tímapunkti fyrir mitt leyti ekkert meira um
það að segja. Ég varð því aftur og enn meira hissa að heyra Þuríði senda mér
létt skot í viðtali á rás 2. þar sem hún sagði að nú yrðu síðustu tónleikar toppaðir
og nefndi í framhaldinu til sögunnar nýjan hljómborðsleikara. Mér fannst þessi
sending hreinn óþarfi og er líka svolítið hissa á hvað mínir fyrrum félagar eiga
auðvelt með að kyngja stoltinu fyrir sitt leyti. Skýringin hlýtur að vera í samræmi við það sem
Birgir skrifar í fésbókarfærslu á dögunum, en þar kvaðst hann vera tilbúinn til að
14.10.2011 11:45
Trúarrit og helgisögur
758. Það hefur líklega ekki farið fram hjá mörgum
Siglfirðingnum að nýjasta fréttablað
félagsins okkar er komið út, stærra, meira, innihaldsríkara og skemmtilegra en
nokkru sinni fyrr og er þá ekki nema örgrunnt í árinni tekið. Allt yfirborð boðskapsins
sem þar er að finna, er að upplagi flosmjúkt og innblásið af rómantík liðins
tíma, en undirtónninn í senn súrssætur og rammur rétt eins og sú taug sem aldrei mun slitna. Enda
mun hún auðvitað ekki
Það er fjarri mér að
gagnrýna fortíðarþrána og allar þær góðu minningar sveitunga minna sem í
blaðinu er að finna. Enda er ég hvort eð er fullkomlega vanhæfur til slíks vegna þess hve málið er mér skylt, auk þess sem ég er yfirlýstur fylgismaður þess að hampa heimaslóðunum hvernær sem tækifæri gefst ásamt öllu því sem þeim tengjast.
En það var haft eftir einum af mætari mönnum sem býr nyrðra, að eftir lesturinn hefði honum það ferið fullkomlega ljóst að þarna væri komið það trúar og helgirit Siglfirðinga sem væri vel til þess fallið að vera þeirra leiðarstjarna til framtíðar. Annar er sagður hafa tekið undir þá skoðun og taldi rétt að finna ritinu stað uppi í hillu milli Biblíunnar og sálmabókarinnar.
En hvað sem slíkum vangaveltum
líður og að öllu gríni slepptu, þá verður ekki annað sagt en að vel hafi tekist
til og við höldum áfram að vera stolt af uppruna okkar.
06.10.2011 15:00
Næst síðasta ferð ársins á Sigló
04.10.2011 06:53
Bubbi á Sigló
756. Bubbi Mortens sótti Siglufjörð
heim á dögunum og skrifar ákaflega fallega um heimsóknina á pressan.is,
enda er engin ástæða til annars. Bærinn er eins og þeir vita sem til þekkja gullfallegur og Bubbi fékk
ágætar móttökur.
Hann skrifar: "Mikið var ég glaður þegar ég gekk inn í
salinn og sá að það var húsfyllir."
Að sjálfsögðu var hann
glaður, húsfyllir þýðir nefnilega fullt af peningum. Hvaða kapítalisti yrði yrði
ekki kátur með slíkt?
Hann talar um að það hafi verið öskrandi rigning og rok, en svo bætir hann við:
".ég er ekki frá því að bærinn hafi
fríkkað".
Vá maður, hver sér það ekki og það jafnvel í hvaða veðri sem er?
En kannski man hann ekkert sérstaklega vel hvernig bærinn leit út þegar hann kom síðast.
Mín fyrstu og einu kynni af Bubba komu til haustið 1981, þegar hann ásamt nýstofnaðri hljómsveit sinni Utangarðsmönnum spilaði á Höfninni. Ég var einn af þeim sárafáu sem mættu á ballið og fannst bandið sem slíkt býsna athyglisvert og fílaði það vel. En mér var hins vegar ekki boðið í eftirpartýið, líklega af því að ég var strákur.
Á þessum tíma var ég að feta
mín allra fyrstu spor í vídeóbransanum. En þá var myndefnið hlutfallslega mun
dýrara í innkaupum en síðar varð og titlafjöldinn ekki orðinn upp á nema u.þ.b.
60 spólur. Snemma kvölds fyrir ballið var bankað upp á hjá mér og fyrir utan
stóðu fjórir piltar sem spurðu hvort ég gæti ekki leigt þeim nokkrar myndir.
Jú, það var auðvitað auðsótt og eftir svolitlar vangaveltur höfðu þeir valið
sér fjórar myndir. Ég spurði þá þann sem virtist fara fyrir hópnum hvaða nafn
ég ætti að skrifa fyrir leigunni. Hann kunni því greinilega ekki vel að ég
skyldi ekki vera með það á hreinu og svaraði stuttaralega að það væri Bubbi
Mortens. Daginn eftir var myndunum ekki skilað og ekki heldur daginn þar á eftir.
Ég hafði þá samband við hótelið og spurðist fyrir um hvort eitthvað hefði
hugsanlega verið skilið eftir sem tilheyrði mér, en ekkert slíkt fannst þrátt
fyrir talsverða leit. Þeim á hótelinu þótti þetta miður og flettu upp á
símanúmeri leigjandans í bókinni þar sem pantanirnar voru skráðar ásamt
tilheyrandi upplýsingum. Næstu dagana á eftir var reynt að ná í pilt og það
hafðist á endanum. Jú hann kannaðist vel við að hafa leigt einhverjar myndir
þarna og hann hefði farið með þær suður. Þegar spurt var um hvenær og hvernig
hann ætlaði að skila þeim auk þess að greiða eitthvað yrir aukadagana, varð fátt
um svör. Hann upplýsti í staðinn að hann væri í ágætu sambandi við Steinar Berg
og hefði lofað honum að líta eftir ólöglegu myndefni þar sem hann ætti leið um.
Honum var þá bent á að myndirnar sem hann hefði undir höndum hefðu ekkert með
umboð Steinars Berg að
- 1