Færslur: 2011 Nóvember
27.11.2011 13:23
Á Búálfinum
776. Það er alltaf gaman að fá óvæntar sendingar ef þær eru af skemmtilega taginu. Ég var að fá nokkrar myndir í pósti sem var einmitt mjög óvænt, en þær voru teknar af einum dansgestanna í Búálfinum þar sem við Axel spiluðum um helgina. En það er annað mál að ég get ekki neitað því að ég vissi ekki hverju ég mátti eiga von á þegar við réðum okkur á þennan lókalpöbb, sem er í Hólagarði í Breiðholti. En Búálfurinn reyndist hinn vinalegasti staður og það sama má segja um eigandann hann Bjarna sem er Ísfirðingur að upplagi, en það er auðvitað bullandi plús. Gestirnir eru kátt fólk sem gjörnýttu parketið á dansgólfinu þegar leið á kvöldið. Í ofanálag var þarna svolítill slæðingur af Siglfirðingum sem var nú ekki verra.
En hér má sjá myndirnar frá nonum Denna.
25.11.2011 20:29
Snú snú í yfirstærð
775. Þau eru greinilega glöð
og ánægð með tilveruna þessi burðarvirki þar sem þau eru í risa snú-snú. Eitthvað annað en sá krappi dans sem félagar þeirra sem starfa fyrir Orkuveituna hafa þurft að stíga.
Líklega eru þau í vinnu hjá Landsvirkjun eða Rarik.
25.11.2011 20:10
Manstu gamla daga
774. Árið 1992 eða sama ár
og annað Síldarævintýrið var haldið, var einn þáttanna "Manstu gamla daga" sem
Helgi P. stjórnaði, tileinkaður síldinni og Siglufirði. Í honum komu fram
söngvararnir Sigrún Eva Ármannsdóttir, Berti Möller, Stefán Jónsson, Margrét
Eir Hjartardóttir, Ari Jónsson að ógleymdum þeim félögum Ragnari Bjarnasyni og
Ómari Ragnarssyni. Aðal spjallgestirnir voru þeir Örlygur Kristfinnsson og
Theodór Júlíusson, sem í mörg ár var framkvæmdastjóri Síldarævintýrisins og
stóð sig með mikilli prýði í því hlutverki.
Í salnum má sjá margan Siglfirðinginn svo sem Hallvarð S. Óskarsson, Gunnar Trausta, Birgir
Ingimars, Billu Lúthers svo einhverjir séu nefndir. Einnig er sýnt frá einni
glæsilegastu söltunarsýningu sem sett hefur verið upp á nyrðra. Endilega kíkið á
þennan frábæra þátt. Slóðin er: http://www.youtube.com/watch?v=rcEU7i9Zw8c
21.11.2011 23:14
Nú er liðin kattartíð
773. Í dag kvaddi þennan heim hinn stórglæsilegi norski skógarköttur Tímon, en hann fékk nafn sitt strax á sínu fyrsta kattarári frá vinslæum marketti sem var óaðskiljanlegur vinur vörtusvínsins Púmbu. Hann kom inn á heimilið aðeins átta mánaða gamall fyrir rúmum sautján árum síðan. Heimsóknin átti að vera stutt, því hann var á leiðinni í hina endanlegu svæfingu, rétt eins og fóstbróðir hans hafði komið skömmu áður. Örlögin höfðu greinilega önnur plön en þáverandi aðstandendur hans, áætlanir breyttust snarlega eftir ærsl og leik um gólf og húsgögn og hann fór aldrei lengra, - fyrr en núna. Hann gerðist í kvölfarið fullgildur fjölskyldumeðlimur fyrir fullt og fast og var það alla sína kattartíð, allt til hinsta dags.
Fyrir var á heimilinu Tómas
Brjánn Margrétarson og þeir uppeldissynir og fóstbræður áttu samleið í blíðu og
stríðu næstu fimmtán árin, eða þar til sá síðarnefndi kvaddi þennan heim saddur
lífdaga um mitt sumar 2008 eftir að hafa fengið hjartaáfall og barist við ýmsa
krankleika því tengda. Auðvitað áttu þeir félagarnir það til að taka heilmiklar
rispur og stundum hélt ég að nú myndu þeir hreinlega ganga hvor frá öðrum, en
þeir náðu alltaf saman á endanum og urðu hinir mestu mátar á ný. Þegar Tómas
var horfinn á braut var hans leitað í nokkurn tíma, en þegar hann fannst ekki
tók við tímabil deyfðar og söknuðar. En sagt er að tíminn lækni öll sár og
vonandi gerði hann það einnig í þessu tilfelli. Hjartnæm og tregafull eftirmæli Tómasar er að finna á slóðinni http://leor.123.is/blog/2008/07/13/268936/
Tímon var stundum strítt
pínulítið og þá gjarnan uppnefndur "Grái fiðringurinn" vegna háralitsins, en
hann tók því aldrei illa og ekkert benti til þess að hann erfði slíkt við þá
sem það gerðu. Það er auðvitað til marks um framúrskarandi gott geðslag hans og
umburðarlyndi.
Sá grái fékk í það skiptið
engar sérstakar þakkir fyrir uppátækið þó hann sjálfur hafi eflaust haft sína
skoðun á því máli, og gott ef einhvar sagði ekki stundarhátt, en þó með illa
dulið bros á vör; "skamm kisi". Þegar hugsað er til þessa
atviks, kemur kunnulegt textabrot upp í hugann: "Þetta fullorðna fólk er svo
skrýtið, það er alltaf að skamma mann." En hvað er svo sem hægt að
Hér að ofan getur að líta síðustu myndina sem tekin var af Tímon í lifanda lífi. Hún var tekin í dag skömmu fyrir andlátið.
Bálför hans fór fram í
kyrrþey.
17.11.2011 22:01
Drekkhlaðið
772. Þegar ég sá þessa mynd fyrst, var ég þess fullviss að hún væri af skipi sem væri að því komið að sökkva. En svo fór ég að glugga í meðfylgjandi skýringartexta og þá kom annað í ljós. Þessi magnaða ljósmynd mun vera tekin einhvern tíma milli 1950 og 1960 af skipi sem er "drekkhlaðið" af síld og á leið í land. Annað skip fylgir því eftir og siglir kulmegin við það, því eins og ljóst má vera þarf ekki mikinn vind eða öldu til að illa geti farið. Maður veltir því fyrir sér hvort orðið "drekkhlaðið" lýsi ástandinu nægilega sterkt.
14.11.2011 05:40
Stund og staður - þróun og þroski - aldur og fyrri störf
771. Það kom mér ekkert á óvart að meðalaldurinn í Selaveislunni á laugardagskvöldið var í hærri kantinum. Þannig hefur það alltaf verið og þannig mun það líklega verða áfram um ókomin ár. Það sást m.a. á því að venjulegt rokk og ról átti ekkert sérlega mikið upp á pallborðið hjá veislugestum, en gólfið fylltist hins vegar þegar við spiluðum gömlu dansana eða eitthvað í þá veruna. Ég þakkaði mínum sæla fyrir allt það nýtilega sem reynslan hefur kennt mér í áranna rás og mikill meirihluti þess sem við Axel spiluðum var því af þeim tónlistartoga. Ég gat ekki annað en brosað innra með sjálfum mér þegar gamli gítargúrúinn og harðkjarnarokkhundurinn söng hinn hálfrar aldar gamla færeyska brag um Rasmus í Görðum af mikilli innlifun. Á einhverjum öðrum tíma hefðu svona hlutir verið með öllu óhugsandi þó mikið hefði legið við.
Stundum setjast smávægileg
og jafnvel ofur hversdagsleg atvik að í kollinum á mér, ýta hæfilega mjúklega
við mér en samt nokkuð ákveðið. Og þau eiga það til að vekja mig til umhugsunar
um hvar á lífsleiðinni ég er staddur þá stundina, en það finnst mér reyndar fullkominn
óþarfi, því ég tel mig mjög meðvitaðan um aldur
Ég veitti athygli gamalli
konu sem sat
Eftir nokkra stund sá ég að
hún stóð upp og studdi sig við stólbakið meðan hún teygði sig eftir
göngugrindinni. Síðan fetaði hún sig áfram, hægt og bítandi meðfram dansgólfinu
sín megin, í áttina að dyrunum. En þegar þangað kom fór hún ekki fram í
anddyrið, heldur gekk áfram og nú meðfram dansgólfinu okkar megin, staðnæmdist
fast við pallinn og togaði í jakkalaf Axels. Þegar laginu lauk sá ég að
eitthvað fór þeim á milli og Axel spurði mig hvort ég væri nokkuð með blað og
penna. Ég var því miður ekki með slíkt, en gat ekki setið á mér og spurði hvert
erindi gömlu konunnar væri.
"Hún vill ráða okkur til að
spila á balli" svaraði Axel og ég sá að hann varð svolítið skrýtinn til
augnanna.
"Ég sendi hana fram á bar
til Gumma þar sem hún getur fengið númerin okkar á miða" bætti hann við.
"Árin líða greinilega og við
erum líklega sjálfir bráðum komnir á tíma fyrir nýjan markhóp" sagði ég. Axel
tók ekkert undir það heldur vildi byrja á næsta lagi sem fyrst. Kannski hefur
hann ekki heyrt í mér, eða kannski hefur hann ekki viljað heyra í mér.
Sú gamla staulaðist í burtu og það tók hana næstum því heilt lag að komast fram að salardyrunum.
Á leiðinni heim sagði Axel
mér að hann hefði sofið afskaplega illa um nóttina og væri því búinn að vera
með ólíkindum orkulaus í allan dag. Hann hefði vaknað kl. 4 og þá verið
eitthvað svo undarlega ískalt á fótunum. Þá hefði hann reynt að ná sér í
svolítinn lúr eftir hádegið, en það hefði ekki gengið upp.
"Það er svipað hérna megin,
en þú varst þá að standa þig ágætlega í kvöld miðað við aðstæður" sagði ég sem
var ekkert oflof.
"Erum við kannski að verða svolítið gamlir"
bætti ég við.
Það varð svolítil þögn og svo var farið að tala um eitthvað allt annað, - og miklu skemmtilegra.
En ég er alveg sannfærður um
að laugardaginn í næstu viku þegar við spilum fyrir Breiðhyltinga og annað gott
fólk á hverfispöbbnum Búálfinum í Hólagarði, verðum við orðnir eiturhressir og
búnir að hrinda þessari aldurstengdu pælingu frá okkur. Umhverfið verður allt
poppaðra og klassískir rokkslagarar ásamt diskóskotnum eilífðarblöðrum munu
hljóma sem aldrei fyrr.
11.11.2011 15:52
Útsala í Bónus - fólk eins og síld í tunnu
770. Sl. þriðjudag opnaði Bónus á Selfossi kl. 9.00 um morguninn og mun þá talsverður fjöldi fólks þegar hafa verið mættur og beið þess að opnað yrði. Ástæðan var eflaust skiljanleg á þessum síðustu og verstu, því auglýstur hafði verið 30% afsláttur á öllum vörum verslunarinnar og allt átti að seljast eins og það er oft orðað í útsöluauglýsingunum. Það var ekki að sökum að spyrja, flestar hillur voru orðnar svo gott sem tómar þegar leið á daginn. Útsölur munu ekki vera algengar í þessari lágvöruverslun, en að þessu sinni var tilgangurinn sá að loka átti búðinni og lágmarka þess vegna eða jafnvel sleppa við flutning á vörubirgðum milli húsa. Bónus mun síðan opna aftur ásamt Hagkaupum í nýju og mun stærra verslunarhúsnæði að Larsenstræti á morgun þ. 12. nóv. En þetta er ekki öll sagan, því skömmu eftir opnun sást hvað sjúkrabíll og lögregla mætti á svæðið og blikkandi blá ljós lýsu upp stæðið. Og nú var ástæðan var sú að vegna loftleysisins sem mannfjöldinn inni í búðinni orsakaði, mun hafa liðið yfir einn eða fleiri viðskiptavini.
09.11.2011 06:06
Keimlík skjaldarmerki
769. Það er ekki laust við að svolítill svipur sé með þessum tveimur skjaldarmerkjum, enda má segja að þau séu bæði skyld og tengd.
Merkið vinstra megin er bæjarmerki Aabenraa, frænda okkar í Danmörku. En sá bær stendur við samnefndan fjörð á Jótlandi austanverðu, skammt fyrir norðan Þýsku landamærin. Aðal atvinnuvegur bæjarbúa hefur lengst af verið sjósókn og þar er mjög góð höfn frá náttúrunnar hendi. Á skjaldarmerkinu er mynd af þremur uppsjávarfiskum sem í þeirra tilfelli er makríll.
Merkið hægra megin kemur
líklega flestum mun kunnuglegar fyrir sjónir, því það hefur verið skjaldarmerki
Siglfirðinga í all nokkra áratugi og er teiknað af Sigurði Gunnlaugssyni.
Okkar bær stendur einnig við
samnefndan fjörð, atvinnuvegur bæjarbúa hefur lengst af verið sjósókn og þar er
mjög góð höfn frá náttúrunnar hendi. Á skjaldarmerkinu er líka mynd af þremur uppsjávarfiskum sem í okkar tilfelli er
síld.
04.11.2011 15:19
Hinn eini sanni Tvíhöfði
02.11.2011 20:30
Síðurnar hans Steingríms
767. Hér svolítið neðar og til hægri á síðunni er ég búinn að fjölga flokkunum á síðunni um einn. Þar bætti við nokkrum alveg bráðnauðsynlegum linkum sem mér finnst að full þörf sé á að séu aðgengilegir, því þeir eru svo sannarlega allrar athygli virði. Þeir eiga það sameiginlegt að leiða okkur inn á síður sem tengjast Steingrími Kristinssyni sem að mínu mati stendur vel undir titlinum guðfaðir Siglfirskra netmiðla, en hann stofnaði til "Lífsins á Sigló" seinni hluta júnímánaðar árið 2003. Fyrir þá sem vilja rifja upp fyrstu færslurnar á þeirri ágætu síðu, þá er slóðin þangað http://157.157.96.74/gamli/Lifid/2003-06.htm
Steingrímur (sem verður 78 ára í febrúar n.k. þó hann líti ekki út fyrir að vera deginum eldri en 59) er flesta daga á myndaveiðum og hefur síðustu ár fengið mikinn áhuga á fuglamyndum. Nýjasta áhugamálið er þó líklega panorama myndirnar, en hann mun nýlega hafa komið sér upp búnaði til þess konar myndatöku.
01.11.2011 10:34
Wikipedia á villigötum
"Bjarki Árnason (fæddur 3. maí 1924, dáinn 15. janúar 1984).
Fæddur Þingeyingur, sjálfmenntaður harmonikkuleikari sem
spilaði fyrir dansi í sinni heimasveit. Bjarki flutti til Siglufjarðar 1943
og bjó þar síðan. Hann starfaði fyrst að Hóli í Siglufirði, síðar sem byggingarmeistari og kaupmaður. Að Hóli samdi hann
meðal annars Dísir vorsins 1943
og Hólasveinabrag, sem urðu
fljótt mjög vinsæl og fóru um allt land sem "húsgangar" án þess þó að vera
nokkurntíman hljóðrituð. Bjarki var vinsæll dansspilar á síldarárunum á Siglufirði og
spilaði mikið, oftast undir sínu eigin nafni, einn eða með öðrum, svo sem Þórði Kristinssyni,Sæmundi Jónssyni, Guðmundi og Þórhalli Þorlákssonum (Gautar) og fleirum. Hann var þekktur
hagyrðingur og liggur eftir hann mikið magn af gamanvísum og lausavísum, margar
landskunanr. Um 1963 fer Bjarki að
Það er svo í kringum 1970 að þeir félagar Bjarki og Þórður Kristinsson leiða saman hesta sína að nýju, hefja ballspilamennsku og stofna upp úr því hljómsveitina Miðaldamenn ásamtMagnúsi Guðbrandssyni og Sturlaugi Kristjánssyni.
Á þeim árum semur Bjarki marga dægurlagatexta við erelend lög svo sem Mónika, Ævisaga, Vilt'ekki eiga mig, Kysstu mig og svo framvegis."
Undantekning var þó á því þegar ég smellti á nafn Magnúsar Guðbrandssonar því þá birtist eftirfarandi:
"Magnús Guðbrandsson (4. janúar 1896 - 23. október 1991) var skrifstofumaður og knattspyrnumaður með Val og Fram. [breyta]Ævi og störf
Magnús fæddist í Reykjavík, sonur Guðbrands Þórðarsonar skósmíðameistara og Katrínar Magnúsdóttur frá Syðra Langholti. Árið 1927 kvæntist hann Júlíönu Oddsdóttur frá Stykkishólmi. Magnús starfaði lengst af sem fulltrúi hjá Olíuverslun Íslands.
Magnús hóf að iðka knattspyrnu með Knattspyrnufélaginu Hvat, en það var ásamt Val og Haukum eitt þriggja félaga sem stofnuð voru innan KFUM. Var ætlun séra Friðriks Friðrikssonar að félögin myndu einungis leika innbyrðis, en ekki blanda sér í keppni við önnur knattspyrnufélög.
Svo fór að leikmenn Hvats gengu til liðs við Val og varð Magnús snemma einn öflugasti leikmaður liðsins. Árið 1918 var hann kjörinn formaður félagsins og lék með fyrsta úrvalsliði Íslendinga gegn danska liðinu Akademisk Boldklub sumarið 1919.
Um þær mundir fór verulega að halla undan fæti hjá Valsmönnum. Liðið dró sig út úr Íslandsmótinu 1919 og tók ekki þátt næstu þrjú árin. Magnús gekk þá til liðs við Framara og varð Íslandsmeistari undir þeirra merkjum árin 1922, 1923 og 1925."
Mér þykir alveg morgunljóst að hér hefur einhver tekið skakka vinkuilbeygju og það jafnvel fyrir horn í hvassviðri. Fróðlegt væri að vita hver á heiðurinn eða öllu heldur skömmina af þessari uppsetningu. Síðast hitti ég Magnús á árshátíð Siglfirðingafélagsins fyrir rúmri viku síðan og þá var hann hinn hressasti.
- 1