Færslur: 2013 Nóvember
27.11.2013 22:54
Aðalbarinn
899. Ég fékk þessa stórskemmtilegu
vetrarmynd af Aðalgötu 28 senda frá honum Hilmari Gunnarssyni sveitunga mínum, en
hann hefur undanfarið verið að láta skanna fjölda slidesmynda sem faðir hans
Gunnar Þórðarson símvirki tók á árabilinu 1964-68.
Eitt og annað vekur þarna
athygli mína, t.d. að tónskólalóðin var vandlega girt og með pílárahliði. Ég
man aftur eftir girðingunni sem var annars löngu gleymd og horfin langt inn í lágþokubakka
fortíðarinnar þegar ég sá myndina.
Til hægri sést í gaflinn á
Aðalgötu 25. sem eitt sinn hýsti verslun Péturs Björnssonar. Hver ætli hafi átt
heima þar á efri hæðinni þegar myndin var tekin? Kannski Stebbi lögga? Og ætli
Þóra (fædd 1956) hafi þá átt reiðhjólið sem sést neðst í horninu?
Það verkur líka athygli mina að
Schiöth-húsið virðist vera nýmálað og er ákaflega vel útlítandi, en þegar ég
eignaðist það (um áramótin 1980-81) hafði neðri hæðin nýlega verið máluð með
skelfilega grænum lit, en að öðru leyti var málningin mestöll flögnuð af. Litlu
kvistirnir voru rauðir, - alveg rétt. Og skorsteinninn gægist yfir mæninn, en
hann var brotinn niður árið 1996 m.a. af Óla Kára og fleirum þegar norðurþekjan
var endurnýjuð, en hann var þá í læri Sigga Konn.
Takið eftir að á jarðhæðinni
lengst til hægri og næst Aðalbúðinni er hurð þar sem nú er gluggi. Þarna var
inngangur sem m.a. var ætlaður vinnu og afgreiðslufólkinu sem bjó uppi í
kvistunum, en talsvert mjórri stigar lágu alla leið þangað upp en þeir sem lágu
frá núverandi inngangi næst Allanum og ætlaðir voru apótekaranum og fjölskyldu
hans.
Fyrir ofan dyrnar þar sem nú er gengið inn í bakaríið hjá Kobba stendur AÐALBAR. Þegar ég var á barnaskólaárunum var staðurinn yfirleitt kallaður Sjuttabarinn og þótti ekki henta öllum aldurshópum til að hanga á. En það var nú samt stundum laumast til að kíkja þangað.
Þegar rýnt er betur í myndina sést að ungur maður gægist út um stofugluggann, innan úr hlýjunni, öryggi heimilisins, virkinu þar sem hann á athvarf sitt, út í hríðina, veturinn og kuldann þar sem frostið bítur.
Hver skyldi þetta vera?
24.11.2013 09:01
Jónas og fjölskylda
898. Þarna er húmorinn
greinilega í góðu lagi, en hvað skyldu margir muna eftir honum Jónasi og
fjölskyldu úr umferðinni forðum daga, en hann var haldinn vægast sagt mjög undarlegri
söfnunaráráttu. Jónas þessi fór sér gjarnan hægt í umferðinni ef einhverjir bílar
voru fyrir aftan hann og átti sér það takmark að mynda bílalest sem næði helst hringinn
í kring um landið. Það voru hjónin Bessi Bjarnason og Margrét Guðmundsdóttir
sem fóru með aðalhlutverkin í þessum stórskemmtilegu innskotum sem unnin voru í
samráði við sambærilegt apparat og í dag kallast Umferðarstofa. Ólafur Örn
Haraldsson mun hafa samið textann í þáttunum og útsendingar hófust sumarið 1974
á RÚV. Þarna fór saman umferðarfræðsla sem virkaði og óborganleg leikræn tilþrif
sem maður beið eftir að fá að heyra á hverjum degi.Seinna var svo efnið gefið út
á kassettum, en í dag má nálgast það á youtube.
Slóðin að fyrsta þætti er http://www.youtube.com/watch?v=pYw5BE1spaA
19.11.2013 01:42
Gluggahlerar með boðskap
897. Þetta hús stendur á
horni Bergþórugötu og Frakkastígs. Ef horft er beint á þær hliðar hússins sem
snúa að umræddum götum, virðist þetta vera að öllu leyti eðlilegt og óskup venjulegt
hús. En ef gengið er fyrir horn þess, koma þessir rauðu gluggahlerar í ljós og
af þeim má lesa mjög svo skorinorðan boðskap eins og sjá má á myndinni hér að
ofan.
Þarna hefur hún Auður farið á
flug.
-
Hér undir er nýr gjörónýtur gluggi
frá Trésmiðju Stálsmiðjunnar
og
Hér undir eru ¾ af vanefndum,
fullgreiddum, nú ónýtum glugga
frá Trésmiðju Stálsmiðjunnar.
-
Á efri hæðinni býr
rithöfundurinn Auður Haralds sem óhætt er að segja að sé þekkt fyrir að hafa
munninn fyrir neðan nefið, fátítt sé að hún liggi á skoðunum sínum um nær hvaða
málefni sem er og eigi það til að tjá hug sinn allan alveg svikalaust ef henni
býður svo við að horfa.
Fyrsta skáldsaga hennar
"Hvunndagshetjan: Þrjár öruggar aðferðir til að eignast óskilgetin börn" kom út
árið 1979" vakti mikla athygli. Síðan komu út "Læknamafían" 1980 og "Hlustið
þér á Mozart" 1982.
Eftir það skipti hún alveg um
gír og skömmu síðar komu út þrjár bækur hennar um Elías sem byggðu á innslögum
sem hún skrifaði fyrir Stundina okkar sem Sigurður Sigurjónsson lék og svo
unglingabókin "Baneitrað samband á Njálsgötunni" 1985, en síðar var gerð
leikgerð af því og það flutt m.a. í Íslensku Óperunni.
Árið 1987 kom svo út síðasta
skáldsaga hennar til þessa í hinu hefðbundna bókarformi "Ung, há, feig og
ljóshærð", en undir aldamótin skrifaði hún svo söguna "Hvað er Drottinn að
drolla" sem var birt á bókavefnum á Strik.is árið 2000
Einhvern tíma milli 1990 og
2000 sá Auður um þáttinn "Sunnudagslærið" ásamt blaðakonunni og
bókmenntarýninum Kolbrúnu Bergþórsdóttir sem við þekkjum m.a. úr Kiljunni hans
Egils Helgasonar. Þær virtust eiga vel saman í þeim þætti, enda báða hæfilega
"kjaftforar" (afsakið orðbragðið) og voru lítið fyrir að skafa utan af
hlutunum. Í þeim þætti sagði Auður eitt sinn "þegar ég verð ekki lengur fyrir
kynferðislegri áreitni, verður lítið gaman að vera til". Kolbrún hefur oftar en
ekki átt það til að segja eitt og annað sem fer misjafnlega í menn. Hún varð m.a.
mjög undrandi á sterkum viðbrögðum knattspyrnuáhugamanna við ákvörðun Sir Alex
En á neðri hæð hússins við
Bergþórugötu býr Páll Björgvinsson og hafa þau Auður eldað saman grátt silfur allt
frá því að hann keypti hæðina fyrir fáeinum árum.
Ég á hús við Njálsgötu og
liggja lóðir okkar því sem næst horn í horn. Eitt sinn ákvað Auður að breyta
þakinu hjá sér og setja á það glugga. Þá var henni sagt að til væri eitthvað
sem héti "grenndarkynning" og hún þyrfti að fara eftir ýmis konar reglugerðum
o.þ.h. ef hún vildi
-
Andri Freyr og Gunna Dís tóku
vægast sagt MJÖG hressilegt svokallað Drottningarviðtal í maí sl. í þætti sínum
Virkir Morgnar þar sem Auður lætur hreinlega allt vaða.
Slóðin þangað er http://www.youtube.com/watch?v=6eXzOLQ0f8k
-
Og Auður Haralds mér og öðrum aðdáendum sínum til mikillar gleði, er um það bil að hefja aftur störf á rás 2 eftir allt of langt hlé, en þar mun hún væntanlega verða með vikulega jólabókaflóðskrídik í þættinum "Virkir Morgnar" næstu vikurnar eða allt fram að jólum. Hún var í eins konar kynningarviðtali í morgun, en fyrsti eiginlegi þáttur hennar verður næsta þriðjudag væntanlega skömmu fyrir hádegi.
En hún verður líklega þrátt fyrir allt að teljast vera svolítil frekjudós svona í eðli sínu, en hún er líka frábær rithöfundur, var stórskemmtileg útvarpskona hér í denn og verður það eflaust aftur, svo og ein þeirra sem mun alltaf standa bæði út úr og upp úr, - eða þannig.
Hún verður 66 ára þ. 11. des. nk.
15.11.2013 23:44
Strætó í ljósum logum
896. Í gær mátti lesa eftirfarandi smáfrétt í visir.is: "Eldur kom upp í strætisvagni á leið 28 við Aðalþing í Kópavogi um klukkan 11.40 í morgun. Vagnstjóra sakaði ekki og komst hann heill á húfi út úr vagninum. Enginn farþegi var um borð í bílnum. Eldsupptök eru ókunn og hefur slökkviliðið náð að ráða niðurlögum eldsins. Að sögn Kolbeins Óttarssonar Proppé, upplýsingafulltrúa Strætó bs., er vagninn gjörónýtur". Fréttin var nánast samhljóða á vefútgáfu Mbl.
Sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/11/14/kviknadi_i_straeto/
Á dv.is var fréttin einnig með
líku sniði, en við hana voru nokkrar verulega "fræðandi" og athyglisverð comment.
Og þeir sem þau rituðu kunnu allar skýringar á því hver orsökin var og höfðu ótrúlega
margt um málið að segja, án þess þó að nokkur ritaranna hafi verið á staðnum eða viti neitt um aðstæður eða aðdraganda. Það
var eiginlega ekki annað hægt en að glotta eilítið út í annað yfir öllum þessum
"sérfræðiálitum" og öllu bullinu í þeim.
Ótrúlega skammur tími leið frá því að eldurinn gaus upp aftarlega í vagninum, þar til ekki var mögulegt að sjá handa sinna skil fremst við inngöngudyrnar. Sá tími mældist í sekúndum miklu frekar en mínútum og bíllinn var einnig orðinn nánast alelda á svipuðum tíma.
Bílstjóri á rútu frá Teiti Jónassyni sem kom aðvífandi, svo og starfskona úr eldhúsi leikskólans við Aðalþing eiga mikið þakklæti skilið fyrir veitta aðstoð, en þetta er nokkuð sem maður vill komast hjá að þurfa að upplifa aftur þó svo að eldsvoðinn teljist ekki með þeim stærstu og enginn hafi verið í umtalsverðri hættu.
08.11.2013 22:37
Gengið gegn einelti
895. Í dag 8. nóvember var
gengið gegn einelti víða um land, en að öllum líkindum hefur verið einna mest lagt
upp úr göngunni í Kópavogi. Mér sýndist það alla vega á svöruninni þegar ég "fór
á gúgglið" og þess utan varð göngufólkið á vegi mínum í orðsins fyllstu
merkingu eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Ég átti leið niður Skálaheiði og
niður á Hlíðarhjalla eða Hliðarhalla eins og mér er svo gjarnt á að kalla
götuna þegar ágætur félagi
Þvílíkur fjöldi.!
Ósjálfrátt hugsaði ég til
baka, til þess tíma þegar ég var á sama aldri og þorri göngufólks. Þá var ekki
búið að finna orðið "einelti" almennilega upp, en engu að síður var til miklu
meira en nóg af því.
06.11.2013 18:20
Norðanfari 1863
894. Ég var að glugga í gömul blöð, já mjög gömul að þessu sinni. Og það er ekki laust við að maður brosi lítillega út í annað, jafnvel þótt umfjöllunarefnið sé ekkert mjög skemmtilegt í eðli sínu. Dánarfregnir og jarðarfarir, dauðsföll og slysfarir, en slíkt getur tæplega talist sérlega upplífgandi. En það er orðfærið, stafsetningin og efnistökin sem vekja athygli mína og hugsanlega einnig annarra sem glugga í úrklippurnar hér að neðan, enda eru skrifin frá árinu 1863. Þetta var ekki mislestur, frá árinu ÁTJÁNhundruðsextíuogþrjú eða hvorki meira né minna en 150 ára gömul.
Hér eru nokkur sýnishorn.
- 1