Færslur: 2014 Apríl
27.04.2014 01:22
Sá á fund sem finnur
927. Er tunglið úr osti? Hver á það? Af hverju stækkar það og minnkar til
skiptis? Og af hverju togar það svona óskaplega mikið í sjóinn?
Tunglið hefur vissulega vakið
margar spurningar í gegn um tíðina og við sumum þeirra kunnum við einfalt og
skynsamlegt svar, en öðrum ekki. - Alla vega ekki ennþá. Það hefur verið endalaus
uppspretta ævintýra, rómantíkur og veitt skáldunum ómældan innblástur.
-
Tunglið, tunglið taktu mig
og berðu mig upp til skýja.
Hugurinn ber mig hálfa leið
í heimana nýja.
Þannig orti Theodora
Thoroddsen forðum og víst er að margur sveinninn og yngismeyjan hefur horft dreymandi augum á þetta gula
fyrirbæri á himni okkar Jarðarbúa.
-
Svafstu illa? Dreymdi þig
skrýtna drauma? Ef svo er, þá geturðu kennt tunglinu um frekar en nokkru öðru,
því samkvæmt niðurstöðum nýlegrar breskrar rannsóknar þá breytast draumar fólks
þegar tunglið er fullt. Okkur dreymir þá ýmist mjög skrýtna eða ákaflega
dásamlega drauma, en það ástand og sú virkni fylgir ekki árstíðum eða vikudögum,
heldur tunglinu.
.
"Ég tel að þessari þjóð beri að skuldbinda sig
fyrir lok þessa áratugar að lenda manni á tunglinu og flytja hann aftur til
jarðar".
Þetta sagði Kennedy bandaríkjaforseti
forðum og bætti síðan við.
"Ekkert annað geimrannsóknarverkefni mun á þessu
tímabili heilla jarðarbúa jafn mikið eða reynast eins mikilvægt fyrir komandi
rannsóknir á geimnum. Og ekkert mun vera jafn örðugt eða kostnaðarsamt í
framkvæmd."
Þar með hófst það sem kallað
hefur verið kapphlaupið um tunglið.
Eftir að draumur Kennedy´s rættist að honum gengnum, hefur a.m.k. sumum ameríkönum fundist þeir eiga meira tilkall til tunglsins en aðrir jarðarbúar og fleyg eru orðin
sem sögð voru eftir lendingu Appollo 11., en fáir muna þó hver sagði: "Brautin er nú greið fyrir landnám á
tunglinu".
-
Í vetur bauð RÚV upp á frábæra
þætti um Tunglferðirnar í umsjón Sævars Helga Bragasonar. Lokaþátturinn er ennþá
aðgengilegur á Hlaðvarpinu og mun verða það allt til 1. júní nk. og er slóðin
þangað er: http://www.ruv.is/sarpurinn/kapphlaupid-til-tunglsins/02032014-0
23.04.2014 20:30
Undarlegt tvíeyki
926. Ég rakst á þess mynd í dag og það er hreint ekki ofsagt að við það hafi ég
hrukkað ennið í það minnsta lítillega. Fyrst kom auðvitað hið ágæta forrit "Photoshop"
upp í hugann, en ég dró þó heldur í land þegar ég komst að því að myndin mun
hafa birst í því ágæta tímariti "Lifandi vísindi" sem gerir hana að mínu mati mun trúverðugari en ella.
Spurning dagsins er því hvort þetta sé virkilega alvöru.?
-
En að allt öðru máli...
Ég fékk á dögunum sendar tvær ábendingar sem varða nýlegar færslur.
Önnur var vegna "Blá hús", en Hlynur Arndal taldi að ég hefði alveg mátt hafa rúntinn örlítið stærri þar sem all nokkuð vantaði upp á úttektina. Hann var svo vinsamlegur að senda mér mynd að húsinu sínu sem er númer 21 við Hverfisgötu hinnar syðri, en það er nýuppgert, orðið alveg stórglæsilegt og í alla staði hin mesta bæjarprýði. Ég tók mér það bessaleyfi að bæta myndinni hans Hlyns við mínar í færslunni.
Hin var vegna "Ævintýramaðurinn Per Martin Steen" sem hefur flakkað um landið að undanförnu og spilað á gítar og sungið fyrir mat og gistingu. Fréttirnar að norðan voru talsverð vonbrigði en slóðin að þeim er...
http://www.visir.is/-braust-inn-i-isskap-og-helt-veislu-fyrir-sjalfan-sig-/article/2014140419741
Auðvitað hefur hann verið orðinn svangur, en það réttlætir tæpast aðgerðir sem þessar og fyrirhyggja er og verður alltaf góður ferðafélagi. En þversögnin birtist okkur í ótengdri frétt á sama miðli nokkrum dögum síðar, en þar sagði frá sigurvegara í heljarmiklu kappáti á Prikinu sem fór nokkuð létt með að innbyrða 1,5 kg. af mat á 225 sekúndum.
http://www.visir.is/kappat-a-prikinu/article/2014140429524
20.04.2014 02:38
Margrét SI 4 og fyllerí aldarinnar sem leið
(Endurunnin ljósmynd úr Morgunblaðinu).
925. Miðvikudagurinn 18. febrúar 1959 er einn af stóru dögunum í útvegssögu Siglufjarðar,
því þá sigldi splunkunýtt og stórglæsilegt fley inn fjörðinn og lagðist að
Öldubrjótnum. Þó að tilkoma hins nýja skips væri tæpast til þess fallin að auka
á fjölbreytileikann í atvinnumálunum í bænum, var hvert starf sem bættist við
vel þegið. Næstum því tveir áratugir voru liðnir frá því að íbúatala
Siglufjarðar hafði náð sínum hæstu hæðum og allra síðustu árin var ekki laust
við að
Greinastúfurinn hér að ofan
birtist í Alþýðublaðinu fimmtudaginn 19. febrúar 1959 og þar sagði frá komu
skipsins á mjög svo hefðbundinn hátt. Ekki var minnst einu einasta orði á
veisluna miklu sem í hugum þeirra sem upplifðu hana, var órjúfanlegur hluti af
sögu og tilkomu Margrétar SI-4.
MJÖLNIR birtir föstudaginn
20. febrúar 1959 frétt af komu skipsins þar sem aðeins er ymprað á því að
einhverjar veitingar hafi verið í boði við komu þess fyrir gesti og gangandi.
Því miður er enginn skráður fyrir henni, en hér að neðan fer frásögn MJÖLNIS.
"Nýtt skip komið til Siglufjarðar
Margrét, SI 4, kom hingað á miðvikudaginn.
Skipið fer á togveiðar eftir nokkra
daga.
Á miðvikudaginn kom hingað til Siglufjarðar eitt hinna
austur-þýzku togskipa, sem byggð voru fyrir atbeina fyrrverandi ríkisstjórnar. Skipið
heitir Margrét og einkennisstafir þess eru S.I. 4. Eigandi skipsins er Útver
h/f, framkvæmdastjóri þess er Árni Friðjónsson, en formaður félagsstjórnarinnar
er Vigfús Friðjónsson. Stærð skipsins og vélaútbúnaður er að engu frábrugðinn
frá hinum austur-þýzku skipunum sem áður voru komin, nema Margrét er útbúin með
sjálfstýringu. Var sá útbúnaður settur í skipið í Kaupmannahöfn. Vélin er 800
ha.
Bæjarbúum var boðið að koma um borð og skoða skipið
kl. 2 í gær. Notfærðu margir sér það boð og þáðu veitingar. Íúðir skipverja,
sem eru fyrir 21 mann, eru hinar glæsilegustu, og virðist aðbúnaður skipverja
vera mjög góður. Menn vænta þess, að koma þessa skips verði til þess að gera
atvinnulífið hér mun traustara en það hefur verið undanfarin ár, einkum þó til
að bæta úr atvinnuleysinu sem hér hefur oft verið tilfinnanlegt yfir vetrarmánuðina.
Tilvera Siglufjarðar byggist einvörðungu á útgerð og vinnslu sjávarafla, og því
fleiri skip, sem héðan eru gerð út og leggja upp afla hér, því meiri horfur eru
á, að hér verði vaxandi bær með blómlegt athafna og menningarlíf. Mjölnir óskar
eigendum og áhöfn skipsins til hamingju í tilefni af komu þess hingað, og góðs farnaðar
í framtíðinni".
Og árin liðu, Austur-Þýska
skipið reyndist vel þrátt fyrir aðfinnslur og neikvætt umtal nokkurra sjálfskipaðra sérfræðinga, en aðrir sökuðu þá á móti um að hafa horn í síðu
þess upprunans vegna, eða með öðrum orðum að halda því fram að það væri tæpast
nægilega gott af pólitískum ástæðum. Það var ekki fyrr en 12. júlí 1963
sem ég rakst fyrst á umfjöllum í Morgunblaðinu þar sem Margrétar SI-4 er að einhverju
leyti getið, en reyndar var fréttin ekki í neinum aðalatriðum um skipið þó það
kæmi þar talsvert við sögu. Það mátti, en þó með "mjög góðum vilja" ætla að því væri lætt inn í greinina þó að þannig hafi það eflaust ekki verið, en skrifin voru á jákvæðum og skemmtilegum yfirlitsnótum um atvinnuhætti og mannlíf í
síldarbænum undir yfirskriftinni "Svipast um af síldartunnu" og undirtitillinn var "Skyndimyndir
frá Siglufirði". Það mun hafa verið Stefán Friðbjarnarson fyrrverandi
bæjarstjóri sem skrifaði hana, en hann var fréttaritari Moggans á Siglufirði um árabil. En það sem Moggamönnum láðist að nefna og ég vil nú bæta úr þó seint sé, að það var auðvitað okkar maður Steingrímur Kristinsson sem tók meðfylgjandi myndir.
(Hluti af grein Stefáns í Mogganum árið 1963).
(Frk. Gígja Sveinsdóttir síldarmatskona).
(Saltað úr Margréti).
(Á Pólstjörnuplaninu)
En í bók sinni "Svipmyndir úr
síldarbæ" segir Örlygur Kristfinnsson frá komu Margrétar á afar skemmtilegan
hátt.
"Margrét SI-4 lagðist að Öldubrjótnum í febrúar 1959
fánum prýdd stafna á milli, og þá var haldin ein herlegasta veisla sem sögur
fara af á Siglufirði.
Boð voru látin út ganga um að allir bæjarbúar væru
velkomnir um borð til að skoða hið nýsmíðaða og glæsilega stálfley austan úr
hinum sósíalíska heimi, - og þiggja veitingar. Fréttin um þetta veglega boð
barst um bæinn eins og eldur um sinu.
Vigfús Friðjónsson, þessi rausnalegi maður og
höfðingi, eins og einn skipverja Magrétar orðaði það, stóð fyrir veislunni en
var ekki kominn til landsins svo það kom í hlut Árna bróður hans að taka á móti
öllum gestunum og veita ósleitilega.
Vigfús hafði keypt vel til veislunnar, 300 flöskur af
kornbrennivíni, tuttugu kassa af bjór og hundruð flaskna af þýzku kampavíni.
Það eðalvín var í trékössum og hafði verið geymt í beitustíu frammi í stafni
skipsins.
Vigfús gerði grein fyrir vínfarminum og fékk samþykki
Ingólfs Kristjánssonar yfiortollara að veiganna mætti neyta um borð. Mikill
fjöldi manna kom á skipsfjöl þennan dag og var öllum veitt eins og hver vildi.
Stanslaus straumur allan tímann, ekki færri en þúsund var sagt, og fóru þeir
síðustu frá borði þegar langt var liðið á næsta dag.
Allt veisluvínið kláraðist og varð af slíkt
heljarinnar fyllerí að telja má það eitt
hið mesta í sögu Siglufjarðar. Um þetta var mikið talað í bænum og lengi í
minnum haft.
Sagt er að einhver mektarmanna bæjarins hafi verið
borinn í land. Ónefndur bóndi úr Fljótum hafi verið með aukaflöskur inn á sér
sem hann fyllti til að drekka síðar. Og þegar hafði runnið af mönnum og
samviskubitið komið í gleðinnar stað, hafi stúkustarfið hjá Jóhanni Þorvalds
tekið verulegan fjörkipp - um sinn".
Og þegar sá sem þetta ritar var að vinna í frystihúsi S.R. við Vetrarbrautina á unglingsárum sínum, voru karlarnir þar endrum og sinnum að minnast á þessa ótrúlegu og einstæðu uppákomu á kaffistofunni, og það þrátt fyrir að áttundi áratugur síðustu aldar væri þá senn hálfnaður.
16.04.2014 05:05
Blá hús
924. Einhvern tíma hefði sá
maður verið álitinn í það minnsta pínulítið undarlegur sem hefði látið sér til hugar koma að mála húsið sitt blátt. Og þá meina ég ALVEG BLÁTT.
En í dag upplifum við mjög svo breytta
tíma frá þeim árum þar sem fordómar gagnvart m.a. mikilli litagleði utan dyra eru
á hröðu undanhaldi. Ég man vel að fyrir næstum því hálfri öld var hús á Dalvík
málað fjólublátt, og þrátt fyrir að það stæði ekki við neina af helstu umferðargötum bæjarins, lögðu margir hverjir sem áttu leið um það ágæta sveitarfélag lykkju á leið sína til
að berja þetta furðuverk augum. Einhverjum árum síðar var svo hús við Hlíðarveg
heima á Sigló einnig málað fjólublátt, en þá var litafrelsisslökunarferlið
gagnvart ytra byrði fasteigna að einhverju leyti hafið og það vakti ekki eins
mikla athygli og hið Dalvíska, en samt nokkra.
Akkúrat þetta kom allt í einu
upp í hugann þegar ég var á rúntinum á heimaslóð einn góðviðrisdag á síðasta ári
og hér er afraksturinn.
Eru bláu húsin kannski
fleiri? - Allar ábendingar vel þegnar...
(Ljósmynd Hlynur Arndal)
(Ljósmynd Hlynur Arndal)
(Ljósmynd Hlynur Arndal)
13.04.2014 01:23
Ævintýramaðurinn Per Martin Steen
Per Martin Steen fyrir framan Hannes Boy. Kroppuð og stílfærð mynd af siglo.is (birt án leyfis).
923. Nýlega birtist frétt á
siglo.is þar sem sagði frá hinum ævintýrgjarna Norðmanni Per Martin Steen og
ferðum hans hérlendis.
( http://www.siglo.is/is/frettir/getAllItems/1/aevintyramadurinn-per-martin-steen-a-ferd-um-hid-ovaenta ) Þegar ég las greinina og sá myndina sem henni
fylgdi, kviknaði snarlega á minnisperunni og ég minntist þess að við áttum
saman svolítið spjall hér syðra fyrir fáeinum dögum.
Ég var að aka leið 28 á
strætó eins og svo oft og var rétt ófarinn úr Mjóddinni þegar skeggjað andlit
Norðmannsins birtist í gættinni, hann kynnti sig og bætti síðan við "ég spila á
gítar".
"Og ég spila á hljómborð"
svaraði ég af bragði.
Hann hló við og spurði hvort
hann mætti koma með án þess að vera með strætómiða. Ég varð svolítið kjaftstopp
við spurninguna því öll fyrirgreiðsla af því taginu er auðvitað alveg bönnuð,
en það var eitthvað sem sagði mér að ef einhver ætti að fá slíka sérmeðferð, þá
væri það maður eins og hann Per.
Til allrar hamingju leystist
málið nánast af sjálfu sér því nærstaddur farþegi sem hafði fylgst með innkomuni
og sennilega orðið fyrir svipuðum áhrifum og ég fór ofan í vasa sinn og fiskaði
þaðan upp alveg heilan helling af klinki, skellti því í baukinn og sagði;
"þetta er akkúrat" um leið og hann deplaði augunum ótt og títt. Ég horfði á
hrúguna á botninum og sá að þarna var a.m.k. einn hundraðkall en kannski
fleiri, fimmtíukall og vænn slatti af krónum, fimmköllum og tíköllum. Og þar
sem klinkið var þegar komið ofan í strætóbaukinn var ég var ekki í neinni
aðstöðu til að fara út í frekari skoðun á málinu, enda áhuginn takmarkaður. Ég
sagði því bara ókey nokkuð ákveðið og bauð Norsaranum að ganga til bíls á
einhverri skandínavískri mállýsku sem ég hannaði og spann upp úr mér þarna á
staðnum. En hann skildi mig greinilega, kom inn og við tókum spjall saman. Hann
sagði mér frá veru sinni og ævintýrum sínum hérlendis. Hann hefði aðeins átt
fyrir (með hjálp góðra manna og kvenna) miða með Norrænu frá Færeyjum, en þar
hefði hann verið svo lánsamur að kynnast tónlistardrottningu þarlendra
lítillega henni Eivøru Pálsdóttir.
Nú var kominn tími til að
leggja af stað og okkar maður fann sér sæti framarlega í vagninum og virti
fyrir sér umhverfið upp eftir Breiðholtsbrautinni, um Hvörf, Þing og Kóra og að
Hörðuvallaskóla þar sem ég stoppaði til að tímajafna. Þá stóð hann upp og við
héldum áfram spjallinu. Hann hafði spilað á pöbb í miðbæ Reykjavíkur kvöldið
áður og fengið fínan kvölverð fyrir framtakið. Þar hefði hangið gítar uppi á
vegg sem hann hafði getað notast við eftir svolitla vinnu við stillingar og
fíniseringu. Vertinn hafði að vísu haldið því fram að hann væri bara flottur
uppi á vegg en varla til neins brúks á palli, en þetta hefði nú allt saman
sloppið alveg þokkalega fyrir horn. Hann hefði síðan bankað upp á hjá þeim á
lögreglustöðinni á Hverfisgötu og fengið þar hina þægilegustu gistingu. Þegar
talið barst að Hverfissteininum brosti hann út í bæði og sagði að svona nokkuð
væri nú ekki hægt að
Aftur ók ég af stað og okkar
maður settist og horfði út um gluggann á það sem fyrir augu bar. Fleiri Kórar, síðan
komu Salir, Lindir og Smárar. Við Smáratorg var ég aftur um það bil að lenda aðeins
á undan áætlun og staldraði því við stutta stund.
Aftur kom Per fram í til mín
og nú vildi hann segja mér frá reynslu sinni af Íslandi og íslendingum, hafði
um það mörg orð hvað hann hefði alls staðar mætt mikilli gestrisni og hvað
honum fyndist landið að öllu leyti hreint ótrúlega heillandi. Það var líklega
þá sem hann spurði hvert við værum annars að fara. Ég sagði honum að endastöðin
væri Hamraborg, en sá staður væri eiginlega gamli miðbærinn í Kópavogi sem væri
bær sem lægi þétt upp að Reykjavík en þó alls ekki hluti af henni. Og ég lagði
mikla áherslu á þetta "ALLS EKKI". Hann spurði hvort þar væri ekki einhver pöbb
sem hann gæti boðið fram þjónustu sína fyrir mat og/eða gistingu. Ég sagði
honum af Catalinu, en bætti því við að mín reynsla af viðskiptum við eigendur
staðarins væri með þeim hætti að líklega væri skynsamlegra að fara aftur niður
í "city center of Reykjavik" og freista gæfunnar á þeim slóðum. Síðan ókum við
af stað frá Smáratorgi.
Síðasti hluti samtals okkar
fór svo fram í Hamraborginni. Hann hafði ákveðið að fara að mínum ráðum og
reyna að koma sér niður í miðbæ Reykjavíkur. Ég lét hann fá skiptimiða og
útskýrði hvernig hann virkaði, benti honum á að best væri að taka vagn númer EITT
sem væri merktur "HLEMMUR". Hann spurði þá hvort ég væri á Facebook, en þar sem
ég hef ekki ennþá meldað mig þar inn, hripaði hann niður póstfangið sitt á
útrunnin skiptimiða og rétti mér um leið og hann þakkaði mikið fyrir sig og
flýtti sér í næsta vagn. Út um gluggann sá ég hvar hann fór inni í vagn númer
EITT, en bara vitlausu megin. Sá var að koma úr Reykjavík og því á leið til
Hafnarfjarðar. Hann veifaði mér glaður í bragði út um gluggann og ég veifaði á
móti, en samt kannski ekki alveg jafn glaðlega.
En hvað sosum um það,
maðurinn var jú að leita uppi ævintýrin þar sem þau gætu hugsanlega gerst og
leynst hverju sinni - eða þannig.
Kannsi biðu þau hans óþreyjufull í Hafnarfirði akkúrat þetta kvöldið.
P.S. Prófiði svo að gúggla "Per
Martin Steen" og sjáiði bara hvað þið finnið.!
08.04.2014 05:12
Nákvæm tímasetning
922. Ég veitti þessum ostapakka athygli í búðarhillu á síðasta ári og l´+et mér í fyrstu fátt um finnast þar til ég sá að á honum var ekki bara dagsetning, heldur líka tímasetningin. Það fannst mér með slíkum ólíkindum að ég tók mynd af honum en gleymdi síðan málinu fljótlega. En núna upp á síðkastið þegar umræðan um hve ótrúlega miklu er hent af mat sums staðar heiminum meðan aðrir svelta hefur góðu heilli verið talsverð, rifjaðist upp myndin af ostinum. Þegar ég rakst svo á hana í einni myndamöppunni nýverið, dró ég hana fram á desktoppinn og hér er hún sem sagt komin.
Best fyrir 30.08.13. - Ok.
Það er ekkert nýtt fyrir neinum hér um slóðir, en bíðum nú við, auk þess klukkan
10.31.!
Kannski hefur þetta alltaf
verið svona en ég bara ekki tekið eftir því.
Þetta er auðvitað til mikilla
hægðarauka fyrir heittrúaða á slíkar leiðbeiningar, þ.e. allt nákvæmis og akkúratfólkið
sem fer í einu og öllu eftir slíkum dagsetningum.
Það þýðir væntanlega samkvæmt þeirra skilningi á áreiðanleika slíkra merkinga að ef þú gleypir ostinn í þig í síðasta lagi þ. 30.08.13 kl. 10.30 ættir þú að sleppa, en ef þú gerir það fáum mínútum síðar gæti þér orðið illa brátt í brók bremsufaramegin.
05.04.2014 09:46
Andlát síðustu myndvélar
921. Fyrir fáeinum dögum varð
ég fyrir því óhappi að missa myndavélina mína á gólfið í strætó. Má alveg örugglega
segja að sá dagur sem það gerðist hafi hennar allra, allra síðasti, því linsan
festist svo kyrfilega að hún hefur verið eftir það að hálfu úti og að hálfu
inni og ég náði með herkjum að tæma kortið áður en hún lokaði endanlega á öll
frekari boðkipti okkar á milli.
Henni verður sem sagt ekki
bjargað og mig bráðvantar þess vegna létta og meðfærilega brjóstvasamyndavél.
Það má svo sem líka segja að
tjónið hafi kannski ekki verið svo ýkja mikið, því fyrirsjáanlegt var að ég
þyrfti fljótlega að fara að líta eftir arftaka hennar. Hún hafði nefnilega þá
þegar orðið fyrir einhverju hnjaski og það jafnvel nokkrum sinnum áður, því það
var farin að skorta nokkuð upp á skýrleikann þegar aðdráttur og ýmis fínlegheit
voru annars vegar.
Eftir svolitla skoðun á
milligóðum (og millidýrum) myndavélum sem færu vel í vasa, sá ég að Canon
PowerShot SX210 IS var á dúndurgóðu tilboði hjá Nýherja. Sú er 14 megapixla, með
þriggja tommu skjá og aðdrátturinn er fjórtánfaldur, en ég leit mjög til
síðarnefnda möguleikans sem afar nýtist vel í landslagsmyndum á fjallaferðum.
Ég hafði samband við vin
Steingrímur vildi að sjálfsögðu
að ég verslaði í BECO og það skiljanlega, því auðvitað eigum við Siglfirðingar
að beina viðskiptum okkar til okkar manna. Hmmm. en svona í alvöru, þá sagði hann
Nikon COOLPIX S5200 einfaldlega betri kost. Sú er 16 megapixla sem munar
auðvitað um, er líka með þriggja tommu skjá, en aðdrátturinn er aðeins
sexfaldur. Meira en gengur og gerist í svona litlum vélum, en samt ansi miklu
minna en á Canonvélinni.
Svo bætti hann við; "En Leó,
þú átt völina..........og kvölina".
Og mikið rétt, ég finn alveg
hvernig valkvíðinn nagar mig að innan.
Eru annars nokkrar fleiri
ábendingar?
02.04.2014 03:27
Ekki fara til Boston
920. Um helgina voru áríðandi skilaboð hengd
upp á korktöfluna í kaffistofunni á mínum vinnustað. Þar voru áhugasamir beðnir
um að hafa samband við formann starfsmannafélagsins vegna fyrirhugaðrar ferðar
til
Varla getur borgin talist
taka vel á móti strætóbílstjórum frá Íslandi um þessar mundir, því á vögnum hennar
getur að líta auglýsingar með áróðri gegn íslendingum þar sem fólk þar vestra
er hvatt til þess að sniðganga íslenskar sjávarafurðir. En auðvitað verðum við
að segja söguna alla og geta þess að sýnilega er ekki um að ræða óvild í garð
hins norræna kynþáttar, heldur tengist áróðurinn hvalveiðum okkar og þar nam ég
einmitt svolítið staðar í vangaveltum mínum, því hin öfgakennda hræsni kanans þykir
mér alltaf vera með miklum ólíkindum þegar þau sjávarspendýr eru til
umfjöllunar.
Þrátt fyrir að Bandaríkjamenn
hafi upp úr 1970 sett lög sem bönnuðu hvalveiðar svo og alla verslun með hvalaafurðir
í bandarískri lögsögu, drepa þeir (veiða ekki) ógrynni hvala á hverju einasta ári.
Hvernig gengur það upp?
Jú þeir veiða túnfisk í
Kyrrahafi.
Og hvað kemur það hvalveiðum
við.
Jú (aftur).
Túnfiskar og höfrungar lifa
oft í mjög sérstöku sambýli. Enginn veit nákvæmlega af hverju þeir
Í dag segja bandarísk
yfirvöld að um 1000 dýr deyi árlega við veiðarnar sem margir telja að sé
stórlega vanmetið, en tæknilega séð eru Bandaríkjamenn ekki beinlínis að stunda
neinar hvalveiðar í þessu tilfelli.
Ekkert er nýtt af dýrunum,
heldur er hræin einfaldlega skilin eftir í sjónum og drápin á höfrungunum eru
álitinn nauðsynlegur fórnarkostnaður við túnfiskveiðarnar.
Minnir svolítið á að þegar
óbreyttir borgarar falla í stríði er þetta orðalag "nauðsynlegur fórnarkostnaður"
stundum notað.
Ansi ógeðfellt.!
Norðmenn, Rússar, Japanir,
Danir (Grænlendingar og Færeyingar), Bandaríkjamenn (frumbyggjar í
Ætli Kaninn þori ekki á
ráðast á stærri og öflugri þjóðir (sér auðvitað ekki bjálkann í sínu egin auga)
og kýs frekar að berja á hinni agnarsmáu örþjóð lengst út í ballarhafi bara af
því að hún liggur betur við höggi?
Rétt eins og stórir og illa
innrættir strákar ráðast frekar á sér yngri og minni drengi og leggja þá í
einelti, frekar en að appast upp á jafnoka sína.
Uppátækjasamir landar þeirra
sjá svo bissnesljósið í módelinu og hafa sett á stofn fjölda félaga (sem eru þó
miklu frekar rekin eins og hardcore bissnessfyrirtæki), markaðssetja þau með
jákvæðri glansímynd þar sem velferð dýra á að vera höfð að leiðarljósi og græða
vel á uppátækinu. Þannig sé ég þetta.
En í Ameríku eru það hetjur
sem drepa fólk.
Bresku hvalfriðunarsamtökin
Whale and Dolphin Conservation Society (WDCS) lögðu mjög hart að sér árið 2012
að koma í veg fyrir að fiskur frá HB Granda yrði seldur til íþróttafólks,
starfsmanna og áhorfenda á Ólympíuleikunum undir því yfirskini að þeir vildu
með því stuðla að verndun dýra í útrýmingarhættu og þvinga þannig íslendinga
til hlýðni.
Ja hérna. Líklega eru þessi
bretaskinn búnir að gleyma "Sunday, bloody, sunday".
Norðurameríska
matvælafyrirtækið High Liner Foods sem er að mestu með starfsemi sína í BNA og
Kanada, ætlar ekki eiga frekari viðskipti við HB Granda fyrr en það fyrirtæki
slítur öll tengsl sín við hvalveiðar.
Spurning hvernig HB Grandi á
að stjórna því hverjir kaupa og selja hlutbréf á frjálsum markaði.
Þessir "herramenn" bera auðvitað
við veiðum á dýrum í útrýmingarhættu.
Kanadamenn hafa líka verið að
veiða hvali þó í litlum mæli sé, en eru ekki aðilar að Alþjóða Hvalveiðiráðinu
og eru því svolítið fyrir utan "lög og rétt". Skyldu þeir taka tillit til þeirra
vísindalegu niðurstaðna sem eiga að vera grundvöllur að störfum þess?
Veit ekki, en vert væri að forvitnast
meira um það mál.
Stjórnendur High Liner Foods
hljóta að vera miklar tilfinningaverur sem láta tilfinningar sínar ráða gerðum
sínum frekar en skynsemina. Stór spurning hvort þeir eru í raun þokkalega vel
upplýstir eða láta kannski bara kúga sig til hlýðni vegna uppblásinna skoðana
þess hluta almennings (og fiskkaupenda) sem hefur verið plataður upp úr skónum með
auglýsingum vafasamra "verndarsamtaka"?
Vísindanefndir
Alþjóðahvalveiðiráðsins og Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðsins (NAMMCO)
hafa staðfest að stofnar hrefnu og langreyðar eru báðir ágætlega stórir. Þetta
eru þær tegundir sem Íslendingar nýta og hvorug þeirra er á válista Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna
(IUCN) flokkuð sem dýrategund sem ógn steðjar að.
Þau samtök sem marg ítrekað
hafa gert og eru enn að
Á síðasta ári voru liðin 20
ár liðin frá því norskir hvalveiðimenn unnu sigur í baráttunni við Grænfriðunga
og "friðsamlegar" veiðar á hrefnu gátu hafist á ný.
Slagurinn varð mjög harður
sumarið 1993 þegar Grænfriðungar hugðust stöðva tilraun Norðmanna til að
endurvekja hvalveiðar sínar í atvinnuskyni. Einum hvalbáti var sökkt og hinn
óbilandi baráttumaður fyrir rétti Norðmanna Steinar Bastesen tók sér hvalskutul
í hönd, varð þjóðhetja í kjölfarið og var síðan kosinn á þing eftir slaginn.
Það er skemmtilegt að segja frá því að hann tók gjarnan hvalskutulinn sem varð sigurtákn
hans í "stríðinu" með sér inn í þingsali við mikinn fögnuð stuðningsmanna
sinna.
Sannur víkingur hann Steinar
Bastesen.
Þjóðin stóð þétt að baki
sínum mönnum, jók neyslu sína á hvalkjöti og tryggði þannig hvalveiðimönnum
sigurinn. Að lokum gáfust Grænfriðungar upp og Noregsdeild samtakanna lýsti því
yfir að veiðar á hrefnu við Noregsstrendur væru sjálfbærar.
Hvalir éta gríðarlegt magn af
ýmis konar fiskmeti. 5 milljónir tonna af uppsjávarfiski og bolfiski, 2,5
milljónir tonna af krabbadýrum og ógrynni af smokkfiski á ári hverju. Hrefnan
er talinn skæðust í þoskstofninum, hnúfubakur í síld og loðnu. Hver veit svo nema
þorskurinn sem Hafró týndi hér í eina tíð hafi að hluta til endað á sama stað
og Jónas forðum? Þ.e. í hvalnum.
Við þurfum að geta stýrt
stærð hvalastofna við landið til að jafnvægi haldist í fæðukeðjunni og nytjað
hvali rétt eins og önnur sjávardýr, því friðun þeirra myndi þýða með tíð og
tíma óhóflega fjölgun sem myndi leiða af sér mikinn samdrátt í fiskveiðum.
Nýlega var sýnd athyglisverð
mynd í RÚV þar sem þeirri hugmynd var velt upp hvort skordýr væru svarið við
ört vaxandi fjölgun og í leiðinni fæðuþörf mannkynsins á komandi árum.
Þá er bara spurningin hvort við viljum skordýr frekar en hvalkjöt á diskinn okkar.
Ég skal viðurkenna að ég
horfi stundum á myndbandið sem má sjá ef fylgt er slóðinni http://www.youtube.com/watch?v=2_mS9bLaqtk
og finnst hreint ekkert slæmt við það sem
þar ber fyrir augu. Mér finnst hryðjuverkamaðurinn Paul Watson og
Mér finnst það líka forkastanlegt ábyrgðarleysi
þegar menn á borð við Paul Watson manna skip sín með reynslulausum ævintýramönnum
sem sumir hverjir hafa að öllum líkindum aldrei migið í saltan sjó áður en þeir
sigla á vit ófriðarins. Þeir virðast (alla vega sumir hverjir) ekki vita svo ýkja
mikið um málstaðinn, en virðast kunna ágætlega og utanbókar ýmsa frasa og kennisetningar
sem æðsti presturinn hefur innrætt þeim.
En nei, ég ætla ekki að fara með
starfsmannafélaginu til
Nei alls ekki, og margt af
því er jafnvel betra en gengur og gerist. Það eru bara allir hinir
rugludallarnir sem eru því miður svo mikið bæði leiðandi og ráðandi. Það má því
orða það svo að það sé af pólitískum ástæðum sem ég vil sitja sem fastast á
Íslandinu góða.
Og því er við að bæta að það er leitt til þess að vita að á Íslandi dansa nokkrar óþjóðlegar undirlægjur og Kvislingar villtan dans óvinum okkar til heiðurs.
- 1