Blogghistorik: 2014 Visa kommentarer
30.07.2014 06:54
Skoger til sölu
944. Ég rakst á þessa
auglýsingu þegar ég brá á svolítið á netflakk sem er ekki svo ýkja óalgengt.
Hún birtist í Siglfirðingi síðla sumars árið 1936 og það er ekki alveg laust
við að ég hafa velt aðkomu Andrésar Hafliðasonar að málinu eitthvað fyrir mér,
en eflaust kann hann Jón Andjes þó öll svör við því.
Skoger er búinn að vera huti
af hinu Siglfirska landslagi svo lengi sem flestir sveitungar muna aftur í
tímann. Þó hitti ég burtfluttan mann fyrir nokkru sem sagði mér frá minningum
sínum um það þegar atburðurinn átti sér stað í frumbernskunni og logandi flakið
rak fyrst út, en síðan inn fjörðinn aftur þar til það strandaði þar sem það situr
enn sem fastast. Reyndar er það svo að ég vildi ógjarnan sjá þetta spor sögunnar
hverfa að fullu þó það hljóti samt að gerast í fyllingu tímans.
Skoger nýbyggt við bryggju skipasmíðastöðvarinnar í Svelvik í Noregi, árið 1921.
"Samkvæmt upplýsingum frá norska sjóminjasafninu var
Skoger tréskip, byggt árið 1921 í Svelvik í Noregi. Það var 48 metra langt, 10
metra breitt og það risti 4,5 metra. Vélin var 320 hestöfl. Fyrst var skipið
gert út frá
Í maímánuði 1934 skemmdist skipið þegar eldur kom upp
í því þar sem það var til viðgerðar í Porsgrunn. Skipið var þó gert upp og
tekið fljótlega aftur í notkun. Í skýrslum um norska skipsskaða segir að upptök
eldsins 1936 hafi verið neisti frá gufukatli sem hafi komist í gas. Sama
heimild segir að skipstjórinn hafi fengið áminningu og sekt (40 norskar krónur)
fyrir að hafa björgunarbúnað ekki í lagi".
Um þetta ritar Jónas
Ragnarsson grein sem birtist á síðunni siglfirdingur.is og heitir "Skoger á
Skútufjöru.
Og Jónas skrifar áfram.
"Árið 1936 var gott síldarár. Um miðjan ágúst hafði
"aldrei áður verið veidd líkt því eins mikil síld til bræðslu," að sögn
Morgunblaðsins. Fimmtudaginn 20. ágúst var líflegt um að litast á Siglufirði.
Mörg íslensk síldveiðiskip lágu við bryggju og á annað hundrað erlend skip voru
úti á firðinum. Erlendi veiðiflotinn hafði víst aldrei verið jafn stór. Skipin
voru flest í höfn vegna norðaustan hvassviðris úti fyrir Norðurlandi, en það
hafði staðið í nokkra daga.
Laust eftir klukkan átta að kvöldi þessa dags kom
skyndilega upp eldur í einu norsku skipanna úti á höfninni. Það hét Skoger og
var um 580 brúttótonn að stærð. Skipið hafði komið til Siglufjarðar tveimur
dögum áður. Í því voru um 2000 tunnur af síld sem söltuð hafði verið um borð,
500 tómar síldartunnur og 500 tunnur af salti. Í olíugeymum skipsins voru 8
tonn af olíu (sumar heimildir nefna 30 rúmlestir) og auk þess voru í skipinu
átta föt af smurolíu".
Slóðin að greininni er: http://www.siglfirdingur.is/v.asp?page=251&Article_ID=92
Þær eru ófáar myndirnar sem teknar hafa verið af bænum þar sem Skoger er ýmist í forgrunni eða gæðir myndflötinn lífi og eykur fjölbreytileika hans.
Snemma um vorið 1965 meðan ég var ennþá níu ára fór ég með móður minni og stjúpa, afa og ömmu í bíltúr yfir á Ás. Þá var þessi mynd tekin, en hún sýnir þáverandi ástand á Skoger og auk þess Lukku, hina mjög svo sérstöku trillu hans Magga á Ásnum. Einnig sést ágætlega í búnaðinn sem hann notaði til að draga hana upp í fjöruna þó það sé nú annað mál.
Þessi mynd er tekin tveimur árum
síðar þegar ég var á ellefta ári og farinn að
Og þá alveg eins og nú var Skoger gamli tilvalinn "átylla" fyrir sjófuglana.
24.07.2014 21:40
Led Zeppelin
Led Zeppelin um 1970
943. Síðast liðið
mánudagskvöld dólaði ég í rólegheitunum eftir Dalveginum, áleiðis að
Smáralindinni og stefndi þaðan upp í Lindir. Allt með eins venjubundnum hætti
og hugsast gat, eltandi GPS-ið eins og hlýðinn rakki. Það voru mjög fáir á
ferli og óvenju mikið næði um borð. Ég var saddur og sæll, enda nýkominn úr
matarhléinu sem við fáum á u.þ.b. miðri strætóvaktinni. Ég hækkaði aðfeins í
útvarpinu, en nei, þetta gengur ekki, ég vil ekki hlusta á rapp.
Ég ýtti á takkann þar sem ég
vissi að rás 2 var prógrammeruð og þar kvað við heldur betur annan tón og hann
all góðan.
Þátturinn "Albúmið" var að
fara í loftið, en í honum taka þeir félagarnir Jón Ólafsson (Bítlavinafélagsmaður)
og Kristján Freyr Halldórsson (fyrrum trommari í hljómsveitinni Reykjavík)
fyrir plötur sem hafa haft afgerandi áhrif á rokksöguna. Að þessu sinni var Led
Zepprelin viðfangsefnið, og þá aðallega fjórða plata þeirrar sveitar, en á
henni er m.a. ein mest spilaða rokkballaða allra tíma, Stairway to heaven.
Fyrstu kynnin af þessari
mögnuðu hljómsveit rifjuðust upp fyrir mér og ég gat ekki annað en glott
svolítið út í annað við þá upprifjun, en það var árið 1969 á Gaggóárunum þegar
unglingahljómsveitin Hendrix var og hét. Annar gítarleikarinn í bandinu
Þórhallur Ben, hafði orðið fyrir tónlistarlegri vitrun og í beinu framhaldi af
því skipti hann gamla tónlistarsmekknum út fyrir annan nýjan sem var að hans
mati mun betri og þroskaðri. Hann bauð til sölu gegn vægu verði allar gömlu "kúlutyggjópoppplöturnar"
sínar og hóf markvisst að kaupa þróaðra rokk fyrir lengra komna og í framhaldinu
hlustuðum við strákarnir á Cream, Woodstock og fleira gæðaefni eftir skóla
heima hjá Þórhalli. En það fékkst ekki mikið af svona efni í Föndurbúðinni hjá
honum Júlla Júll blessuðum svo að það þurfti oftast að fá það sent í póstkröfu
að sunnan.
Í eitt skiptið þegar búið var
að aura saman fyrir einum góðum vinylgrip til viðbótar þeim sem fyrir voru, var
hringt í Hljóðfæraverslun Sigríðar Helgadóttur og spurt um afurð meistara Jimi
Hendix og sveitar hans Experience. Ég man að það voru talsverð vonbrigði þegar
því var svarað til að allt efni með honum væri uppselt í bili en ný sending þó
væntanleg innan tíðar. Sá sem svaraði benti hins vegar á nýútkomna plötu með lítt
þekktri hljómsveit sem spáð var mikilli velgengni og mælti eindregið með henni.
Það varð úr að hún var keypt en að mig minnir með talsverðum semingi þó. Þegar
platan kom var hún leyst út og sett á fóninn. Við áttum fá orð yfir það sem
fyrir eyru bar þegar fyrsta lag á síðu A byrjaði. "Good times, bad times"
hvílíkur kraftur, hvílíkir galdramenn voru þarna á ferðinni. Svo komu þau eitt
af öðru, "Babe I´m gonna leave you", "You shock me", "Dazed and Confused",
"Your time is gonna come", "Communication breakdown" og öll hin.
Það var engu líkara en þarna
væri verið að fremja einhverja illskiljanlega tónlistargjörninga sem ekki voru
þessa heims, slíkir voru töfrarnir.
Fjórða LP plata Led
Zeppelin bar engan titil og hvergi var á henni að finna nöfn flytjenda.
En við þá sem eru áhugasamir
fyrir góðri rokktónlist sem nú er löngu orðin klassísk, mæli ég með að þeir
smelli á linkinn http://www.ruv.is/sarpurinn/albumid/22072014-0 og hlusti á þrælgóðan þátt um eðalsveitina Led
Zeppelin.
20.07.2014 10:09
Rigning
942. Þegar ég fór á fætur í morgun, leit ég út um gluggann og sá að það rigndi ekki í
augnablikinu sem verða eiginlega að teljast tíðindi á þessum síðustu og hundblautu
tímum. Það var hins vegar allt rennandi blautt utandyra eftir nóttina sem eru reyndar
alls engin tíðindi. Það rigndi mikið í júní
og þegar ég fór norður fyrstu vikuna í júlí hlýt ég að hafa tekið rigninguna
með mér því þar var varla hundi út sigandi flesta þá daga sem ég staldraði við
og aðsókn á Þjóðlagahátíðina varð með dræmara móti. Ég kenni rigningunni að
mestu leyti um það því dagskráin var glæsileg að vanda. Síðan ég kom að norðan
hefur rignt mismikið hvern einasta dag og útlit er fyrir að þannig verði það
svo lengi sem veðurfræðingar geta séð í kortum sínum.
Mað sama áframhaldi held ég að rigningin fari fljótlega að þrengja sér inn í sálina og setjist þar síðan að um ókomna tíð.
Þetta minnir mig á að árið
sem ég fæddist rigndi líka mikið og þá mest fyrir norðan. Reyndar alveg gríðarlega mikið er mér sagt. Sumarið 1955 hefur löngum verið kennt við hina
geysimiklu úrkomu sem einkenndi það og gjarnan nefnt "rigningarsumarið mikla".
Sé gluggað í gömul blöð sést
að mikillar átu varð vart fyrir norðurlandi og síldveiðin byrjaði fyrr um vorið
en hún hafði gert nokkru sinni áður og var þá mjög góð. Það bjargaði líklega
vertíðinni því seinni hluta sumarsins var veiðin mun dræmari, en í heildina
varð árið harla gott. Alla vega miðað fyrir árin á undan sem höfðu einkennst að
aflaleysi.
Þetta var árið sem Halldór
Laxness fékk Nóbelinn, Ragnar Fjalar Lárusson varð sóknarprestur Siglfirðinga, Jói
dívana tók við rekstri Eyrarbúðarinnar og bæjarstjórnin frestaði byggingu
elliheimilis,
"Ef ánamaðkar hefðu söguvitund
og héldu annála, hefði rigningarsumarið mikla árið 1955 orðið þeim víti til
varnaðar".
var haft eftir háskólanemanum Magnúsi Sigurðssyni í Lesbók morgunblaðsins þ. 9. apríl 2005.
15.07.2014 05:15
Og þá komu menn saman til að gráta...
941. Ég rakst á þessa gömlu en sögulegu Polaroidmynd (hér að neðan) þegar ég var að gramsa í gömlu dóti eins og ég geri svo oft (en
allt of sjaldan þó, því nóg er til). Ég horfði á hana um stund, gruflaði stutta
stund í lágþokubökkum hugans og velti fyrir mér staðnum og stundinni, en eftir svolitla
stund rann upp það ljós sem dugði til þess að varpa ljósi á þetta löngu liðna augnablik og ljúfsára minningarbrot.
Myndin var tekin þ. 9. okt.
1986, eða daginn sem Stöð 2 fór fyrst í loftið og Jón Óttar flutti hljóðlausa ávarpið
sem frægt er
Þá hafði ég rekið
myndbandaleiguna Videóbjörninn við Hringbraut 119 (við hliðina á JL húsinu) í
u.þ.b. tvö ár ásamt þeim Guðnýju Reimarsdóttir, Sverri Tryggvasyni, Pétri Ólafssyni,
Birgi Kristmundssyni og Trausta Reykdal, en hann er Siglfirðingur sem býr á
Eskifrði og er sonur Varða málara sem bjó eitt sinn á Túngötu 10.
Þetta var dagurinn sem
heimurinn hrundi. Ég hafði leigt út heilar fjórar spólur frá því snemma um
morguninn og ástandið var ekkert ósvipað hjá öðrum í bransanum sem ég hafði
haft spurnir af.
Við sem á myndinni erum, vorum
allir góðir kunningjar og samherjar, komum saman að loknum þessum örlagaríka degi
inni á lagernum hjá mér og bárum saman bækur okkar. Við vorum svartsýnir á
framtíðina og töldum víst að nú væri videóævintýrið sem átti að
Á myndinni eru frá vinstri
talið: Ástmundur Gíslason (hálfbróðir Röggu Gísla söngkonu), Ísleifur
Haraldsson (rak nokkrar leigur í Grindavík og á Reykjavíkursvæðinu ásamt Magnúsi
mági sínum og eiginkonum), Jón Björgvins (okkar maður á siglo.is), Ólafur Guðmundsson
og (hálfbróðir Ásmundar) og Árni Sigurjónsson (mágur þeirra Ásmundar og Ólafs),
allt frábærir drengir.
Þeir Ástmundur, Ólafur og Árni
ráku myndbandaleigurnar Videosport að Háleitisbraut, Ægissíðu og í Eddufelli ásamt
myndbandaútgáfu og framleiðslufyrirtækinu Bergvík. Þeir Ástmundur og Árni eru nú
fallnir frá, enÓlafur rekur enn Bergvík ásamt fjölskyldu sinni.
Ég gat ekki setið á mér að vera
svo andstyggilegur að kroppa út andlitið á Nonna Björgvins og stækka það eins
og sést á myndinni hér að ofan, því svipurinn á honum er svo innilega lýsandi
dæmi um ástandið á okkur öllum sem þarna sátum. (Sorrý Nonni).
10.07.2014 17:10
Kominn heim
940. Þá er annar hluti sumarleyfisins að baki og honum var að sjálfsögðu eytt á heimaslóðum, en því
miður í mikilli rigningu nær alla dagana. En skítt með það, þetta var alla vega
miklu meira nærandi fyrir sálina og andann en einhver sólarlandaferð þar sem
maður eyðir tímanum að mestu í að elta skuggann af næsta húsi og kæla sig niður
með öllum tiltækum ráðum eins og ég gerði hérna um árið.
Það var árið 1983, eða kannski
var það 1984 (man það ekki alveg upp á tíu) sem ég dvaldi í heila viku í
svækjunni á Spáni og fannst alveg nóg um þrátt fyrir að senn færi að líða að
lokum septembermánaðar. Dagurinn byrjaði gjarnan á því að ég rölti út á barinn
gegnt hótelinu þar sem ég bjó og fékk mér einn svellkaldann af stærri gerðinni,
gekk síðan upp að hótelblokkinni og settist niður í forsæluna skuggamegin við húshornið.
tíminn leið og sólin sem var á ferðalagi rétt eins og ég, fetaði sig frá austri
til verstur allt þar til hún gægðist fyrir hornið mér til mikils ama. Þá var fátt
annað að
En það var alls ekki þetta
sem ág ætlaði að nefna, heldur það að ég rakst á þessa gömlu úrklippu frá árinu
1949 þar sem bregður fyrir nöfnum manna sem munu lifa í minningunni. Alvörumenn
sem voru sannir góðborgarar síns tíma og settu svo sannarlega svip sinn á bæjarbraginn og það svo um munaði.
- 1