Blogghistorik: 2013 Nästa sida
28.04.2013 09:24
Þór og vagninn hans
866. Í hinum norrænu goðafræðum er þrumuguðinn Þór sem einnig er kallaður Ása-Þór eða Öku-Þór, sagður eiga nokkra dýrgripi sem einkenna hann. Fyrst má nefna vagn sem hann ferðaðist á, en hann var dreginn af tveimur höfrum sem hétu Tanngrisnir og Tanngnjóstur. Á ferðum sínum hafði Þór þá oft til kvöldverðar, en safnaði svo beinum þeirra saman eftir matinn og vígði þá síðan til lífs á ný með hamri sínum. Vagninum ók hann um himininn og það fylgdu honum þá bæði þrumur og eldingar.
-
Ekki veit ég hvort verk það sem myndin er hér að ofan hefur verið orðið fyrir niðurskurðarhníf Jóhönnu Sig. og Steingríms J., en ég fæ ekki betur séð að hafurinn sé nú aðeins einn. Það er svo annað mál að það vekur örugglega eftirtekt þeirra sem fram hjá fara og hefur eflaust einnig alla burði til að lífga upp á umhverfið þar sem mér þykir líklegt að því verði komið fyrir.
Og eins og einnig má sjá, þá stendur það við vélaverkstæði í Hafnarfirði á vagni sem merktur er "Straumsvík" sem hlýtur því að gefa ákveðna vísbendingu um hver gæti tengst gerð þess, og miðað við áferð þess gæti það vel verið gert úr áli.
21.04.2013 08:24
Til hamingju Ásdís María
865. Hún Ásdís María Viðarsdóttir fór með sigur af hólmi í
Söngkeppni framhaldsskólanna í gærkvöldi ásamt Oddi Inga Kristjánssyni, en þau
kepptu fyrir MH. Þannig heyrði ég fréttina í útvarpinu í gærkvöldi, en var ekki
alveg viss um að ég hafi heyrt rétt. Ég kveikti því á sjónvarpinu, notaði "I" takkann til að galdra keppnina upp á skjáinn,
og viti menn; þarna mátti sjá svo að ekki varð um villst að ég hafði heyrt rétt.
Ásdís söng lagið Pink matter eftir
-
Um Ásdísi er það að segja að hún vinnur með skólanum í Spúútnik
í Kringlunni, en föt og fatatíska virðist tengjast genunum rétt eins og tónlistin,
því Anna Sóley systir hennar rekur fataverslun við Stefansgade í Kóngsins Köben
ásamt vinkonu sinni sem er fatahönnuður. Þá er ekki hægt annað en að minnast á
bróðir hennar Arnar Inga Viðarsson sem spilaði með hljómsveitinni Moðhaus í
músiktilraunum með ágætum árangri hérna um árið. Eftir nám í Tónlistarskóla FÍH
þótti hann með efnilegri trommurum og er það reyndar enn, en undanfarið hefur
hann verið við nám í
En ástæðan fyrir þessum skrifum mínum um hana Ásdísi er að hún er frænka mín sem ég er ákaflega stoltur af. Reyndar er hún og hefur alltaf verið mjög mikil og góð frænka, dóttir Sæunnar systur minnar og Viðars Daníelssonar sem er Eyfirðingur innan "Akureyris". Um hana verður ekki annað sagt en að hún hefur alltaf verið uppátækjasöm, með ólíkindum ákveðin og stendur alltaf fast á sínu, hugmyndarík, listfeng, og svo mætti lengi telja og allt í plús. Hún hefur verið í tónlistrnámi um margra ára skeið, spilar m.a. á Celló og kassagítar, en hefur ofan á þetta allt saman englarödd sem á það þó til að breytast í eitthvað allt, allt annað og öðruvísi eins og kom svo glöggt fram í nýafstaðinni keppni.
Hún hljómaði eiginlega rétt eins og íslenska veðrið á umhleypingasömum degi.
-
Ásdís María, - rosalega er ég góður með mig núna fyrir að vera frændi þinn.
18.04.2013 01:36
Í Skarðdalsskógi
06.04.2013 02:34
Nokkrar myndir frá Bítlamessu
- 1