Blogghistorik: 2011 Författad av
26.09.2011 08:15
Það haustar á heimaslóðum
Ég rakst á eftirfarandi frásögn á http://andvari.vedur.is/snjoflod/haettumat/si/si_annall.pdf þar sem sagt er frá atburðunum sem áttu sér stað í apríl 1919.
Veturinn 1919 var einn af snjóþyngstu vetrum þessarar
aldar. Mörg snjóflóð féllu í
mars og apríl í þremur landshlutum og mikið mann- og
eignartjón hlaust af. Á
Siglufirði féll stórt snjóflóð úr Skollaskál í
Staðarhólsfjalli, austan megin fjarðar á
verksmiðjur í eigu Olav Evangers. Í bók Ólafs Jónssonar
(1957), Skriðuföll og
snjóflóð, er greinargóð lýsing á þessu flóði og frásögn hans
birt orðrétt hér á eftir.
Fyrri hluti aprílmánaðar var mjög stirt tíðarfar um
norðanvert landið. Vikuna 5-12.
apríl voru látlausar austanstórhríðar á Siglufirði, og var
svo enn þann 12., að hríðin
var svo dimm, að eigi sá milli húsa í Siglufjarðarkaupstað,
og hafði kyngt niður
feiknasnjó. Þeir, sem þennan morgun voru á ferli niður við
höfnina á Siglufirði, urðu
þess varir, að þar höfðu gerst stórtíðindi um nóttina.
Bátar, sem verið höfðu rammlega
bundnir við bryggjurnar, höfðu slitnað upp, sumir brotnað
meira og minna. Niður á
Öldunni var hvert smáfar, er þar stóð á landi, brotið, og
þilskip, er þar höfðu staðið
mörg ár í skorðum, höfðu færst til, oltið á hliðina og lagst
þversum. Við Goosbryggju
lágu tvö þilskip, voru bæði mikið brotin, og annað hafði
færst að hálfu upp á
bryggjuna, en þó runnið niður af henni aftur. Kraparöst og
stór klakastykki lágu langt
upp á eyri.
Fyrst hugðu þeir, er þetta sáu, að brim hefði valdið þessu
umróti, en sú skýring
reyndist ófullnægjandi, því bæði var um morguninn sjólítið
og áttin svo austlæg, að
brim gat ekki hafa orðið inn á fiðri, og svo kunnu
skipshafnir, sem legið höfðu í
skipunum um nóttina, frá því að segja, að klukkan fjögur um
nóttina hefðu þær
vaknað við það, að skipin tóku ógurlega veltu, slitu af sér
böndin og lömdust við
bryggjurnar, svo að allt ætlaði um koll að keyra, og gekk
sjórinn hátt á land. Eftir
nokkra hríð tók að draga úr þessum ósköpum, og komst aftur
kyrrð á. Eina skýringin á
þessu umróti gat því verið sú, að snjóflóð mikið hefði
fallið austanmegin fjarðarins úr
Staðarhólsfjalli, og rifjuðust upp sagnir um það, að árið
1839, þ. 23. des., hefði
snjóflóð fallið sunnan Staðarhóls í Siglufirði og valdið
miklum skemmdum
fjarðarins. Nú stóðu á því svæði, þar sem þetta snjóflóð
hafði fallið, síldarverksmiðja
Evangers, tvö íbúðarhús, sem búið var í, og fleiri
byggingar. Þá voru Skútubæirnir,
Efri- og Neðri-Skúta, í hættu og tómthús suður við Skútuána,
Árbakki og Landmót.
Var nú þegar brugðið við og safnað liði, og fóru 12-15
röskir menn, undir forustu
Guðmundar Skarphéðinssonar, skólastjóra, á vettvang.
Vatnslitamynd af Evangerverksmiðjunni eftir Örlyg Kristfinnsson sem er á skilti við rústirnar.
Þegar þangað var komið, fengu þeir grun sinn staðfestan.
Snjóflóð mikið hafði
hlaupið niður úr svokallaðri Skollaskál í Staðarhólsfjalli.
Hafði það sópað burtu
síldarverksmiðjunni, íbúðarhúsunum tveimur, sem búið var í,
síldarhúsi Olav
Evangers, sem stóð nokkru sunnar með sjónum, bryggjum og
söltunarpöllum. Eftir
stóð aðeins eitt hús, nyrsta byggingin, sem var mannlaus. Þá
hafði flóðið farið yfir
Neðri-Skútu, brotið bæinn niður og fært á kaf og sópað burtu
húsinu niður við sjóinn,
sem nefnt var "Bensabær". Hugðu leitamenn fyrst, að flóðið
hefði sópað öllum
þessum byggingum burt og þeir, sem í þeim voru, hefðu allir
farist. Grófu þeir nokkuð
þar, sem Skútubærinn átti að vera, en urðu einskis varir og
sneru þá heim á leið. En er
þeir voru komir niður á Skútugrandann stakk einn þeirra,
Björn Jóhannsson, við fót og
mælti: "Ég sný við. Það er óafsakanlegt að fara svona heim.
Það er ekki búið að leita
nóg þarna á Skútu." Varð það úr, að fjórir menn sneru aftur,
en flestir leitarmenn voru
komnir svo langt á undan, að þeir gátu eigi haft samband við
þá. Með þessum fjórum,
er aftur sneru, fóru svo einhverjir frá Árbakka og
Landmótum. Hófu þeir þegar að
grafa niður á baðstofuþekjuna og höfðu aðeins mokað í stutta
stund, er þeir heyrðu að
barið í þekjuna innan frá. Var þá Sigfús Ólafsson á Árbakka
þegar sendur yfir í
kaupstað til að sækja liðsauka og lækni. Var þá enn safnað
liði í skyndi og tekinn
hver, sem í náðist, og sendur til hjálpar.
Þegar hjálparliðið kom á vettvang, var þegar búið að rjúfa
þiljuna og bjarga
sumu af fólkinu, og var það flutt jafnharðan að Árbakka.
Þegar liðsauki barst, tókst
bráðlega að ná öllu fólkinu. Ekkert af því var stórslasað,
en allt aðþrengt af loftleysi
og meira og minna marið. Þessum var bjargað þarna: Einari
bónda Hermannssyni og
konu hans, Kristínu Gísladóttur, ásamt börnum þeirra
Hermanni, Ólöfu og Septínu.
Hermann var verst farinn og fékk ekki meðvitund fyrr en um
kvöldið. Hann var á
tvítugsaldri. Þá var bjargað fósturdóttur hjónanna,
Þorbjörgu Guðmundsdóttur, og
Hólmfríði Jónsdóttur, ekkju Jóakims Jónssonar á Skútu. Hún
var vinnukona.
Frásögn þessa fólks bar saman við það, er áður var vitað.
Flóðið hafði fallið um
kl. fjögur um nóttina. Einar bóndi hafði heyrt klukkuna slá
rétt áður. Það hafði að
nokkru hlíft baðstofunni, því ofan við hana stóð töðuhey. Var
torf freðið og
endinn sem vissi að fjallinu, lágur. Flóðið hafði farið
yfir heyið og skollið niður á
mæni baðstofunnar, brotið sperrurnar, sem voru grannar, lagt
mænisásinn niður á gólfið
endilagt, en sperrubrotin höfðu lagst skáhallir af
lausholtunum inn á gólfið og haldið
uppi að nokkru súðinni yfir rúmunum, sem voru meðfram
veggjunum, og hafði það
bjargað fólkinu. Stafninn hafði fallið suður. Sperrukjálki
yfir rúmi Einars bónda hafði
þó brotnað þannig, að þekjan lá á brotunum yfir brjósti
hans. Hafði bringubeinið
marist mjög og gengið inn, og varð hann aldrei jafngóður.
Framhús, með þilvegg fram
á hlaðið, hafði sópast burt og langt niður á mýri. Flest
bæjarhús önnur voru brotin
niður, þar á meðal fjósið. Í því voru þrír nautgripir, er
höfðu kafnað. Þegar búið var að
bjarga fólkinu, var gengið að því að rjúfa fjósrústirnar.
Var það illt verk, því að hríðin
var svo mikil, að oft fyllti jafnharðan það, sem mokað var.
Þó tókst um síðir að ná upp
hinum dauðu gripum. Einhverju var einnig bjargað af búsmunum
og fatnaði úr bað-
stofurústunum, en allt var það stórskemmt og illa útleikið.
Ekki var snjóþekjan mjög
þykk ofan á rústum af Skútubænum, því að hann var í
suðurjaðri hlaupsins. Fólkið í
baðstofurústunum hafði heyrt, er Siglfirðingarnir komu fyrst
á staðinn og hófu
mokstur, en hættu svo aftur og hurfu frá. Olli það því hins
mesta angurs, því að það
hugði alla von um björgun úti.
Ekki tókst að koma lækni á staðinn sama dag og fólkið var
grafið upp. Læknir
var þá Guðmundur T. Hallgrímsson, var hann lítt fær til
gangs, en ófærð geysileg. Var
reynt að fara leirurnar og bera lækninn, en krapaelgur var
svo mikill, einkum er austar
dró, að leiðangurinn varð að snúa aftur og komast til sama
lands við illan leik. Sendi
læknirinn meðul og fyrirmæli um, hversu með skyldi fara.
Næsta dag var veður betra,
og gat hann farið á skíðum að vitja fólksins. Þegar lokið
var að grafa upp fólkið á
Skútu, var leitað vandlega í rústum annarra mannabústaða,
sem snjóflóðið hafði fallið
á. Af Bensabæ var ekki urmull eftir, aðeins kjallarahola,
sem verið hafði undir
bænum, en í henni fannst ekkert.
Þar höfðu farist: Benedikt Gabríel Jónsson, ættaður af
Vestfjörðum, kona hans,
Guðrún Guðmundsdóttir frá Bakka í Austur-fljótum, og tvær
dætur þeirra á
barnsaldri.
Verksmiðjunni og öllu tilheyrandi hafði sópað burt, nema
nyrsta húsinu og
tveimur vanhúsum . Þar hafði kraftur flóðsins verið svo
mikill, að handleggsgildir
járnbjálkar í verksmiðjunni höfðu kubbast sundur, eins og
þeir væru hrífusköft, og
múrveggjum og steyptum undirstöðum véla hafði flóðið velt,
eins og það væri
spilaborg, en sópað burtu geysiþungum vélabáknum. Hafði
þetta ýmist farið fram af
bakkanum í sjóinn eða niður í geypi stóra síldarþró. Bæði
húsin, sem búið var í, voru
þurrkuð burt. Af öðru húsinu, sem var mjög rammgjört, var
aðeins eftir gólfið, að
mestu óbrotið. Þarna fórust tvær fjölskyldur: Lars Sæther og
kona hans Luise. Sæther
hafði umsjón með verksmiðjunni og hafði búið þarna nokkur ár
í skrifstofuhúsi norður
af verksmiðjunni, og Friðbjörn Jónsson, ásamt konu sinni,
Guðrúnu Jónsdóttur,
Dagssonar, og fóstursyni, Alfreð Alfreðssyni, átta ára. Þau
bjuggu í húsi, er reist hafði
verið úr tvíplægðum plönkum fyrir verkafólk. Það var austan
við verksmiðjuna. Alls
höfðu farist þarna níu manns.
Tjónið af snjóflóði þessu var afar mikið. Auk verksmiðjunnar
og þeirra húsa,
sem þegar eru talin, eyðilögðust tvö stór geymsluhús,
síldarplan, bryggjur, mikið af
tunnum, mörg hundruð föt af lýsi, og höfðu þau brotnað í
hundraðatali í síldarþró
verksmiðjunnar innan um vélarbrakið. Síldarþrærnar voru tvær
úr járnbendri
steinsteypu. Framveggur syðri þróarinnar hafði sópast í
sjóinn, en sú nyrðri var
sprunginn. Aðaleigandi verksmiðjunnar var Gustav Evanger, en
bróðir hans, Olav, átti
stóra síldarstöð spölkorn sunnan við verksmiðjuna. Þar hafði
allt sópast burt, pallar,
bryggjur og tvö eða þrjú pakkhús full af tómum síldartunnum.
Þá hafði öll búslóð og
matvæli eyðilagst í húsunum þeim er flóðið tók. Á
Neðri-Skútu björguðust þó nokkrar
kindur, er voru í húsi suður og niður við sjóinn. Hér við
bættist svo tjón það, er varð á
skipum og mannvirkjum
bryggjur hafi eyðilagst að meira eða minna leyti: Bakkevigs,
Henriksens,
Íslandsfélagsins, Jakobsens og Tuliníusar, en margar aðrar
skemmst. Fjöldi árabáta og
uppskipunarbáta stórskemmdust. Vélbáturinn Georg mölbrotnaði
og sökk, og ýmsir
aðrir vélbátar skemmdust. Talið var, að eignartjón af þessu
eina snjóflóði hafði numið
hálfri annarri milljón króna.
Þegar upp birti hríðina, var svo mikið af braki við
fjarðarbotninn, að kalla mátti
að hægt væri að ganga þar þurrum fótum á timbri þvert yfir
fjörðinn. Var þar meðal
annars í heilu lagi rishæðin af einu húsi O. Evangers, og
var hún full af nýjum
síldartunnum. Rekaldi þessu skolaði að mestu út aftur, og
var því bjargað á land út á
Siglunesi og víðar við fjörðinn, og það selt á uppboði.
Óðar og upp rofaði, var hafin leit að líkum þeirra, er
farist höfðu, og leitað á
hverri fjöru dag og nótt af mörgum mönnum í nærri hálfan
mánuð. Á pálmasunnudag,
13. apríl, fannst lík Sæthers sunnan við "Anlæg" timburhólma
suður á leirum. Lá hann
í rúmi sínu eins og hann svæfi, með hendur á brjósti, og
sáust á honum engir áverkar,
utan lítið gat á enninu. Taldi læknir, að hann hefði andast
snögglega í svefni. Næsta
morgun fannst lík Benedikts og annarrar dóttur hans, og
síðar lík Guðrúnar konu hans.
Lík Guðrúnar Jónsdóttur fannst á þriðjudag og enn síðar lík
hinnar dóttur Benedikts,
en lík frú Sæther fannst eigi fyrr en eftir eina viku. Lík
Friðbjarnar og fóstursonar
hans fundust aldrei.
Þessa mynd er einnig að sjá á skilti við rústir Evangerverksmiðjurnar og ég þykist vita að Örlygur Kristfinnsson eigi mestan heiður af. Bæir og hús sem eru merkt inn á myndina eru frá vinstri talið; Staðarhólsbærinn, Evangerverksmiðjan, Söltunarstöð Olavs Evanger, Bensabær og Neðri Skúta.
Jón Jóhannesson segir að breidd snjóflóðsins, að norðurjaðar
þess hafi verið 15-
20 föðmum sunnan við Rjómalækinn, en syðri jaðar þess hafi
verið fimm föðmum
sunnan við suðurgafl baðstofunnar að Neðri-Skútu. Á öllu
þessu svæði hafi flóðið
ekki aðeins sópað öllum snjó niður á beran jarðveg, heldur
einnig rifið upp gjót og
harðfreðin þúfnabörð. Bar það mikið grjót bæði á tún og
engi. Var nokkuð hreinsað
burtu, en sumt voru óhreyfanleg stórbjörg. Kvísl úr hlaupinu
hafði farið sunnan við
Staðarhólstúnið, en mörg smærri hlaup höfðu orðið norðan á
Staðarhólsströndinni,
það syðsta rétt norðan við Staðarhólsbæinn. Af ótta við ný
snjóflóð, þorði fólkið ekki
að haldast við á bæjunum austan fjarðarins, Staðarhóli og
Efri-Skútu, en flutti yfir í
kaupstaðinn. Neðri-Skútufólkið var flutt þangað óðar og það
var flutningsfært og fékk
þar íbúð.
Snjóflóðin komu víðar við í Siglufjarðarhreppi að þessu sinni. Á pálmasunnudag, 13. apríl,
féll allbreitt snjóflóð úr Siglunesnúpi yfir
túnið á Siglunesi sunnanvert,132
bar með sér mikið grjót og eyðilagði stóran hluta af túninu.
Munaði litlu, að hlaup
þetta, sem var kraftmikið, ylli slysi. Það féll á fjórða
tímanum um daginn, og voru þá
sumir karlmenn frá Nesi að bjarga reka og enginn á leiðinni
milli þeirra og bæjar, en
hundur, sem með þeim hafði farið og líklega verið á heimleið
aftur, lenti í flóðinu.
Kom hann þó heim, að Nesi aftur seint um daginn,
ólemstraður, en ruglaður og illa til
reika.
Auk þessara flóða féllu nokkur flóð í nágrenni Siglufjarðar.
Auk flóðsins á
Siglunesi og í hlíðinni norður af slysstaðnum féllu tvö flóð
í Héðinsfirði og létust þar
tveir menn. Einnig féll flóð í Engidal, vestan við
Siglufjörð, á bæinn Engidal sem var
ystur Dalabæjanna. Þar fórust allir sem í bænum voru eða
alls sjö manns. Í þessari
Í frásögn eftir Sveinbjörn Sigurðsson er sagt frá tildrögum þess að tveir menn fórust í Héðinsfirði.
"Sama dag og snjóflóðin féllu í Siglufirði, féllu tvö snjóflóð í Héðinsfirði. Þar fórust tveir
menn. Á Sandvöllum vestan óss voru beitarhús frá Vík. Þar voru þrír menn að sinna
gegningum sauðfjár. Einn af þeim
var afi
Þorsteinsson, sem var einnig bóndi í Vík, hafði farið nokkuð á undan hinum með heypoka
á baki. Þeir voru að leggja af stað, er snjóflóð kom fram af svokölluðum Kleifum sem eru
Víkurmegin austan fjarðar. Varð Páll fyrir því, barst með því fram á sjó og fórst þar. Einnig
féll snjóflóð á Ámá sem er framar í firðinum þennan dag. Þar fórst Ásgrímur Erlendsson,
mágur Páls. Í þessari páskaviku árið 1919 fórust alls átján manns í snjóflóðum í þessum
byggðum á Tröllaskaga".
-
Einnig er talið að þann hinn sama dag hafi fallið flóð á bæinn í Engidal sem er annar Úlfsdala austan við Siglufjörrð. Þar fórust allir á bænum eða alls sjö manns, mest konur og börn því karlmennirnir voru við útróðra. Slysið í Engidal uppgötvaðist þegar póstbáturinn sem sigldi milli Siglufjarðar og Hofsóss sigldi hjá. Þar mun Skapti á Nöf hafa verið skipstjóri og til er ítarleg frásögn af þessum vofeiflegu atburðum sem birtist í septemberhefti "Heima er best" árið 2003. Tóku skipsverjar eftir því að ekki rauk úr Engidal. Þeim fannst þeim það undarlegt í slíkum kulda sem þá var, en þess utan gátu þeir heldur ekki séð bæinn. Það var því ekki fyrr en þ. 16. apríl, eða miðvikudaginn fyrir páska sem tíðindin bárust til Siglufjarðar. Voru menn þá sendir í skyndi til að athuga hvernig umhorfs væri og reyndist aðkoman ömurleg. Þegar grafið var niður að baðstofunni kom í ljós að hún hafði fallið niður undan snjóþunganum og allir heimilismenn látist. Eina lifandi veran sem slapp úr snjóflóðinu var heimilishundurinn Skoppa.
22.09.2011 17:48
Sýnishorn frá Blomma
20.09.2011 07:21
Rauður himinn á Vatnsskarði
14.09.2011 01:40
Fossarnir í Skútudal
752. Þær eru fleiri náttúruperlurnar
í firðinum okkar en allt of margir gerir sér grein fyrir, og meira að segja eru
þær margar hverjar "right under our nose" eins og það er sagt á "erlensku". Fyrir
nokkru lagði ég leið mina upp í Hestskarð til að kanna uppgönguleið á Pallahnjúk,
en á niðurleiðinni myndaði ég ótrúlega fallega fossa sem eru í öðrum læknum sem
renna úr Hestskarðsskálinni. Og þó þeir hafi sést áður hér á síðunni og það
ekki fyrir svo löngu síðan, finnst mér ekkert að því að rifja flottheitin upp.
Ég gerði mér svo ferð skömmu síðar til að skoða hinn lækinn sem rennur úr sömu skál, en í honum eru líka nokkrir mjög athyglisverðir fossar. Leiðin lá fyrst að munna Héðinsfjarðargangna, en þegar þangað var komið beygði ég til hægri inn Skútudalinn og áleiðis að Borholunum. Rétt fyrir sunnan munnann er komið að báðum lækjunum. Þar sem ég hafði þegar myndað þann nyrðri, hélt ég áfram og staldraði við þann syðri.
Og þá er enn eftir að skoða fjölmarga litla fossa sem eru ofarlega í Skútuánni.
08.09.2011 13:39
Hjálpum þeim
751. Axel Einarsson fyrrum
meðspilari
Slóðin á myndbandið er: http://www.youtube.com/watch?v=HkbvEyIACog
03.09.2011 16:30
Rígmontinn afi
01.09.2011 00:50
Haustið er komið
749. Sumri er greinilega tekið að halla, dagurinn hefur verið að styttast og nóttin að lengjast smátt og smátt án þess að allir hafi endilega tekið eftir því. Skuggarnir eru byrjaðir að gægjast yfir lönd og höf þegar það er orðið kvöldsett og svo mætti lengi halda áfram. Hér norður á Siglufirði hefur ferðafólki fækkað ört á tjaldstæðinu síðustu dagana, en þar hefur oft verið ansi þéttbýlt í sumar. Það styttist líka í að skólar opni dyr sínar fyrir nemendum sínum á komandi haustönn og um sama leyti breytist takturinn í mynstri svo marga okkar. Einum kaflanum er að ljúka rétt einu sinni enn, annar að hefjast og vetrardagskráin byrjuð að mótast.
Eitt af því sem ótvíræð vísbending um að haustið sé á næsta leyti, er þegar sviðið við Ráðhústorgið er tekið níður spýtu fyrir spýtu.
Tjaldstæðið er alveg autt.
Það situr enginn í flottu stólunum fyrir sunnan Rauðku.
Og síðustu menjar Njarðarplansins sem svo mikið hafa verið myndaðir í sumar með smábátahöfnina í baksýn, hafa misst spón úr aski sínum eða öllu heldur nokkra staura úr svipmóti sínu vegna færslu Snorrabrautar.
Ég held að ég fari líka að pakka saman og þetta mun því vera síðasta bloggið sem póstað er frá Siglufirði í bili.
01.09.2011 00:48
BILAÐ
748. Teljarinn sem mælir fjölda heimsókna inn á síður þeirra sem notast við 123.is mun vera bilaður. Mér fannst skrýtið þegar heimsóknum hingað inn fækkaði um helming milli daga, og síðan helmingaðist helmingurinn aftur skömmu síðar. Ég var ekkert að velta þessu fyrir mér fyrr en nokkrum dögum síðar og fór þá að skoða aðrar 123.is síður sem ég þekkti eitthvað til. Þessi breyting er alveg á línuna og til dæmis eru vinsælustu síðurnar hjá þessu fyrirtæki sem alla jafna voru með 500 - 700 heimsóknir á sólarhring, nú aðeins með á bilinu 100 - 200. Ég sendi inn fyrirspurn, en henni hefur ekki verið svarað. Alla vega ekki enn þá, en yfirleitt berast svör frá vefstjóra því sem næst um hæl. Mér reiknast svo til að eins og staðan er núna, sé ekki langt frá lagi að margfalda sýnilega tölu á teljara með 4. Þá var erfitt að koma inn myndum um tíma, blogg birtust ekki fyrr en einhverjum klukkustundum eftir að þau voru vistuð og öll vinnsla varð mun hægari.
En þetta á eflaust sínar skýringar. Nýlega hófust endurbætur á kerfinu og líklega er enn verið að vinna úr einhverjum hnökrum sem svona breytingum fylgja gjarnan.
- 1