Blogghistorik: 2015 N/A Blog|Month_3
21.03.2015 11:14
Í tilefni mánaðarins
MOTTUMARS
Í byrjun þessa mánaðar sem nú
er langt liðið á, var hárið sett í tagl, stóru rakgræjurnar teknar fram og
látið vaða á jólasveinaskeggið sem hafði fengið að vaxa óáreitt í tæpt ár.
Mottumarsinn nú er eins og hin fyrri ár, áminning til okkar karlanna að huga að jákvæðum lífsstílsbreytingum sem komið gætu í veg fyrir krabbamein og einnig því bráðnauðsynlega heilsufarseftirliti sem því miður er sjaldnast sinnt sem skyldi.
HRAUSTIR MENN FARA TIL
LÆKNIS!
Ristilkrabbamein er eitt
algengasta krabbamein meðal karla og þriðja algengasta dánarorsök krabbameina.
Í hverri viku deyr einn Íslendingur vegna þess, sem því miður eru óþarflega
margir vegna þess að allt of mikið vantar upp á að hugað sé tímanlega að þeim
forvörnum sem eru þó sjálfsagðar og kosta ekki mikið. Allir ættu að fara a.m.k.
árlega í læknisskoðun sem vel mætti kalla ástandsskoðun, þar sem hugað yrði að
helstu heilsufarsþáttum, svo sem blóðþrýstingi, blóðsykri, hæð, þyngd, fituprósentu
o.fl. Við förum með bílana okkar í skoðun og finnst það fullkomlega eðlilegt,
en gleymum því miður okkur sjálfum allt of oft.
Þá má ekki gleyma því að mikilvægustu þættir í forvörnum gegn sjúkdómum almennt
í dag eru reglubundin hreyfing, hollt mataræði, nægur svefn, hóflegt álag og
andleg vellíðan. Það vitum við auðvitað, en samt er full átæða til að krefja
okkur sjálf svara um hvort við tökum nægilega mikið mark á þeim sannindum.
KEPPNI EÐA ÁMINNING
Það er auðvitað hið besta mál
að efna til ýmissa leikja og keppna í kring um mottumarsinn, því slíkt vekur
bæði athygli á þessu brýna máli og styður í flestum tilfellum fjárhagslega við
Krabbameinsfélagið sem ekki er vanþörf á. En slíkt hentar þó ekki öllum, og
eftir stendur að mottan hvort sem hún er á okkur sjálfum eða aðrir í kring um
okkur skarta henni hver með sínum hætti, er áminning sem ber að taka alvarlega.
JAFNGAMALL
Það vekur vissulega blendnar
tilfinningar þegar ég minnist þess að akkúrat núna er ég jafngamall stjúpa
mínum honum Hauki Stefánssyni málara og kennara sem bjó á Sauðárkróki, þegar
hann fékk ristilkrabbamein sem leiddi hann til dauða á fáeinum vikum frá því að
það uppgötvaðist. Slíkt vekur mann til umhugsunar um hvort ekki sé rétt að taka
þessi mál fastari tökum og hringja í doksa helst á morgun til að panta tíma.
- 1