23.05.2009 04:26
Logandi himinn
568. Um fjögurleytið á aðfararnótt laugardagsins var ég að koma frá Catalinu eftir föstudagsballið. Þetta var skömmu áður en ský hrönnuðust upp á himni og flóðgáttir opnuðust.Sólin hafði skriðið rétt undir sjóndeildarhringinn eins og henni er svo tamt að gera á þessum árstíma og svo auðvitað einnig á þessum tíma sólarhringsins. Þar sem ég átti leið um Lundarbrekkuna í Kópavoginum og var eins og oftast með myndavélina í vasanum, var eins og flestir hljóta að skilja um fátt annað að ræða en staldra við og hefja létta "skothríð" að rauða litnum á festingunni. Þegar ég kom heim fáeinum mínútum síðar var allt orðið ´grátt og hundblautt. Svolítinn hluta afurðanna má svo sjá hér að neðan.
Skrifað af LRÓ.