12.01.2012 01:04
Þegar Chrysler Windsor kom til Siglufjarðar
Gott eintak af Chrysler Windsor 1947
792. Chrysler framleiddi Windsorinn frá 1939 og eitthvað fram á sjöunda áratuginn. Þessi eðalvagn var (og er) m.a. með hálfsjálfvirkri gírskiptingu (Fluid drive) sem var algjör nýlunda á sínum tíma þegar framleiðslan hófst. Hún virkar þannig að ef bíllinn er settur í fyrsta gír, þá skiptir hann sér sjálfur í annan gír, og úr þeim þriðja í þann fjórða. Bíllinn er glæsilegur í alla staði, verulega stór og rúmgóður, sætin yfirleitt klædd plussi, mælaborðið er með því fallegasta sem sést hefur og húddið er langt og mikið.
Einn slíkur var fluttur inn alveg splunkunýr árið 1947 af
Ludvig Storr Chryslerinn sem var kaupmaður og aðalræðismaður Dana hér á landi. Hann
var ljósgrænn í upphafi, en hefur einu sinni verið sprautaður. Plusssætin eru
drapplituð og mælaborðið með viðarlit. Ludvig Storr átti þennan bíl lengi, fór á honum víða um land með konu sinni Svövu Storr, og voru þá gjarnan erlendir gestir með þeim í för. Þessum bíl tengist veröld sem var, þegar þéringar tíðkuðust og góðir
mannasiðir voru iðkaðir af yfirstéttinni. Menn opnuðu undantekningalaust dyr fyrir
dömunum og tóku ofan hattinn þegar mæst var á götu. Þessi heimur er með öllu horfinn, en upp er runnin öld gallabuxna og stuttermabola þar sem allir eru alltaf að flýta sér. Á þessum tíma var
frú Bodil Begtrup sendiherra Dana á Íslandi og fyrsti kvenkyns sendiherra
heims, gift fyrrverandi sendiherra, Bolt Jörgensen, sem m.a. var sendiherra Dana
í Rússlandi. Á milli Storrhjónanna og sendiherrahjónanna var góður vinskapur og
þau ferðuðust oft saman. Eitt sinn lá leiðin til Siglufjarðar og erindið var að
heimsækja danska konsúlinn Aage Schiöth. Þetta var löngu áður en Strákagöng voru gerð, svo
ekki var um annað að ræða en aka yfir Siglufjarðarskarð sem þá var mun erfiðara
yfirferðar en nú er, þrátt fyrir að það hafi verið lagt af að öðru leyti en því að
vera túristavegur yfir hásumarið. Hinum fyrrverandi sendiherra, Bolt Jörgensen, leist hreint
ekkert á ferðina upp í skarðið og vildi komast út úr bílnum og ganga upp. Frú
Svava Storr bauðst þá til að koma aftur í til hans og lesa fyrir hann íslensk
ljóð á uppleiðinni. Þá sagði Bolt: "Hvis du
Bíllinn sem Ludvig Storr átti eftir að búið var að gera hann upp og sprauta.
Ef einhver skyldi hafa áhuga
að eignast svona glæsikerru, þá er því miður ekki mikið um þær á
bílasölum nú orðið. Þó var einn seldur á nýliðnu ári, á hann var sett kr. 800
þús., en sá mun hafa þarfnast verulegrar aðhlynningar. Ég rakst hins vegar á
1947 árgerðina á amerískri síðu, en þar var toppeintak boðið á $94,500 eða u.þ.b.
11,7 millur.
Ludvig Storr ásamt Svövu konu sinni og gestum í Almannaskarði.
Og ein smásaga í lokin: Eitt sinn sem oftar var konsúlnum og Chrysler Windor Ludvig Storr boðið til veislu að Bessastöðum, en hann var aðeins í meðallagi sleipur í íslenskunni. Frá forsetabústaðnum er fallegt útsýni og stutt niður í fjöru, en mjög var útfallið þegar veislan stóð sem hæst. Ludvig Storr stendur þá við gluggann, horfir á fjöruna og segir: "Það er mikið fjör hér á Bessastöðum."
Heimildir: Mbl.is, Wikipedia, askautoexperts.com, cars.trovit.com.