29.08.2011 18:57

Fugl dagsins



746. Ég man að fyrir margt löngu síðan var spiluð upptaka með hljóði einhverrar fuglategundar rétt fyrir hádegisfréttir á gömlu Gufunni. Liðurinn var nefndur "Fugl dagsins", og ég veit til þess að margir lögðu við eyru og reyndu að geta sér til um hvaða fugl væri nú að láta í sér heyra áður en þulurinn upplýsti það. Oft varð "Fugl dagsins" líka ágætur efniviður í alls konar einfeldningslegt grin og skemmtilega skrumskælingu manna á meðal og margar fleygar línur uðu til.




Fugl dagsins er Furðufugl, Hermikráka, Gargönd eða Skúfönd eftir jólabaðið svo dæmi séu tekin. Einu sinni sá ég millifyrirsögnina "Fugl dagsins á einni erfiðustu holu vallarins" og svo er til "Fugl dagsins" - sagan endalausa eftir Michael Ende.

Þetta svona dúkkaði upp í kollinum á mér þegar ég rakst á þessar tvær skemmtilegu fuglamyndir sem báðar færu létt með að standa undir titlinum.


Nafn:

Leó R. Ólason

Staðsetning:

Ýmist í Hafnarfirði eða á Siglufirði
Flettingar í dag: 168
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 403
Gestir í gær: 101
Samtals flettingar: 318195
Samtals gestir: 34916
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 12:49:46
clockhere

Tenglar

Eldra efni