20.05.2012 09:16
Nokkur minningarorð um Dodge Caravan
816. Þar kom að því að sá sem þjónað hefur svo vel og svo lengi, lagði upp í sína hinstu för fyrir fáeinum dögum. Notkun bílsins sem jaðrað hefur við misnotkun á stundum, hefur verið bæði ótrúlega margþætt og mismunandi. Hann hefur jöfnum höndum verið notaður sem fjölskyldubíll, hljómsveitarbíll, vinnubíll og þá ekki svo sjaldan til efnisflutninga og það jafnvel af grófara tagi, svo sem ef flytja hefur þurft jarðefni, múrbrot, byggingarefni og fleira í þeim dúr. Sætum hefur því ýmist verið fækkað eða fjölgað og pláss hefur verið eftir atvikum fyrir allt frá einn og upp í sjö farþega.
Þessi samferðungur
Hljómsveitin hefur lokið leik sínum að þessu sinni ef svo mætti að orði komast og yfirgefið sviðið.
Blessuð sé minning hans.
En rétt eins og maður kemur í manns stað, kemur bill í bíls
stað. Þar sem ég var ekki viðbúinn þessum óvæntu tímamótum, flýtti ég mér á
netið og leitaði upp vænlegan kreppukost, a.m.k. til nánustu framtíðar, því
bíllaus get ég illa verið. Ég rakst þar fljótlega á Micru af árgerðinni 2000
sem aðeins var keyrður 140 þús km. Og þar sem ég hef góða reynslu að tegundinni
og hún svarar auk þess kröfum mínum um minni orkukostnað á tímum ört hækkandi
bensínverðs á afar jákvæðan hátt, var strax farið að vinna í málunum. Það voru
ekki liðnir nema tveir tímar eða svo frá því að leit hófst á bilasolur.is þar
til nýr eigandi bifreiðarinnar