21.06.2014 12:51
Júní 1949 - júní 2014
937. Nú er fyrsta kafla sumarfrísins lokið og menn mættir aftur til starfa syðra. En blíðan
fyrir norðan var engu lík eins og þeir vita sem þar voru. Mælirinn á Sparisjóðnum
sýndi allt upp í 24 stiga hita yfir miðjan daginn. Blár himinn og glampandi sól
megnið af þeim dögum sem ég staldraði við.
Hvað er hægt að biðja um
meira?
Varla nokkurn skapaðan hlut -
nema þá kannski risastóran ís...
Sé hins vegar leitað
samanburðar frá liðnum árum, er myndin hér að ofan líklega eitt af því fyrsta sem dúkkar upp.
Skrifað af LRÓ.