26.10.2014 04:38
Afmælistónleikar Þorvaldur Halldórsson - Á sjó - 70 ára
962. Og af því tilefni ætlar hann að halda afmælistónleika í
Grafarvogskirkju
miðvikudagskvöldið 29. október kl. 20.30
Þar mun hann rifja upp helstu lögin af ferli sínum,
allt frá fyrsta laginu sem hann söng opinberlega, lögin með hljómsveit Ingimars
Eydal og til laga sem hann hefur samið og sungið allt til dagsins í dag.
Hann hefur fengið valinkunna söngvara og
hljóðfæraleikara til liðs við sig
og skal þar fyrst nefna - Helenu Eyjólfsdóttur,
en þau munu rifja upp nokkra dúetta og fleira.
Einnig syngja Þorvaldur sonur hans, Kristjana Stefáns,
Gísli Magna og Alla Þorsteins.
Þá munu Margret kona hans og Páll Magnússon líka taka
lagið með honum.
Í hljómsveitinni verða:
Gunnar Gunnarsson, píanó, hljómborð;Jón Rafnsson,
bassi; Sigurður Flosason, sax, klarinett; Jón Elvar Hafsteinsson, gítar og
Hannes Friðbjarnarson, trommur.
Sjáið endilega frábært viðtal
Eddu Andrésardóttur frá árinu 1992 við þá félaga Ólaf Ragnarsson höfund textans "Á sjó"
og Þorvald Halldórsson.
Slóðin þangað er: https://www.youtube.com/watch?v=XlAJ0mTVgp0