31.12.2014 20:53
Siglufjörður fyrir hálfri öld
971. Nú þegar árið er senn á enda, þykir mér ekki úr vegi að horfa aðeins um öxl og líta yfir þann farna veg sem nú er talsvert langt að baki. Ekki þó að líta til þess sem gerðist markverðast á árinu sem var að líða því það gera svo margir aðrir, heldur skulum við hverfa aftur um hálfa öld.
Hugur okkar mannanna er nefnilega bæði feyskinn og forgengilegur og því er ekki úr vegi að þeir sem muna svo langt aftur, ylji sér yfir þessari upprifjun og leyfi fortíðarþránni að blossa. Og kannski vilja líka þeir sem yngri eru einnig fræðast um þessa atburði sem áttu sér stað og persónur sem gengu um göturnar í bænum okkar skömmu eftir miðja síðustu öld. - Þetta var árið 1964 þegar sá sem þetta tók saman varð 9 ára.
Í janúarblaði Siglfirðings segir frá starfslokum Tedda sem allir eldri Siglfirðingar muna eflaust vel eftir og minnast með mikilli hlýju.
"Theódór Ágústsson, sem hefur um 30 ára skeið séð um flutning sorps frá húsum, lét af störfum um síðustu áramót. Þennan starfa hefur Theódór leyst vel með miklum ágætum. Fyrir um 30 árum voru úti-vanhús við öll íbúðarhús hér í bæ og var það ekkert þrifaverk að hreinsa þau. Öll tæki sem notuð voru til að flytja skarnið frá húsunum voru mjög léleg og ófullnægjandi. En þegar Theódór tók við þessu starfi, kom hann sér upp fullkomnari tækjum, vatnsheldum kerrum og kassasleðum til vetrarnotkunar. Þá var ekki farið að tala um bíla, en fallega og vel fóðraða klára átti Theódór, til að draga ökutækin. Seinni hluta þessa tímabils komst sú breyting á, að vatnsalerni voru sett í íbúðarhúsin, og þá létti mikið á sorphreinsaranum. En með vaxandi notkun rafmagns og olíu til upphitunar í húsum, óx alls konar drasl og úrgangur í húsunum, sem áður hafði að mestu verið brennt í kolaofnunum. Vildi þá við brenna, að safnað var draslinu í hauga við húsin, og af því varð mikill óþrifnaður. Theódór beitti sér mjög fyrir því að húseigendur fengju sér ílát til að geyma sorpið í, þar til það yrði tekið. Á þessu tímabili, sem Theódór hefur séð um sorphreinsunina, hefur hann sýnt mikla reglusemi í sínu starfi. Hefur aldrei þurft að kvarta yfir að hann sýndi þar tómlæti og skeytingarleysi. Má hann gjarnan líta með ánægju yfir liðið stlarfsltímalbil. Hefur það verið mjög mikils virði fyrir bæjarfélagið að hafa svona dyggan og reglusaman mann við þetta þýðingarmikla starf. Væri ekki úr vegi, og ætti mjög vel við, að bæjarstjórn sýndi honum einhvern sóma fyrir vel unnin störf í þágu bæjarins í þessi 30 ár.
Bæjarbúi".
Siglfirðingur segir einnig frá tunnuverksmiðjubrunanum á Siglufirði í janúarblaði sínu.
"Að kveldi miðvikudags, 8. jan. kom upp eldur í
Tunnuverksmiðju ríkisins hér á staðnum. Varð hann slökktur nokkru síðar að því
haldið var, en brunavakt þó haldin í venksmiðjunni. Nokkru eftir miðnættí gýs
svo eldurinn aftur upp með sprenginu og kom það vaktmönnum í verksmiðjunni
gjörsamlega á óvart. Mætti þá slökkvilðið aftur og barðist það við eldinn innan
dyra allt til morguns, eða þar til slökkvilíðsmenn héldust ekki lengur við inni
í húsinu, og stóð sú barátta allan næsta dag og fram á kvöld, m.a. við að verja
næstu hús. Verksmiðjan brann til kaldra kola og er gjörónýt. 40 verkamenn
störfuðu við verksmiðjuna og var því fyrirsjáanlegt milkið vinnutap hjá
viðkomandi mönnum, sem flestir eru fjölskyldufeður, og var ekki á bætandi eftir
lélegt síldarsumar og nýlega afstaðið verkfall.
Þegar þetta er ritað, er helst í ráði ef fært reynist,
að koma á tveim vöktum í Akureyrarverksmiðjunni og færu þá hinir atvihnulausu starfsmenn
verksmiðjunnar hér, þangað til starfa. Hvort úr þessu verður vill blaðið ekkert
fullyrða á þessu stígi málsins.
Verksmiðjan, vélar og timburbirgðir, sem voru venju
minni í upphafi starfsárs, var tryggt fyrir rúmar 12 milljónir kr. Rannsókn á
orsökum bruna þessa stendur nú yfir".
Myndin sýnir hvernig hinn nýi Strákavegur er fyrirhugaður inn í og um Siglufjarðarbæ, en hún fylgdi hinu nýjavegalagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, þegar það var lagt fram á Alþingi.
Tilkynnt var í janúarmánuði
að Bæjarstjórn Siglufjarðar hefði gert veriksamning við Jarðborunardeild um
tilraunaborun eftir heitiu vatni í Skútudal og verður samkvæmt henni hafist
handa nstrax í vor.
Á bæjarstjórnarfundi sem haldinn var þ. 14. jan. skýrði Jóhann G. Möller frá tildrögum þess, að sala SIGLO-síldar til Austur-Þýzkalands væri nú komin á dagskrá, en það mál komst á rekspöl í viðræðum sem Þóroddur Guðmundsson mun hafa átt við austur-þýzka verzlunarfulltrúann í Reykjavík skömmu fyrir sl. áramót. Munu Austur-Þjóðverjar vera til viðræðu um kaup á allmiklu magni af niðurlagðri síld, að því tilskildu að þeir fái einnig keypt nokkurt magn af síldarmjöli, og að keyptar verði af þeim vörur í staðinn.
Að umræðum loknum var
samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum eftirfarandi tillage sem var flutt af
bæjarfulltrúum Alþýðubandalagsins og Bjarna Jóhannssyni.
"Bæjarstjórn Siglufjarðar skorar á stjórn S. R. að
kanna þann þá möguleika sem nú er talinn á sölu niðurlagðrar síldar frá
Siglo-verksmiðjunni til Austur-Þýzkalands og að freista allra möguleika til að
tryggja til frambúðar þann markað fyrir svo mikið magn sem mögulegt er af
framleiðsluvörum verksmiðjunnar".
Tillagan var samþykkt með 8
samhljóða atkvæðum en Jóhann G. Möller sem átti sæti í stjórn S. R., greiddi
ekki atkvæði en lýsti sig samþykkan henni.
Árnað heilla í janúarblaði Siglfirðings.
Sunnudaginn, 19. jan. 1964
verða gefin saman í hjónaband af séra Ragnari Fjalari Lárussyni, ungfrú Guðný
Jónasdóttir og Jónmundur Hilmarsson. Nýlega voru gefin saiman í hjónaband, af
séra Ragnari Fjalari Lárussyni, Sigrún Stefánsdóttir og Ástvaldur Kristjánsson,
Hólavegi 11., ungfrú Birgit Henriksen, Aðalgötu 2, og Jón Sæmundur Sigurjónsson
Suðurgötu 16. Einnig ungfrú Hjördís Aðalsteinsdóttir og Arnar Ólafsson,
Eyrargtöu 4.
Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína ungfrú Sigrún Friðriksdóttir, Túnigötu 40 og Frímann
Ingimundarson Túngötu 36.
22. jan. sl. voru liðin 40 ár frá því Karlakórinn Vísir var formlega stofnaður. Aðalhvatamaður að stofnun Vísis og fyrsti stjórnandi var Halldór Hávarðarson. Söngstjórar eftir hann hafa verið Tryggvi Kristinsson, Þormóður Eyjólfsson, sem var stjórnandi í samfellt 24 ár, Haukur Guðlaugsson Frá árinu 1955 hafði kórinn ekki fastan söngstjóra fyrr en 1963 að Gerhard Schmidt var ráðinn, en Gerhard kom til Siglufjarðar haustið 1961.
Í tilefni afmælisins var
haldinn afmæliskonsert í Nýja bíó fyrir troðfullu húsi og við ágætar
undirtektir áheyrenda. Áður
en konsertinn hófst, flutti Jóhann Jóhannsson skólastjóri hátíðarávarp og
kórinn söng "Ég vil elska mitt land".
Á söngskrá voru íslensk og
erlend lög, þar á meðal eitt eftir söngstjórann, Gerhard Schmidt, og hafði hann
einnig raddsett um helming laganna á söngskránni og einsöngvarar voru þeir
Sigurjón Sæmundsson.
Við flutning seinni hluta
söngskrárinnar naut kórinn aðstoðar kvennakórs og hljómsveitar, sem skipuð var
Lúðrasveit Siglufjarðar og tónlistarnemendum á fiðlur, flautu og saxófóna.
Einnig léku þeir Ragnar Páll Einarsson og Þórhallur Þorláksson með í tveim
lögum á gítar og harmoniku.
Vísir hélt síðan söngskemmtun
í Ólafsfirði laugard. 2. maí ásamt kvennakór og hljómsveitarfólki við ágæta
aðsókn og undirtektir og flutti Póstbáturinn Drangur fólkið fram og til baka.
Bæjarútgerðin hafði gengið
illa um árabil og nú var brugðið á það ráð að auka hlutafé hennar og
fjölgahluthöfum.
Þann 30. jan. sagði Neisti (hér að ofan) frá því að Æskan væri á leið til suðurlands og að Ísafold hefði hætt starfsemi en Einherji (greinin fyrir neðan) frá framkvæmdastjóraskiptum Rauðku.
31. jan. segir Mjölnir frá því að ríkisstjórnin telji að ekki verði hjá því komist að hækka söluskattinn (sem var forveri virðisaukaskattsins) úr þremur prósentum í sex en ekki fimm eins og áður hafi verið áformað.
Mjölnir segir líka frá því þ. 14.
febr. Að frést hafi að stærsti liður verklegra framkvæmda á vegum bæjarsjóðs
Siglufjarðar á fjárhagsárinu 1964 verði ryðskröpun Búkollu, en kaup hennar munu
hafa verið mjög umdeild.
Skondin og kannski svolítið
neyðarleg leiðrétting sem birtist í sama blaði og fréttin um að sækjast eftir að Landsbankinn opnaði útibú
á Siglufirði.
Snorri Pálsson.
F. á Möðruvöllum í Hörgárdal 4. febr. 1840, d. 13.
febr. 1883. For.: Páll Jónsson (f. 27. ágúst 1812, d. 8. des. 1889) síðast
prestur í Viðvík og 1. k. h. Kristín Þorsteinsdóttir (f. 20. júlí 1810, d. 14.
maí 1866) húsmóðir. Bróðir Kristínar 1. k. Einars B. Guðmundssonar alþm. K.
(22. sept. 1865) Margrét Ólafsdóttir (f. 30. júlí 1839, d. 17. júní 1926)
húsmóðir. For.: Ólafur Gottskálksson og k. h. Kristín Sveinsdóttir. Börn:
Eggert (1866), Kristín (1867), Sigurlaug (1869), Páll (1870), Ólafur (1873),
Einar (1875), Gamalíel (1879).
Verslunarmaður á Skagaströnd og Hofsósi.
Verslunarstjóri á Siglufirði frá 1864 til æviloka. Var brautryðjandi um
síldveiðar í nót og niðursuðu matvæla ásamt Einari B. Guðmundssyni mági sínum.
Alþm. Eyfirðinga 1874-1880.
Nú um þessar mundir eru eitthundrað ár liðin síðan hingað flutitist rúmlega tvítugur maður og tók við faktorsembættinu við Siglufjarðarverzlunina. Þessi maður var Snorri Pálsson. Hann starfar hér í rúm 19 ár. Það getur ekki talizt langur tími í ævi eins byggðarlags, en þó eru sporin, sem hann skilur eftir hér, dýpri og greinilegri en flestra, ef ef ekki allra annarra.
"Sigurður á Balaskarði, sem var vinnumaður hans um
tíma, gefur okkur í bók sinni, allgóða innsýn í daglegt líf hér í Siglufirði
fyrir 90 árum. Eitt vorið vofði hungurdauði yfir sem oftar, hafþök af ís fyrir
öllu Norðurlandi. Þá er það Snorri sem telur kjark í menn. Hann hafði veitt því
athygli, að smáufsi gengur inn á fjörðinn á hverju vori, og treysti því að svo muni
enn verða. Hann lætur vinnumenn sína draga fyrir dag eftir dag við sandinn
innan á eyrinni og eitt kvöldið er heppnin með. Þá fæst talsvert af smáufsa í nótina.
Hann lætur skipta veiðinni jafnt milli allra heimila í Siglufirði. Þessi
framkoma lýsir Snorra vel, í fyrsta lagi þorir hann að treysta á reynslu sína
og dómgreind, og jafnframt lítur hann svo á, að í raun og veru séu allir
Siglfirðinigar ein fjölskylda, sem á að standa saman í blíðu og stríðu. Enda
framkvæmir hann öll sín morgue baráttu og áhugamál með því að virkja mátt
samvinnu og samtaka.
Hann lýsir því fyrir Sigurði að hyggilegra sé fyrir
útivegsmenn að eiga hluti í fleiri en einu skipi heldur en að vera hver með sitt
skip, því þá sé áhættan minni, þótt tjón verði".
Þannig hefst greinin í marsblaði
NEISTA þar sem þess er minnst að 100 ár eru líðin síðan Snorri Pálsson fluttist
til bæjarins, sem þýðir auðvitað að nú hljóta þau að vera orðin 150. Lítið
hefur farið fyrir umfjöllun um þennan merka mann í allt of langan tíma, en hann
á það svo sannarlega ekki skilið af okkur siglfirðingum að nafn hans falli í
gleymsku og dá.
Sjá: http://www.sild.is/ahugavert/greinar/fyrsti-sildarsaltandinn---snorri-palsson/
Í marsmánuði segir Mjölnir frá sýningu Leikfélags Siglufjarðar á "Á útleið" eftir enska höfundinn Sutton Vane. Skrifin verða þó að teljast gagnrýni, en enginn ritar þó undir þau.
"Leikfélag Siglufjarðar hefur
að undanförnu sýnt sjónleikinn "Á útleið" sem er þekktasta verk þessa höfundar,
enda er hér tekið til meðferðar sígilt efni á sérstæðan og skemmtilegan hátt.
Meðferðin á þessu leikriti er Leikfélagi Siglufjarðar til mesta sóma, í heild
séð er verkið vel af hendi leyst og hvergi hleypur snurða á þráðinn; leikendur
eru samtaka hópur. Lengst á sviðinu er Sigurður Geirsson í hlutverki Priors.
Þetta er ekki auðvelt hlutverk, en Sigurður kemst vel frá því. Bezt gengur
honum að túlka mestu geðshræringuna hjá manninum, helzt væri hægt að finna að
honum í fyrsta þætti, meðan hann ekki er í alltof mikilli geðshræringu.
Næst kemur á sviðið frú
Banks, nei, afsakið, frú Cliveden-Banks, ensk yfirstéttarkellíng, sem ekki á
sinn líka á Íslandi. Þess vegna er heldur ekkert auðvelt að túlka hana, hennar
orðfæri og hegðun stafar ekki af venjulegu monti, frekju og hroka, heldur koma
þarna fram eiginleikar, sem okkur eru mjög framandi og engin furða þótt Ása
Þórarinsdóttir eigi fullt í fangi með túlkunina. Friðrik Stefánsson leikur séra
Duke af prestlegri hlýju. Greinilegt var, að handarmein háði Friðriki í
leiknum, en samt er leikur hans mjög þokkalegur. Þórarinn Hjálmarsson sýnir
það, að hann er einn af okkar traustustu leikurum og skilar sínu hlutverki
prýðilega. Beztur er hann samt í fyrsta þætti, og skemmtilega skilar hann
lokaorðum þess þáttar. "Villingana", leika Magðalena Jóhannesdóttir og
Ingimar Þorláksson. Magðalena leikur sitt hlutverk vel og skörulega að venju,
Ingimar sýnir líka góðan leik, en málfar háir honum nokkuð. Kristín
Baldvinsdóttir lék frú Midget milt og móðurlega. Í leik hennar var hvergi
veikur punktur, henni tekst að
Innri-höfnin.
Mun betur gengur nú að dýpka
innrihöfnina heldur en fyrripartinn í vetur. Er óhætt að fullyrða að áhöfnin á
Leó hefir sýnt mikla þolinmæði og þrautseigju þó ekki gengi sem bezt, en sem
sagt, verkinu miðar sýnu betur nú.
Rafveitan.
Nýlega var undirritaður nýr
samningur milli rafmagnsveitna ríkisins og Rafveitu Siglufjarðar um raforkusölu
til Ólafsfjarðar og Fljóta. Er hinn nýi samningur mun hagstæðari þeim sem áður
gilti. Tryggvi Sigurbjarnarson rafveitustjóri, og Áki Jakobsson lögfr., önnuðust
samningsgerð fyrir Rafveitu Siglufjarðar.
Róðrar.
Einungis 3 stærri bátar hafa
róið héðan upp á síðikastið: Hringur, Strákur og Hjalti. Afli hefur verið misjafn.
Grjótkvörnin.
Starfsmenn Rauðku hafa unnið
að því í vetur að endumýja og
sem keypt var á sl. ári. Er gripurinn
sem nýr efttir aðgerðina, og mun hún ekki hafa kostað mikla peninga. Afköst
munu vera um 50 tonn á klst., og harpar hún mulninginn sjálf í 3 stærðir.
Sunna h.f.
er að endurbyggja bryggjuhús
sitt og einnig bryggju undir húsinu.
S.R.
Allmargir starfsmenn SR. fóru
nýlega austur til Seyðisfjarðar og munu þeir annast bryggjusmíði þar fyrir SR.
Verkstjóri er Páll Jónsson.
Baldur Eiríksson
tók við starfi hinn 1. marz,
sem forstjóri hins nýja Útgerðarfélags Siglufjarðar h.f.
Tunnuverksmiðja ríkisins
hefur nú óskað eftir tilboðum
í að rífa og fjarlægja Tunnuverksmiðjurústina. Teikningar af nýrri verksmiðju eru
fullgerðar, og hafa verið lagðar fyrir bæjarráð. Rfkh. Steinbergss. hefur gert
þær.
Byggingafulltrúi
hefir nýlega lokið við
tillögur að nýju skipulagi fyrir suðurbæinn. Tillögurnar eru athyglisverðar, og
hafa þær verið sendar skipulagsstjóra.
Skíðamót
hélt Skíðafélag Sigluf
jarðar, Skíðaborg, laugardaginn og. sunnudaginn sl. Mótið var haldið í
Skarðsdal. Veður var gott.
Mjólkurslagur.
Eftir komu Drangs frá
Akureyri, tvisvar í viku, má sjá biðraðir við mjólkurbúðirnar í bænum. Það er staðreynd,
að flöskumjólkin er svo miklu betri vara en brúsamjólk frá Sauðárikróki, að
menn vilja mikið á sig leggja til að ná í hana.
K.F.S.
Allt bendir til að KFS geti
ekki í bráð haldið áfram smíði verzlunarhúss síns við Ráðhústorg. Loforð sem
félaginu voru gefin um lán munu hafa verið svikin.
Hafnarkraninn
svonefndi hefir verið settur
á heljarmikinn dráttarbíl sem bærinn keypti í fyrra. Undanfarna daga hefir kraninn unnið við grjótnám
og hefur hann og bíllinn reynst mjög vel.
Leikstarfsemi.
Þrjú leikrit hafa verið sýnd
hér í vetur. Tvö af skólanemendum og nú síðast "Á útieið", eftir Subton
Vane, sem leikfélagið sýndi. Leikfélagið fór nú um helgina til Sauðárkróks með
leikinn.
Höfnin.
Skipakomur hafa verið fáar
upp á síðkastíð.
Ráðsmaður.
Starf ráðsmanns við Sjúkrahús
Siglufjarðar hefir verið auglýst laust til umsóknar.
Fiskþurrkun.
Henriksenbræður eru að koma fyrir
fiskþurkunartækjum í bryggjuhúsi sínu.
Niðurlagningaverksmiðja SR
tók að sér að flaka síld úr
900 tunnum fyrir Svein Benediktsson.
Gatnagerð.
Vegna þess hve tíð var stirð
í fyrrahaust var ekki hægt að ljúka við ýmsar framkvæmdir, sem
bærinn hafði á prjónunum. Nú
hefur aftur á móti viðrað svo vel, að unnið er að því að lengja Fossveginn í
norður, og einnig er verið að koma fyrir holræsum í Hólaveg og Eyrargötu.
Skarðsvegurinn.
Þórhallur Björnsson sem
staddur er í Reykjavík, fékk tvo menn til þess að fara upp í Siglufjarðarskarð
til þess að kanna, hvort mikið verk væri að ryðja snjó af veginum. Mennirnir töldu
verkið taka a.m.k. 4-5 sólarhringa. Mun nú vera í athugun, hvort í þetta verður
ráðizt.
Bæjarstjóri
upplýsti á síðasta bæjarstjórnarfundi,
að a.m.k. 12 íbúðir myndu verða í smíðum hér á þessu
ári.
Árshátíð Gagnfræðaskóla Siglufjarðar
verður haldin n.k. laugardag.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildarmönnum í IV. bekk, er álitið að til hennar þurfi
600 brauðsneiðar, 450 pönnukökur, 300 smákökur, og 50 tertur. Eftir þessu er
búist við allmiklum mannfjölda þar sem ekki þarf nema 2 brauð og 5 fiska til að
metta 5000
manns.
Steypuvinna.
Það þykir tíðindum sæta, að á
þessum árstíma skuli vera unnið að því að steypa hús hér í
Siglufirði. Í gær var verið
að steypa upp kjallara íbúðarhúss Stefáns Þór Haraldssonar.
Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg,
mun ætla að senda 23
ikeppendur á landsmót skíðamanna, sem verður á Isafirði um páskana.
Afmæli
75 ára 4. marz, Hallgrímur Jónsson,
Hólavegi 14.
70 ára 6. marz, Skafti Stefánsson,
Nöf.
70 ára 12. marz, Gunnlaugur
Guðjónsson, Reykjavík.
Einherji segir frá
fuglatalningu í marsblaðinu sem kennarinn Guðbrandur Magnússon stóð fyrir og
hefur að öllum líkindum líklega verið árviss.
Fýll 1
Dílaskarfur 5
Hávella 114
Æðarfugl 250
Tjaldur 1
Sendlingur 4
Svartbakur og hvítmávur 700
Bjartmáfur 8
Rita 20
Haftyrðill 6
Langvía 3
Teista 6
Hrafn 10
Snjótittlingur 106
Talningin var gerð meðfram
sjónum, frá Staðarhóli, austan fjarðarins, og út Landsenda, vestan fjarðarins.
Hiti var 2 stig, þykkt loft og þoka á fjöllum. Norðaustlæg átt, 2-3 vindstig.
Gekk á með lítils háttar éljum einkum milli kl. 10 og 11, og var þá vont
skyggni. Mikill jafnfallinn snjór var á jörðu, og snjóaði mest 2. jóladag og
aðfaranótt hans. Ár og lækir voru undir snjó. Gangfæri vont. Með mér í
talninguinni voru þrír ungir menn, sem allir eru sérlega glöggir og þekkja vel
fugla. Margt af fuglunum þekktum við í sjónaukum, sem við höfðuim meðferðis.
Siglufirði, 29. des. 1963.
Guðbrandur Magnússon.
3. apríl sagði Mjölnir frá
því að á annan páskadag var opnuð í Æskulýðsheimilinu sýning á munum sem
unglingar hafa unnið að í tómstundum al. vetur.
Margt mjög vel gerðra muna og
mynda var á sýningu þessarri og gaf þar að líta ágætt sýnishorn of árangri
þeirra leiðbeininga, sem þar hafa farið fram á vegum Æskulýðsráðs.
Allmargir gestir voru
viðstaddir opnun sýningarinnar og voru þar fluttar
nokkrar ræður og fimm
unglingar lásu upp úr verkum Tómasar Guðmundssonar og Daviðs Stefánssonar.
Júlíus Júliusson er
forstöðumaður Æskulýðsheimilisins, en leiðbeinendur við tómstundagreinirnar
hafa verið þau Margrét Hallsdóttir, Jóhannes Þórðarson og Ragnar Páll Einarsson.
Hann hét Aage Boyum Johansen og var fæddur í Aabenraa á Suður-Jótlandi en flutist til Íslands um eða strax eftir seinna stríð. Hann var menntaður mjólkurfræðingur ytra en vann lengst af sem kafari og gerði út dýpkunarskipið Björninn ásamt félaga sínum Birni Þórðarsyni um árabil. Gaman væri að fá upplýsingar um hvort hann kom e.t.v. upphaflega til Siglufjarðar til að vinna við Hólsbúið. Johansen eins og hann var oftast kallaður lést þ. 9. júní árið 1994.
Happdrætti DAS var stofnað árið
1954 og fór fyrsti útdráttur fram í júlí það ár. Dregnar voru út 6 bifreiðar af
þeim 9 sem fluttar voru inn til landsins í það sinn, en á þessum tíma voru
margskonar viðskiptahöft, boð og bönn í gildi sökum gjaldeyrisskorts. Svo voru
miðarnir prentaðir í fánalitunum. Ásgeir Ásgeirsson, þáverandi forseti
landsins, tók við fyrsta miðanum sem seinna skilaði honum plötuspilara í
vinning.
Á fyrstu árunum voru
vinningarnir af mörgu tagi s.s. glæsibifreiðar, góðhestar, trillur,
landbúnaðartæki, farmiðar til utanlandsferða og seinna komu raðhús og
einbýlishús. Fyrsta DAS-húsið var dregið út áðið 1956, íbúð í raðhúsi við
Ásgarð í Reykjavík að verðmæti 350.000 krónur.
Húsin voru sýnd almenningi og
reyndust sýningarnar svo vinsælar að takmarka þurfti aðgang sumar helgar. Þetta
voru merkilegar sýningar að því leyti að húsin voru sýnd fullbúin með nýjustu
húsgögnum og vönduðum innréttingum. Þarna var því kjörið tækifæri til að sjá
hvað var í tísku. Á veggjum voru oftast myndverk eftir Atla Már (hönnuð Ópal
pakkans). Auglýsingin hér að ofan tilheyrir aprílúrdrætti hjá DAS.
-
Pólitíkin hefur löngum tekið
á sig flestar mögulegar myndir og ein þeirra birtist í Siglfirðingi föstudaginn
10. apríl í bundnu máli unir fyrirsögninni. "Okkar skáld á atómöld"
Þ. 10 apríl var
Siglufjarðarskarð opnað og hélst opið í heila 20 tíma. All margir siglfirðingar
höfðu lagt leið sína til Sauðárkróks á Sæluvikuna en komust fæstir akandi til
baka. Þegar skarðið lokaðist vegna snarprar norðanáttar og hríðarbyls, vildi
ekki betur til en svo en að nokkrir bílar festust þá í snjónum og var lík í einum
þeirra sem flytja átti til Skagafjarðar. Daginn eftir var gerður út leiðangur
og líkið borið yfir til Fljóta og mun það hafa verið hin mesta mannraun.
Mjölnir segir frá því í maí
að tveir ungir Siglfirðingar hafi lokið fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólanum
í Reykjavík, þeir Hjalti Björnsson Einarssonar og Arngrímur Jónsson
Guðjónssonar. Ennfremur þrír burtfluttir Siglfirðingar búsettir í
Vesrmannaeyjum fiskimannapófi frá sama skóla. Það munu hafa verið þeir
Steingrímur Arnar og bræðurnir Steingrímur Dalmann og Þórður Rafn Sigurðssynir
Jakobssonar frá Dalabæ.
Mjölnir segir einnig frá því
að "Gestur Fanndal hefur að undanförnu
verið að breyta rækilega innréttingu og fyrirkomulagi á verzlun sinni. Vaxandi
umsetning hjá Gesti, einkanlega í kjötvörum, samhliða tilkomu nýrrar tækni í
matvörusölu, er þess valdandi, að hann flytur matvöruna suðurhluta
verzlunarinnar, sem er rúmbetri. Mun þar verða margt lystugt að fá, bæði súrt
og frosið. Þar verða líka á boðstólum djúpfrystir óvextir og grænmeti, en
Gestur er frumkvöðull að verzlun með slíkt lostæti í Siglufirði".
Verslun Gests Fanndal varð 30 ára árið
1964.
Skarðsmótið var að venju
haldið um Hvítasunnuna og voru þátttakendur alls 71, eða fleiri en nokkru sinni
áður. Mótið fór fram í ágætis veðri og mesta athygli vakti tvöfaldur sigur
Sigríðar Júlíusdóttur í svigi og stórsvigi kvenna.
Úrslit í svigi karla urðu sem
hér segir:
1. ( 3) Samúel Gústafsson, Í
2. (39) Reynir Brynjólfss. A
3. (37) Ásgrímur Ingólfss., S
4. ( 9) Ivar Sigmundsson, A
5. (34) Jóhann Vilbergsson, S
6. (28) Kristinn Benediktss.,
Í
Aðeins tvær af fimm keppendum
luku keppni í svigi kvenna og varð Sigríður Júlíusdóttir frá
Siglufirði fyrst á tímanum
41.6 + 44.9 = 86.5 sek. Önnur varð Kristín Þorgeirsdóttir, einnig frá
Siglufirði á tímanum 39.8 + 86.6 = 126.4 sek.
Íslandsmeistarinn, Árdís
Þórðardóttir varð úr leik, en hinar tvær luku ekki keppni.
Úrslit í stórsvigi karla urðu
sem hér segir:
1. Jóhann Vilbergss. S. 88.3
2. Kristinn Benediktsson í
90.4
3. Svanberg ÞórSarson Ó 96.4
4. Hafsteinn SigurSsson Í
96.5
5. Hjálmar Stefánsson S. 97.6
6. Björn Þór Ólafsson Ó.
100.8
Í stórsvigi kvenna varð
Sigríður Júlíusdóttir S. fyrst á tímanum 76.4 sek., önnur varð Árdís Þórðardóttir,
S., á tímanum 78.5 sek., og þriðja varð Karolína Guðmundsdóttir, R., á tímanum
79.8 sek. Kristín Þorgeirsdóttir hafði rennt sér á mjög góðum tíma en datt illa
rétt við markið og lenti því í fjórða sæti.
Í karlaflokki í alpatvíkeppni
urðu úrslit þessi:
1. Jóhann Vilbergss. S. 6.01
2. Krist. Benediktss. Í 9.69
3. Reynir Brynjólfs. A 19.36
4. Ívar Sigmundss. A 19.87
Í svigi unglinga 12-14 ára
voru keppendur 9, þar af 5 frá Siglufirði.
Úrslit urðu þau, að fyrstur
varð Eyþór Haraldsson, R., á tímanum 28.5 + 27.0 = 55.5
sek. Annar varð Tómas Jónsson
R. á tímanum 28.5 + 27.6 = 56.1 sek. Og
þriðji varð Kristján Bjarnason, S., á tímanum 35.0 + 31.5 = 66.5 sek.
Bæjarstjórn Sigluf jarðar kom
saman til fundar 12. júní sl. eftir rúmlega mánaðar fundahlé og var því ýmsum
mál á að liðka raddböndin, enda óspart gert að vanda. Einn bæjarfulltrúinn
krotaði á blað undir orðaflóðinu:
Hér er mikið málaþref,
mitt er lúið eyra.
Sofna mun ég sjálfsagt ef,
sungið verður meira.
Haldið var upp á
þjóðhátíðardaginn 17 júní að venju, en undirbúningur hafði þá staðið yfir um
nokkurst skeið. Að honum stóð meðal annars sérstök hátíðanefnd sem í voru
fjórir menn, tilnefndir hver af sínum stjórnmálaflokki og sá fimmti af
bæjarstjórn. Þessir menn sátu í nefndinni: Af hálfu Sjalfstæðisflokksins
Halldór Kristinsson, héraðslæknir, og var hann formaður nefndarinnar, af hálfu
Framsóknarfloikksins
Guðmundur Hannesson
bæjarfógeti; af hálfu Alþýðuflokksins Erlendur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri; af
hálfu Sósélistaflokksins Þóroddur Guðmundsson, alþingismaður; og
af hálfu bæjarstjórnar
Þormóður Eyólfsson, ræðismaður.
Siglfirðingur segir frá því í
júníblaðinu að laugardaginn 20. júní verði haldið tvíburabrúðkaup á Siglufirði.
Þá muni verða gefin saman í hjónaband af sr. Ragnari Fjalar Lárussyni, ungfrú
Þórleif Alexandersdóttir Hlíðarvegi 31, og Daníel Baldursson,Suðurgötu 65.
Einnig ungfrú
Kristin Baldursdóttir
Suðurgötiu 65, og Jóhannes Friðriksson Hvanneyrarbraut 74.
Ný verzlun! - Tómstundabúðin h.f.
Ný verzlun hefur nýlega tekið til starfa hér. Er það
Tómstundabúðin, sem er til húsa í
Aðalgötu 20, þar sem áður var "Litla Búðin". Hlutafélag
stendur að verzluninni og er Júlíus Júlíusson forstöðumaður búðarinnar. Þarna
eru á boðstólum alls konar tómstundavörur, veiðiáhöld, ljósmyndavörur og
frímerkjavörur, að ógleymdum fiskum og fiskabúrum, með öllu tilheyrandi.
Einherji 30 júní 1964.
6. júlí kom Siglfirðingur SI-150
sem var fyrsti skuttogari íslendinga til Siglufjarðar. Hann var smíðaaður í
Noregi 280 tonn og í eigu samnefnds hlutafélags. Áhönin var 13 manns, allt
siglfirðingar. Ætlunin er að skipið haldi strax á síldveiðar fyrir norðurlandi.
Skipstjóri á Siglfirðingi
SI-150 verður Páll Gestsson, 1. stýrimaður Axel Schiöth, og 1. vélstjóri Agnar
Þór Haraldsson, allt ungir Siglfirðingar. Framkvæmdastjóri Siglfirðings h.f. er
Eyþór Hallsson. Framangreindir aðilar ásamt Kaupfélagi Siglfirðinga, eru og
helstu hluthafar þessa fyrirtækis.
Í sama blaði og sagt var frá aðalfundi Slysavarnarfélagsins VÖRN þar sem Þórhalla Hjálmarsdóttir flutti frumort kvæði, var frétt um að boranir eftir heitu vatni í Skútudal væru hafnar.
Mjölnir segir frá því að "mánudaginn 17. ágúst var haldin í
Sjómannaheimilinu á Siglufirði ráðstefna hernámsandstæðinga á Siglufirði.
Formaður héraðsnefndar, Hlöðver Sigurðsson setti fundinn og tilnefndi Benedikt
Sigurðsson kennara sem fundarstjóra. Því næst flutti Gunnar Rafn Sigurbjörnsson
yfirgripsmikið og skörulegt ávarp. Þá flutti Hlöðver Sigurðsson stutt ávarp, en
því næst sagði Hjörtur Guðmundsson kennari í Reykjavík fréttir frá síðustu
Keflavíkurgöngu og lét fylgja nokkur hvatningarorð. Þá var kosið í héraðsnefnd
og hlutu kosningu: Hlöðver Sigurðsson skólastjóri, Anna Magnúsdóttir frú,
Trausti Árnason gagnfræðaskólakennari, Guðmundur Jónasson forstjóri og Gunnar
Rafn Sigurbjörnssonstud. mag. Varamenn voru kosnir: Guðrún Albertsdóttir frú og
Kristján Sigtryggsson smiður. Var héraðsnefnd falið, að skipuleggja, ef hægt
væri hópferð á landsfund hernámsandstæðinga,sem haldinn verður um fyrstu
helgina í september að Skjólbrekku í Mývatnssveit. Hernámsandstæðingar eru nú
um þessar mundir að skipuleggja samtök sín og undirbúa landsfundinn, sem nú í
fyrsta skipti verður haldinn norðanlands. Að lokum sátu menn nokkra stund yfir
kaffi og röbbuðu saman. Ríkti mikill einhugur og áhugi á fundinum".
Í sama blaði er góðlátleg en
þó svolítið kaldhæðnisleg grein um björgunarafrek bæjarstjóra.
22. ágúst snjóaði talsvert í fjöll og féll þá snjóflóð í Siglufjarðarskarði og lokaði veginum, enda var smjóþykktin þar u.þ.b. þrjár mannhæðir.
Á bæjarstjórnarfundi sem haldinn var þ. 27. ágúst lagði Alþýðubandalagið fram eftirfarandi tillögu:
"Bæjarstjórn samþykkir að láta hefja þegar í haust
byggingu útgerðarhúsnæðis við Innrihöfnina. Skal þar vera beitingarpláss,
veiðarfærageymslur, kæld línugeymsla og rými fyrir fisksöltun og lítinn
þurrkunarklefa. Skal stærðin miðuð við, að þetta húsnæði nægi tveim stórum
línubátum og 6-8 smærri bátum".
Í septemberblaði Einherja sagði frá tillögu sem lögð
var fram á bæjarstjórnarfundi um athugun á byggingu skipasmíðastöðvar á
Siglufirði.
A fundi sínun þ. 27. ágúst sl. samþykkkti bæjarstjórn
Siglnfjarðar eftirfarandi tillögu:
"Bæjarstjórn samþykkir að láta nú þegar fara fram
undirbúningsathuganir á byggingu skipasmíðastöðvar í Siglufirði, sem byggt gæti
allt að 400 lesta stálskip, og dráttarbraut er gæti veitt skipuni af sömu stærð
viðgerðir og aðra venjulega þjónustu.
Um miðjan sept. strandaði
stór borgarísjaki 7-8 sjómílur úti fyrir Siglufirði, 20-40 metra hár og 100-150
metra breiður. Mun hann hafa sést vel frá bænum þar sem hann bar yfir
Siglunesið og leit út eins og hvít eyja.
Lið K.S. sem vann Norðurlandsmeistaratitilinn 1964
Þ. 27. sept. urðu KS-ingar Norðurlandsmeistarar í knattspyrnu. Í úrslitaleiknum keppti liðið við Þór frá Akureyri á Akureyrarvelli og vann með þremur mörkum gegn einu.
17. okt er sagt frá þvík í
Vísi að lokið sé við endurbyggingu og stækkun hafnarbryggjunnar, en vinna við
hana hófst á árinu 1957. Bryggjan sé nú um 7.000 fermetrar að flatarmáli og því
ein af stærstu bryggjum landsins.
20. okt. er sagt frá því í
Mjölni að um nýliðna helgi hafi verið lokið við að slá upp bitum fyrir palli
nýju brúarinnar yfir Hólsána og ganga frá járnalögnum. Sé nú beðið eftir
steypuveðri, en kalt hafi verið í síðustu viku. A. m. k. hálfur mánuður til
þrjár vikur munu síðan líða frá því að brúin verður steypt og þar til umferð
verður leyfð um hana.
Minnkandi síldveiði og að
sama skapi vaxandi atvinnuleysi var til þess að litið var í ýmsar áttir eftir hugmyndum
sem leitt gætu til aukinnar fjölbreytni í atvinnulífinu.
Mjölnir segir frá því 13.
nóv. að Gestur Fanndal kaupmaður hafi samið um það við Vestanflug, þ. e.
eiganda Ísafjarðarflugvélarinnar að hafið verði reglubundið flug til
Siglufjarðar og hún fljúgi hingað a. m. k. einu sinni í viku þegar flugfært
verður hingað í vetur. Hefur hann farið þess á leit við bæjarstjórn, að hún
láti moka flugvöllinn á föstudagsmorgnum þegar þess gerist þörf. Samkvæmt
upplýsingum Gests getur flugvél þessi flutt hingað 5 farþega í hverri ferð,
ásamt farangri, en til baka fjóra farþega og farangur eða flutning. Mun hún
flytja hingað póst, grænmeti, banana o. fl. eftir því
sem til fellur. Með því að
flytja þessar vörur á þennan hátt, yrði t. d. grænmeti og ávextir 2 kr. ódýrara
pr. kg. en að kaupa á þær flugfragt til Akureyrar og flytja þær þaðan með
Drang. Vörurnar yrðu betri, og rýrnun yrði engin. Hjá farþegum mundi sparast
heill dagur, miðað við að fljúga til Akureyrar og sigla síðan með Pósbátnum
Drang til Siglufjarðar.
14. nóv. var nýtt bókasafnshús vígt á neðstu hæð fyrirhugaðs ráðhúss Siglufjarðar. Bæjarstjórinn Sigurjón Sæmundsson afhenti stjórn safnsins húsnæðið þá til fullrar afnota og var bókasafnið þar með komið í eigið húsnæði í fyrsta sinn eftir að hafa verið víða til húsa frá stofnun þess.
Á myndinni hér að ofan eru þeir sem tóku fyrstu skóflustunguna af Ráðhúsi Siglufjarðar.
Auglýsingin hér að ofan
birtist í Einherja 25. nóv. þar sem reglur um útivist barna og unglinga voru skýrðar
þannig að ekkert færi á milli mála hvenær átti að koma inn í háttinn, en
eflaust hafa þær verið teygðar og togaðar til árið 1964 eftir þörfum og smekk rétt
eins og gert er í dag.
28. September var öllum
starfsmönnum bæjarins sagt upp í hagræðingarskyni en endurráðnir aftur núna í
nóvember upp á sömu kjör.
Og desember gekk í garð, jólin nálguðust, verslanir bæjarins fóru að auglýsa jólavarninginn og auðvitað að senda bæjarbúum jólakveðjurnar.
Og það er að sjálfsögðu í
Mjölni sem síðan er svona rauðlituð.
Einherji birtir mynd af
Steingrími Lillendal þar sem hann vinnur að setningu jólablaðsins í
Siglufjarðarprentsmiðju, en hann var þá við nám þá hjá Sigurjóni bæjarstjóra
Það er svo auðvitað við hæfi
að rifja það upp í desembermánuði að Sigurjón mun hafa haft 12 lærisveina meðan
hann rak prentsmiðjuna, en þeir eru í öfugri tímaröð:
Sigurjón Ingvarsson, Birgir Ingimarsson, Gunnar Trausti, Magnús Hilmarsson, Árni Jörgensen, Karl Lillendal, Steingrímur Lillendal, Ottó Guðlaugsson og Sigurður Þorkelsson.
En því miður vantar þrjú nöfn
á listann sem gaman væri að bæta inn á hann ef einhver hefur upplýsingar um hver
þau eru.
Neisti sagði m.a. frá málverkasýningu
ungs og efnilegs siglfirðings í jólablaði sínu.
Siglfirðingur skartaði þesari
fallegu jólamynd á forsíðunni, en því miður var hvergi neitt að finna í blaðinu
um hver var höfundur hennar.
Heimildir: Siglfirskur annáll Þ. Ragnars Jónassonar, Morgunblaðið, Vísir, Alþýðublaðið, Siglufjarðarbókin, Siglfirðingur, Einherji, siglo.is, Ljósmyndasafn Siglufjarðar, althingi.is